Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 11

Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 11
ar fyrir hjá konu sinni í slíkri mún- deringu. Svo kvenlegur var hann að engum datt í hug að karlmaður væri fyrirmynd fíngerðu kvennanna á myndunum sem Gerda var rómuð fyrir. Löngun hans til að klæðast kvenfatnaði ágerðist. Fyrst í stað skrýddist hann aðeins slíkum flíkum sér til gamans og gestum þeirra hjóna til skemmtunar og kallaði sig þá Lili Elbe. Fáir vissu hvers kyns var Ekki leið þó á löngu þar til Lili Elbe fór að spóka sig á götum Par- ísar. Borgarbúar tóku henni vel, enda þótti hún hrífandi persónuleiki og Gerda virtist kæra sig kollótta. Aðeins nánir vinir vissu hvers kyns var, Wegener-hjónunun þótti óþarfi að flækja málin og kynntu Lili Elbe sem systur Einars. Hann hafði raunar alla tíð verið svo nettur og kvenlegur að stundum hélt fólk að hann væri kona í karl- mannsfötum. Síðar komu upp get- gátur um að hann hefði verið með svokallað Klinefelter-heilkenni sem er litningagalli í karlmönnum með auka X litning í frumum sínum. Í bókinni Man into Woman: An Authentic Record of a Change of Sex, sem Lili Elbe hafði skrifað und- ir ritstjórn vinar síns og gefin var út tveimur árum eftir dauða hennar var munur á kyni og kynhneigð skil- greindur á þann veg að þótt körlum finnist þeir vera konur – og gangist hugsanlega undir aðgerð til að leið- rétta kyn sitt – geti þeir, rétt eins og aðrir, verið gagnkynhneigðir, sam- kynhneigðir eða tvíkynhneigðir. Sama eigi við um konur. Skurðaðgerðir til að leiðrétta kyn voru á algjöru tilraunastigi og stórhættulegar. Dagblöð í Þýska- landi, þar sem Lili gekkst undir að- gerðirnar, og Danmörku fjölluðu mikið um málið. Mörgum þótti enda óskiljanlegt að karl, sem aukin- heldur var kvæntur, vildi verða kona. Afskipti Danakonungs Danakonungur ógilti hjónaband þeirra Gerdu 1930. Wegener/Elbe tókst að fá kyni sínu löglega breytt á pappírum og vegabréf á nafni Lili Elbe, en hélt áfram að mála myndir undir nafni Einars Wegeners þann stutta tíma sem hún átti ólifaðan. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um margbrotna og á stundum sorglega sögu dönsku stúlkunnar, sem einn frægasti leikstjóri heims ætlar að færa yfir á hvíta tjaldið. Þess vegna þurfti hann um stund- arsakir að klæða Nýhöfnina í Kaup- mannahöfn í 19. aldar búning. AFP Aðstandendur Dönsku stúlkunnar Tom Hooper leikstjóri ásamt leikurunum Alicia Vikander og Eddie Redmayne á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn. 19. aldarbragur Á myndinni til vinstri glittir í breska leikstjórann Tom Hooper þar sem hann horfir yfir sviðið, Nýhöfnina; forna bíla keyra á mal- arvegum, fisksölukonur spjalla saman og segl blakta á skipum í höfn. Lili Elbe árið 1926. Gerda Gottlieb í vinnustofu sinni. Einar þótti nettur og kvenlegur. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Landsvirkjun hefur um áratugaskeið starfrækt sumarvinnuflokka ungs fólks. Hóparnir sinna viðhaldi, uppbyggingu og fegrun starfsstöðva Landsvirkjunar og vinna jafnframt að ýmsum samstarfsverkefnum víða um land. Samvinna sumarvinnuflokka Landsvirkjunar og félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana hefur skilað sér í auknum umhverfisgæðum og betri aðstöðu til útivistar og ferðamennsku. Í boði er vinnuframlag sumarvinnu- flokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum umhverfisbótum ásamt ýmsum samfélagsverkefnum. Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni. Umsóknareyðublað með nánari upplýsingum er að finna á vef Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is. Nánari upplýsingar í síma 515 9000, og hjá thora.maria.gudjonsdottir@landsvirkjun.is Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl. Umsóknareyðublöð er að finna á landsvirkjun.is Landsvirkjun auglýsir eftir samstarfsaðilum að verkefninu Margar hendur vinna létt verk sumarið 2015. Fríða Gylfadóttir, bæjarlistamaður Fjallabyggðar, opnar í dag mynd- listarsýningu í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5, annarri hæð. Þar sýnir hún myndir sem hún hefur verið að mála af hestum. Sýningin stendur frá 28. mars til 22. apríl og er opin á versl- unartíma. „Flestar eru þær af hestum sem ég þekki en það er alls ekki ráð- andi. Við fjölskyldan eigum hesta og mér finnst þeir yndislegir og elska að vera í kringum þá en ég er ragur knapi. Til að gera hest- unum samt eins hátt undir höfði og þeir eiga skilið fór ég að mála þá. Mála þá eins og ég þekki þá, slaka, forvitna, notalega heima við og í kringum okkur mannfólkið.“ Þess má geta að Fríða var á sínum tíma í forsvari fyrir hóp kvenna sem prjónuðu trefil í gegnum Héð- insfjarðargöng. Myndlistarsýning bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2015 Hestar Flest módelin þekkir hún vel. Slakir og forvitnir hestar Flóamarkaður til styrktar Konukoti fer fram í Eskihlíð 4 í dag, laugardag, á milli kl. 12 og 16. Þar er hægt að gera góð kaup á gömlum gersemum og styrkja gott málefni í leiðinni. Það er tilvalið að taka til í geymsl- unni og skápunum og fara með góss- ið í gám sem er fyrir við Eskihlíðina, sem síðan er selt á flóamarkaðnum. Starfsemina munar um hverja krónu og því er um að gera að hugsa hlý- lega til starfsins þegar kíkt er inn í skáp á ónotaðar flíkur. Flóamarkaður Konukots í Eskihlíð 4 Gamlar fallegar gersemar Morgunblaðið/Ómar Föt Flóamarkaðurinn er opinn í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.