Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
á Íslandi og ferlið einfaldara,“ segir
Gunnar Bjarni.
Að sögn hans eru ný lyf alla jafna
tekin upp með tvenns konar hætti.
Annars vegar mæla læknar með
upptöku nýrra lyfja og hins vegar í
gegnum beiðni þess efnis frá lyfja-
fyrirtækjum. Að sögn Gunnars setja
læknar fram eins konar óskalista.
„Ný lyf geta verið margfalt dýrari
en þau sem fyrir eru en ef við teljum
ávinning af einhverju nýju lyfi lítinn
tökum við lyfið ekki upp,“ segir
Gunnar. Hann segir það nokkuð al-
gengt að lyfjum sem læknar mæla
með sé hafnað eða innleiðingu þeirra
frestað.
sjúklinga, eða að hægt er að með-
höndla fólk sem þolir ekki einhverja
aðra krabbameinsmeðferð. Þróunin
hefur almennt verið sú að fólk lifir
lengur eftir greiningu krabba-
meins,“ segir Gunnar.
Hann segir að Ísland sé eftirbátur
sumra landa þegar kemur að upp-
töku nýrra lyfja. „Danir hafa t.a.m.
verið í fararbroddi í innleiðingu
nýrra lyfja, en aðrar þjóðir hafa ver-
ið seinni til, en við viljum vera sam-
bærileg við Norðurlöndin í þessum
efnum. Stundum er erfitt að bera sig
saman við nágrannalöndin en við í
krabbameinslækningunum vildum
gjarnan að lyf væru hraðar innleidd
Frumvarp til laga um staðgöngu-
mæðrun í velgjörðarskyni hefur
verið lagt fram á Alþingi en málið
kom fyrst til kasta þingsins árið
2012 þegar samþykkt var þings-
ályktunartillaga þess efnis að heil-
brigðisráðherra kæmi að og legði
fram frumvarp um staðgöngu-
mæðrun.
Soffía Fransiska Rafnsdóttir
Hede, talsmaður Staðgöngu –
stuðningsfélags, segir það gleðitíð-
indi að frumvarpið skuli loksins líta
dagsins ljós. „Við erum búin að
vinna að þessu máli í mörg ár og ég
fagna því sérstaklega að búið sé að
leggja fram frumvarp um málið.
Núna fer það í gegnum þingið og á
eftir að fá meðhöndlun í þingnefnd
og ég vona að það fái faglega og
fljóta meðhöndlun þar.“
Markmið laganna, verði þau að
veruleika, er að stuðla að vandaðri
framkvæmd staðgöngumæðrunar í
velgjörðarskyni til að tryggja hag
og réttindi barns sem fæðist eftir
staðgöngumæðrun, rétt, sjálfræði
og velferð staðgöngumóður og fjöl-
skyldu hennar og farsæla aðkomu
væntanlegra foreldra. Þannig
þurfa staðgöngumæður að vera á
aldrinum 25 til 39 ára og stað-
gönguforeldrar á aldrinum 25 til 45
ára.
Staðgöngumæðrun
gæti orðið að veru-
leika á Íslandi
Frumvarp frá heilbrigðisráðherra
komið til umfjöllunar Alþingis
Morgunblaðið/Ómar
Nýtt frumvarp Markmiðið er að
tryggja hag og réttindi barna sem
fæðast eftir staðgöngumæðrun.
Ekki náðist sam-
komulag milli
Rafiðnaðar-
sambands Ís-
lands og Samtaka
atvinnulífsins á
fundi hjá Ríkis-
sáttasemjara í
gær. Kristján
Þórður Snæ-
bjarnarson, for-
maður Rafiðnað-
arsambandsins, segir viðræðurnar
stranda á einstaka viðmiðum og
launatölum. „Eins og staðan er í dag
vantar bara herslumuninn upp á að
hægt verði að ná ásættanlegum
samningi. Okkur greinir vissulega á
um launakjör en það er ekki langt á
milli og ég vona að hægt verði að
brúa það bil.“
Næsti samningafundur Rafiðn-
aðarsambandsins og Samtaka at-
vinnulífsins er á mánudaginn og
mun sá fundur marka ákveðin skil að
sögn Kristjáns. „Annaðhvort náum
við saman á mánudaginn eða það
hrekkur í sundur á milli okkar. Tak-
ist okkur ekki að ná saman eða nálg-
ast samkomulag á næsta fundi er
ljóst að við munum blása að nýju til
kosningar hjá okkur um verkfalls-
boðun.“ Búið var að samþykkja fjög-
urra daga verfall sem hefjast átti á
fimmtudag en félagsdómur dæmdi
þá verkfallsboðun ólöglega.
Vantar herslumuninn upp
á að ná nýjum samningi
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Samkomulag um samstarf á sviði
kjaramála milli Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar og
ríkisins er í burðarliðnum. Fjallað
var um drög að samkomulaginu í
stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga í
gær og samþykkt var í borgarráði sl.
fimmtudag að veita borgarstjóra
heimild til að undirrita samkomulag-
ið.
„Það hefur alltaf verið ákveðið
samráð þarna á milli en við erum að
reyna að þétta það með þessu. Það er
ekki búið að ganga endanlega frá
þessu,“ segir Karl Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Hann segir að með
þessu sé stefnt að því að opinberir
vinnuveitendur verði framvegis bet-
ur samstiga í karaviðræðunum.
„Það er hugmyndafræðin á bak
við þetta. Okkur hefur ekki fundist
að samtöl á milli aðila hafi tekist al-
veg nógu vel á undanförnum árum.
Við erum að reyna að finna einhvern
farveg til þess að treysta þetta sam-
starf og samræður,“ segir Karl.
Samkomulagið gengur fyrst og
fremst út á að ríki og sveitarfélögin
eigi reglulega fundi og miðli upplýs-
ingum á milli í kjaramálum en ekki
er um það að ræða að þessir aðilar
gangist undir eina sameiginlega
launastefnu og engin breyting verð-
ur á núverandi fyrirkomulagi þar
sem samningsumboðin verða eftir
sem áður hjá stjórn Sambands ísl.
sveitarfélaga, borgarstjórn og fjár-
málaráðherra.
Verði betur samstiga
Stefnt að auknu samstarfi Sambands ísl. sveitarfélaga,
Reykjavíkurborgar og ríkis í kjaramálum með samkomulagi
Í Lyfjagreiðslunefnd sitja fimm fulltrúar.
Formaður er skipaður af heilbrigðisráðuneytinu, einn
nefndarmaður er tilnefndur af landlæknisembættinu,
einn af Sjúkratryggingum Íslands, einn af Lyfjastofn-
un og einn er tilnefndur af fjármálaráðuneytinu. Guðrún
I. Gylfadóttir er formaður nefndarinnar. „Við ákvarðanir
förum við yfir umsagnir frá Landspítalanum og frá
Sjúkratryggingum, svo er einnig reynt að meta greiðslu-
þátttöku á Norðurlöndunum, en síðan er það sem öllu
máli skiptir, hvort það sé svigrúm á fjárlögum. Á síðustu
vikum höfum við verið að synja því að kostnaðarsöm lyf
séu tekin inn í greiðsluþátttöku lyfja, á þeim forsendum að svigrúm sé
ekki til staðar í fjárlögum,“ segir Guðrún.
Fjárlögin ráða för
HAFA HAFNAÐ KOSTNAÐARSÖMUM LYFJUM AÐ UNDANFÖRNU
Guðrún I.
Gylfadóttir
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Lyf eru í sumum tilvikum ekki tek-
in upp eins hratt og við viljum og í
sumum tilvikum eru þau alls ekki
tekin í notkun,“ segir Gunnar Bjarni
Ragnarsson, yfirlæknir lyflækninga
krabbameina á Landspítala. Telur
hann að Ísland sé
eftirbátur sumra
þjóða þegar kem-
ur að innleiðingu
nýrra lyfja. Þau
séu vissulega dýr
en alla jafna mæli
læknar eingöngu
með lyfjum sem
þeir telja að muni
veita aukna
möguleika í
krabbameins-
meðferðum. Læknar mæla ekki með
upptöku allra nýrra lyfja sem koma
til umfjöllunar hjá lyfjagreiðslu-
nefnd.
Nýir möguleikar
Ný lyf eru innleidd í gegnum
lyfjagreiðslunefnd og fái þau sam-
þykki þar eru þau tekin inn í
greiðsluþátttökukerfi ríkisins.
Gunnar segir að þróun nýrra lyfja sé
hröð og læknar vilji halda í við þá
þróun. „Það hafa komið fram nýir
möguleikar með þessum nýju lyfj-
um. Þessum auknu möguleikum
fylgir að hægt er oft að fresta fram-
gangi krabbameinsins og lengja líf
Morgunblaðið/Arnaldur
Lyf Yfirlæknir lyflækninga á krabbameinsdeild LSH telur að upptaka nýrra lyfja sé of hæg hér á landi.
Lyf ekki tekin nægj-
anlega hratt upp
Ísland eftirbátur hinna norrænu þjóðanna segir yfirlæknir
Gunnar Bjarni
Ragnarsson
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is