Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
ÚR BÆJARLÍFINU
Atli Vigfússon
Þingeyjarsýsla
Vorið er í nánd og álftirnar eru
farnar að sveima heim að bæjum til
þess að gá hvort ekki sé komið eitt-
hvað gott í gogginn í nýræktunum.
Annars eru fáir fuglar á ferli.
Nokkrar rjúpur hafa sést við bæi, en
þær virðast mun færri heldur en á
sama tíma og í fyrra.
Aðalfundur Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga var haldinn í Sól-
vangi á Tjörnesi á dögunum og þar
voru sauðfjárbændur heiðraðir fyrir
framúrskarandi árangur í rækt-
unarstarfinu. Þeir sem fengu verð-
laun voru þeir Þröstur Jónasson á
Sílalæk og Sveinbjörn Þór Sigurðs-
son á Búvöllum. Þá fékk þingeyski
bóndinn 2014 heiðursskjal frá stjórn
búnaðarsambandsins, en það var að
þessu sinni Jón Gunnarsson bóndi í
Árholti á Tjörnesi. Fékk hann það
fyrir dugnað og áræðni í búskap, en
hann tók í notkun stór og nýtískuleg
fjárhús á árinu.
Sauðfjárbændur úr Borgarfirði
sóttu Þingeyinga heim sl. helgi og
skoðuðu nokkur fjárhús m.a. heima-
vinnslu sauðfjárafurða í Skarðaborg
í Reykjahverfi o.fl. Áður höfðu þeir
heimsótt Þórarin Pétursson, for-
mann Landssambands sauð-
fjárbænda, og ábúendur á Höfða við
Grenivík. Fjárbændurnir komu við í
einu fjósi og rétt eftir að þeir voru
farnir fæddist þar kvíga sem auðvit-
að var nefnd Baula eftir fjalli þeirra
Borgfirðinga.
Allir höfðu gaman af að hitta
þessa góðu gesti.
Mjólkurverðlaunin voru afhent
nýlega á deildarfundi Auðhumlu á
svæði mjólkursamlagsins MS Ak-
ureyri. Almennt má segja að gæði
mjólkur séu mjög mikil og sumir eru
búnir að vera með heiðursverðlaun
mörg ár í röð. Þar kom fram mikil
ánægja með þennan árangur sem
hefur mikið að segja fyrir mjólk-
ursamlagið sem leggur upp úr því
að framleiða gæðavörur. Hjá verð-
launabændunum er heilbrigði
kúnna og hreinlæti til fyrirmyndar.
Nýr skólastjóri hefur verið
ráðinn að sameinuðum skóla á
Hafralæk í Aðaldal, en sá skóli mun
taka til starfa í haust. Skólastjóra-
stöðuna fékk Jóhann Rúnar Pálsson
frá Víðiholti í Reykjahverfi, en hann
hefur mikla reynslu af skólastarfi
og hefur unnið mikið með börnum.
Þar með leggst skólastarf af á Litlu-
laugum í Reykjadal, en auðvitað eru
skoðanir skiptar um þessa breyt-
ingu.
Veðrið hefur verið vindasamt
þó að ekki sé hægt að kvarta mikið
yfir vetrinum. Innistaðan hefur oft
verið lengri, en auðvitað bíða menn
og skepnur eftir því að geta farið að
vera meira úti. Sumir hafa gaman af
því að viðra kindur sínar og nota til
þess alla sólardaga sem gefast.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Vorið er í nánd Frístundabændur á Húsavík hafa verið afar duglegir að viðra fé sitt á sólskinsdögum.
Gaman að viðra kindur sínar
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
tilkynntu á Grænum dögum, sem
haldnir voru í vikunni af nemum í
umhverfis- og auðlindafræði við Há-
skóla Íslands, að þau myndu styrkja
Hrönn Egilsdóttur, doktorsnema í
sjávarlíffræði, til að leggja stund á
rannsóknir sínar næstu þrjú ár.
Hrönn er frumkvöðull í rann-
sóknum á súrnun sjávar við strend-
ur Íslands og hefur unnið ötullega
að því að vekja almenning til vit-
undar um mikilvægi umhverfisrann-
sókna á hafinu, segir í fréttatilkynn-
ingu. Tilkynnt var um styrk-
veitinguna á fundi sem helgaður var
súrnun sjávar og samskiptum
þjóða.
Styrkja rannsókn-
ir á súrnun sjávar
Viðurkenning Hrönn Egilsdóttir (t.v.) og Karen Kjartansdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem afhenti styrkinn.
Malín Brand
malin@mbl.is
Tíu daga langri rafrænni íbúakosn-
ingu lauk aðfaranótt föstudags í
sveitarfélaginu Ölfusi en tilgangur-
inn með kosningunni var að kanna
hvort íbúar hefðu áhuga á samein-
ingarviðræðum við nágrannasveitar-
félögin. Alls voru 1432 á kjörskrá og
greiddu rúm 43% atkvæði eða 617
manns. Niðurstöður kosninganna
voru þær að 304 voru hlynntir við-
ræðum um sameiningu við önnur
sveitarfélög en 308 andvígir. Fimm
skiluðu auðu.
Kemur ekki á óvart
Sveinn Steinarsson, forseti bæjar-
stjórnar Ölfuss, segir niðurstöðurn-
ar vera í samræmi við fyrri vísbend-
ingar um áhuga íbúa á sameiningu.
„Það er ótrúlega lítill munur en nið-
urstöðurnar komu eiginlega ekki á
óvart. Þetta er svipað því sem maður
hafði heyrt á íbúum. Andrúmsloftið
var svona,“ segir Sveinn en næsta
skref í ferlinu er að bæjarstjórn tek-
ur afstöðu til þessarar niðurstöðu
þegar hún kemur saman eftir
helgina.
„Niðurstöðurnar tala svo sem sínu
máli en það er ýmislegt sem verður
fróðlegt að skoða betur og það mun-
um við gera í næstu viku.“
Upplagt þótti að nota tækifærið og
spyrja í rafrænni kosningu um það
hvenær íbúar vildu helst halda bæj-
arhátíðina, Hafnardaga, en fram til
þessa hefur hún verið haldin um sjó-
mannadagshelgina. „Og þar erum
við með afgerandi niðurstöður. Við
hljótum að horfa á þá kosningu sem
svolítið skýr skilaboð,“ segir Sveinn
en bæjarhátíðin verður flutt yfir á
helgina á eftir verslunarmannahelg-
inni í ágúst. Kosningin var eingöngu
rafræn og var í grunninn tilrauna-
verkefni Þjóðskrár Íslands með raf-
rænt kosningakerfi í samvinnu við
Sveitarfélagið Ölfus.
Morgunblaðið/ Malín Brand
Ölfus Meirihluti íbúa Ölfuss er andvígur sameiningarviðræðum við önnur
sveitarfélög en mjótt var á munum. Hveragerði hefði þótt besti kosturinn.
Meirihluti and-
vígur sameiningu
Það sem kosið var um
» 308 voru andvígir sameining-
arviðræðum en 304 hlynntir
viðræðum.
» Ef ræða ætti við önnur sveit-
arfélög vildu 286 að rætt yrði
við Hveragerði, en 214 við
Grindavík.
» 309 töldu að ágúst eftir
verslunarmannahelgi hentaði
best fyrir bæjarhátíðina Hafn-
ardaga en 149 vildu áfram hafa
hana um sjómannadagshelgina.