Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 FRÉTTASKÝRING Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Fá úrræði standa bráðgerum börnum til boða í grunnskólum og skólakerfi sem stjórnast af yfirferð námsefnis og mælanlegum hæfniviðmiðum þjónar illa nemendum sem vilja fara djúpt í námsefni. Þetta segir Meyvant Þórólfsson, dósent við menntavísindasvið Há- skóla Íslands og fyrrverandi umsjón- armaður verkefnisins Bráðger börn – verkefni við hæfi. Því miður sé fátt um svör, helst geti hann bent á nám- skeið á vegum einkaaðila sem kosti oft dágóðar fjárhæðir. ,,Ég tel að allir geti verið sammála um að nemendur á hinum jaðrinum fá mjög góða aðstoð innan skólakerf- isins. Hins vegar virðist vandræða- gangur og úrræðaleysi ríkja þegar bráðger börn eiga í hlut. Það er ef- laust ekki meiningin en mig grunar að skólakerfið viti ekki alveg hvernig á að aðstoða bráðgeru börnin.“ Bendir hann á að í hvítbók sem menntamálaráðherra hefur nú lagt fram, sé aukin áhersla lögð á hröðun og skilvirkni í skólakerfinu með það fyrir augum að bæta aðstæður og auka tækifæri duglegra nemenda til að flýta sér áfram í námi. ,,Þessar breytingar geta verið jákvæðar ef vel er að því staðið en það eru til fleiri leiðir sem þarf að líta til.“ Litið á námskrá sem gátlista Meyvant segir rannsóknir og reynslu kennara hafa sýnt að sumir nemendur vilji staldra við og fara dýpra í námsefnið. Sú leið að nálgast aðalnámskrá sem gátlista þjóni ekki þeim tilgangi. Sýnt sé að námskráin er yfirfull og kennarar eigi mjög erf- itt með að komast í gegnum hana alla. Af þeim sökum neyðist þeir til að fara sífellt hraðar í gegnum námsefnið án þess að það komist almennilega til skila. Þetta fyrirkomulag sé gagnrýnt af mörgum. Nefnir hann í því samhengi að í Finnlandi séu alvarlegar umræður um að breyta menntakerfinu á þá leið að leyfa nemendum, um leið og þeir komist á unglingsár, að fara dýpra í heildstæð verkefni, leggja náms- greinar til hliðar og beina sjónum meira að styrkleikum einstakling- anna í stað stað veikleika. Þá hafi rannsóknir sýnt fram á að skólaleiði geri vart við sig hjá nem- endum frá tíu ára aldri og að skóla- leiði sé vaxandi vandamál á unglings- árunum. Finnsk yfirvöld hafi mikinn áhuga á að taka á því vandamáli. Meyvant vísar einnig til þess að bresk yfirvöld hafa um árabil styrkt efnalítil bráðger börn til viðbót- arnáms í gegnum verkefnið Excel- lence in Cities. Hann telur Íslendinga geta fylgt því fordæmi. Að sögn Meyvants bendir nýleg PISA-rannsókn til þess að hlutfalls- lega fá íslensk börn komist upp á svo- kallað efsta ,,þrep“ þegar náms- árangur þeirra er metinn. ,,Niðurstöðurnar sýna okkur að ís- lenskir krakkar komast mjög sjaldan upp á efstu þrep, þar sem viðfangs- efnin eru flóknari og þörf á vangavelt- um. Við erum áberandi slök í þessu tilliti og við stöndum okkur t.d. illa miðað við finnska nemendur. Þetta þýðir að íslenska skólakefið virðist ekki þjóna nægilega vel þeim hópi sem vill fara dýpra í verkefni. Á sama tíma er miðjuhópurinn mjög stór hér og slakasti hópurinn fer stækkandi.“ Örva ,,toppana" í Álfhólsskóla Álfhólsskóli er einn þeirra skóla sem vilja leggja sitt af mörkum. Sig- rún Erla Ólafsdóttir, kennari við skólann, sagði í samtali við Morg- unblaðið að skólinn hygðist koma bet- ur til móts við bráðgera nemendur sína frá og með haustinu. ,,Við höfum sinnt miðjunni ágæt- lega og mjög vel þeim sem eru neðst. Núna erum við hins vegar að mynda kennsluþróunarteymi áhugasamra kennara til þess að örva ,,toppana“ hjá okkur.“ Að sögn Sigrúnar verður fyrsta verkefni teymisins að skilgreina hóp- inn og finna lausnir fyrir hann. ,,Við viljum bregðast við þörfum þessa hóps barna með sama hætti og við höfum verið að bregðast við þörfum annarra barna, því þau eiga jafnmik- inn rétt á stuðningi og önnur börn. Við finnum að ekki er nóg að láta bráðger börn aðeins hafa meira krefj- andi verkefni og láta þau vinna sjálf- stætt heldur biðja þau sjálf um meiri stuðning og frekari leiðsögn.“ Fá úrræði fyrir bráðger börn  Úrræðaleysi og vandræðagangur ríkir þegar þessi hópur á í hlut, segir lektor við HÍ  Gagnrýnivert að horfa á námskrá sem gátlista  Álfhólsskóli tekur á vandanum með hópi áhugasamra kennara Myndir af fésbókarsíðu Ad Astra ehf. Tilraunir Áhugasöm börn framkvæma tilraun í rafmagnsverkfræði á námskeiði hjá Ad Astra árið 2012. Sigrún Erla Ólafsdóttir Meyvant Þórólfsson Í skýrslu starfshóps fræðsluráðs Reykjavíkur frá árinu 2004 eru bráð- ger börn sögð líklegri en önnur börn til að sýna óvenju snemma, miðað við aldur, mikla hæfileika á einu eða fleiri sviðum, hafa sterka innri áhugahvöt og námsárangur . Þau geta unnið úr framandi upplýsingum og geta yfirfært þekkingu, reynslu og innsæi á framandi aðstæður, hugsa óhlutbundið og eiga auðvelt með að leysa framandi og óvænt verkefni. Þau svör fengust frá Reykjavíkurborg að ekki séu til sérstakar námsleiðir fyrir bráðger börn, enda framfylgi borgin stefnu um ein- staklingsmiðað nám þar sem sérhverjum nemanda sé mætt á hans námsforsendum og tekið sé mið af áhuga og getu hans. Kveðið sé á um þessa lykilþætti í nýrri stefnu og starfsáætlun skóla- og frístundasviðs. Engar sérstakar námsleiðir BRÁÐGER BÖRN Kattavinafélag Íslands heldur árleg- an páskabasar í dag klukkan 11-16. Basarinn er haldinn í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík. Á bas- arnum verður meðal annars hægt að kaupa kökur, páskaskraut, servíett- ur og kerti auk þess sem heim- ilislausir kettir verða sýndir áhuga- sömum framtíðareigendum. „Við hverjum fólk til að koma í heimsókn, það er góð basarstemmn- ing, tónlist og kynning á kattamat“ segir Halldóra Snorradóttir, ritari Kattavinafélags Íslands. Óskað er sérstaklega eftir hjálp við bakstur fyrir basarinn, en þeir sem vilja leggja hönd á plóg geta komið með kökur í Stangarhylinn milli klukkan 10 og 11 í dag. Ágóði af basarnum rennur allur í kaup á nýjum búrum fyrir athvarfið, en gömlu búrin eru orðin 20ára gömul. Búrin sem Kattholt notast við þarf að sérpanta frá Texas en um er að ræða sérstaka tegund sem nauðsynleg er fyrir dýraathvarf. Áheit hefur borist frá kattavini um að gefa sömu upphæð á móti því sem kemur inn á basarinn og hvert fram- lag á basarnum mun því tvöfaldast. Morgunblaðið/Ómar Kisur Gestir á páskabasar Kattavinafélagsins ættu að sjá marga skemmti- lega ketti. Einhverjir eiga líklega eftir að taka kisu með sér heim. Basar fyrir kisur  Basar, tónlist og sýning á heimilis- leitandi köttum í Kattavinafélaginu Sy ru sson Hönnunar hús Síðumúla 33 NORM hillueiningar sniðnar að þínum þörfum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.