Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 22

Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015                                    !" !#" "$ % #" $%$ $" "% $" &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  ! " !"$ %$" %! #"  $! $$ "" $%$  ! !  "! %!" #"% $# $$% " $% !#" Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● GAMMA hefur hafið opinbera birt- ingu á vísitölu fyrir sértryggð skulda- bréf, sem er undirvísitala í vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa. Vísitalan nær yfir útgáfu sértryggðra skuldabréfa samkvæmt lögum nr. 11/2008 um sér- tryggð skuldabréf og reglur um sér- tryggð skuldabréf nr. 528 frá 2008 og er útgáfa þeirra háð leyfi FME. Arion banki, Íslandsbanki og Lands- banki nýta sértryggð skuldabréf til fjár- mögnunar íbúðarlána. Ný vísitala fyrir sér- tryggð skuldabréf STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson Guðni Einarsson Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja (SV) á nú í viðræðum við Lands- bankann um samruna. Viðræðurn- ar halda áfram í dag, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þrjár tillögur Á fjórða tímanum í gær gengu forsvarsmenn Sparisjóðsins á fund FME með þrjár aðskildar tillögur sem allar miðuðu að því að bjarga sjóðnum frá gjaldþroti. Fyrsta til- lagan fól í sér að sjóðurinn yrði áfram rekinn sem sjálfstæð fjár- málastofnun og að nýtt eigiðfé kæmi m.a. frá erlendum fjárfesti sem eignast muni meirihluta í sjóðnum. Henni var hafnað af Fjár- málaeftirlitinu. Önnur tillagan fól í sér að Lands- bankinn tæki yfir starfsemi sjóðs- ins en þreifingar í þá átt hafa átt sér stað frá því í síðustu viku. Þriðja tillagan fól í sér að Arion banki tæki yfir starfsemi sjóðsins en bankinn gerði formlegt tilboð í hann eftir að Morgunblaðið flutti fréttir af fyrirhugaðri yfirtöku Landsbankans. Sú tillaga mun ekki hafa verið rædd við Fjármálaeft- irlitið. Ósjálfbær rekstur Rekstur SV var endurskipulagð- ur árið 2010 og við það eignaðist Bankasýsla ríkisins 55% hlut í sjóðnum. Við það var 350 milljóna framlag bæjarbúa frá árinu 2007 fært niður og svaraði frá þeim tíma til 1% af stofnfé. Vestmannaeyja- bær lagði sjóðnum einnig til um- talsverða fjármuni ásamt Lífeyris- sjóði Vestmannaeyja og Vinnslu- stöðinni. Þeir fjármunir eru nú að mestu eða öllu leyti tapaðir. Þegar litið er á rekstur sjóðsins frá endurskipulagningu kemur ber- lega í ljós að hann hefur verið með öllu ósjálfbær. Árið 2011 tapaði sjóðurinn 201,6 milljónum króna, árið 2013 tapaði hann 107 millj- ónum og á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 nam tapið 12,5 millj- ónum. Árið 2012 sker sig úr því þá skilaði sjóðurinn 252,5 milljóna hagnaði en hann var að öllu leyti til kominn vegna endurútreiknings er- lendra lána sem sjóðurinn hafði fengið hjá Seðlabanka Íslands. Hefði sá endurútreikningur ekki komið til hefði tap sjóðsins numið 77,4 milljónum króna. Heimamenn kanna rétt sinn Mikil óánægja er meðal margra stofnfjáreigenda sjóðsins í Vest- mannaeyjum. Snýr óánægjan bæði að endurskipulagningu sjóðsins sem slíkri og einnig hvernig Bankasýsla ríkisins hefur haldið um stjórnartaumana frá því að hún kom að málum árið 2010. Er nú unnið að því í hópi stofnfjáreigenda að kanna rétt þeirra og herma traustar heimildir Morgunblaðsins að sú könnun snúi að lagalegum at- riðum, m.a. hvort heimamenn hafi verið leyndir raunverulegri stöðu lánabókar SV í endurreisninni 2010 og einnig hvort lánabókin, einkum sá hluti hennar sem tengist útlán- um á Selfossi, sé jafnslæm og nú er haldið fram. „Sérstaklega eru menn hugsi yfir því hvernig ríkið teymdi heimamenn inn í endur- reisn, hélt þeim utan við það að leiða stjórn hans, siglir nú sjóðnum í þrot og komi svo með ríkisbanka og yfirtaki sjóðinn. Þannig þvær ríkið heimamenn burtu og ræður nú eitt yfir sjóðnum,“ er haft eftir viðmælanda blaðsins. Sparisjóður Vestmannaeyja er að semja við Landsbankann Ljósmynd/Eyjafréttir Bankar Innan skamms mun merki Sparisjóðsins hverfa utan af Bárustíg 15 og merki Landsbankans koma í staðinn.  Heimamenn kanna réttarstöðu sína gagnvart ríkinu og telja sig hafa verið blekkta Sparisjóðurinn í Eyjum » Stofnaður 1942. » Eigið fé sjóðsins var rétt rúmur milljarður um mitt ár 2014. » Skuldir sjóðsins nema tæp- um 11,7 milljörðum króna. » Starfsmenn eru 25 talsins á fimm starfsstöðvum, í Vest- mannaeyjum, á Selfossi, Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík. Vísitala neysluverðs hækkaði meira en spár greiningaraðila höfðu gert ráð fyrir og mældist hækkunin 1,02% á milli mánaða. Greiningar- deildir bankanna höfðu spáð 0,6- 0,9% hækkun vísitölu neysluverðsins í mars sem átti að samsvara 1,2-1,4% ársverðbólgu. En með þessari hækk- un á vísistölu neysluverðs tvöfaldast ársverðbólgan og verður 1,6% í mars í samanburði við 0,8% í febrúar. Frávikin frá spám eru helst rakin til meiri hækkunar á fötum og skóm, hækkunar fasteignaverðs, hækkun- ar eldsneytisverðs og hækkunar flugfargjalda til útlanda. Í greiningu Arion banka kemur fram að fatnaður og skór hækkuðu um 9,1% í mánuðinum og því hafi út- söluáhrifin að miklu leyti gengið til baka frá því í janúar. Húsgögn og heimililsbúnaður hækkuðu minna eða um 0,4% og er verðlag á hús- gögnum enn nokkru lægra en í jan- úar. Húsnæðisverð um land allt hækkaði um 1,7% í mánuðinum og er það fjórði mánuðurinn í röð sem hús- næðisverð hækkar myndarlega segir í greiningunni. Greidd húsaleiga hækkar einnig í mánuðinum, flugfar- gjöld til útlanda hækkuðu um 8,8% en flugfargjöld innanlands lækkuðu um 19,7%. Verð á bensíni og olíum hækkaði um 5,8%. Aðrir liðir eru sagðir hafa minni áhrif á vísitölu neysluverðs fyrir marsmælinguna. Á næstu mánuðum gerir Arion banki ráð fyrir frekar hóflegum hækkunum á vísitölu neysluverðs og að eldsneyti og gengi krónunnar haldist að mestu leyti óbreytt og árs- taktur verðbólgunnar haldist í kring- um 1,6% fram í júní. Að mati greiningardeildar Ís- landsbanka eru horfur á hóflegri hækkun vísitölu neysluverðs allra næstu mánuði og að 12 mánaða verð- bólgutakturinn verði í kringum nú- verandi verðbólgustig. Er búist við að gengi krónunnar breytist lítið á næstunni en einn stærsti óvissulið- urinn til skemmri tíma litið sé verðþróun á íbúðarhúsnæði. Í bráða- birgðaspá Íslandsbanka kemur fram að vísitala neysluverðs hækki um 0,2% í apríl, 0,2% í maí og 0,3% í júní. Verðbólga verði því samkvæmt spánni 1,6% í júní. Morgunblaðið/Eggert Verð Hækkun á fatnaði og skóm hefur áhrif á vísitölu neysluverðs. Meiri verðbólga en spáð hafði verið  Verð á fötum og skóm hækkar um 9,1% Laugavegi 34 101 Reykjavík | Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Jakkaföt frá 32.000,- Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.