Morgunblaðið - 28.03.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.03.2015, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Nærri helmingur launþega er með laun á bilinu 400-700 þúsund krónur ef miðað er við niðurstöður greiningar sem PwC hefur gert á launum yfir 16.000 launþega á Ís- landi. 29% eru með laun allt að 400 þúsundum og 17% eru með laun á bilinu 700 þúsund til milljón krónur á mánuði. Samkvæmt greiningunni eru 7,1% með milljón krónur eða meira á mánuði. Meðaltal launa allra einstaklinga í greiningunni reyndist vera 570.719 krónur sem er 2,5% hærra en í mælingunni árið á undan þegar meðaltal heildarlauna mældist 556.964 krónur. Hækkun heildarlauna á milli ára er 0,7 prósentustigum hærra en verðbólga mældist, þ.e. launin hækkuðu meira en verðlag. Í greiningunni kemur fram að hlutfall aukagreiðslna og hlunninda í heildarlaunum er stöðugt á milli ára eða 9-10%. Hlutfall aukagreiðslna er hærra hjá fyrirtækjum sem greiða lág grunnlaun. PwC hefur gert sambærilega könnun síð- ustu ár og byggist greiningin á gögnum sem koma beint úr launakerfum bæði einkafyrirtækja og opinberra stofnana. Um 7% með milljón krónur eða meira í mánaðarlaun Markaðslaun á Íslandi – dreifing launa Heimild: PwC. 16.137 launþegar á Íslandi 50% 45% 40% 35% 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% 100-399 þúsund 700-999 þúsund 1.000-1.499 þúsund 1.500 + þúsund 400-699 þúsund 46,8% 16,7% 5,5% 1,6% 29,4% CCP hefur ákveðið að nýta sér rétt til innköllunar á skuldabréfum að upphæð 20 milljónir dollara. Sig- urður Stefánsson, fjármálastjóri CCP, sagði í samtali við Morg- unblaðið að þetta væri liður í end- urfjármögnun fyrirtækisins en til viðbótar við skuldabréfin verður lán að upphæð 5,4 milljónir dollara einnig endurfjármagnað. Sigurður sagði að endur- fjármögnunin væri unnin í sam- starfi við Arion banka og að umtals- vert betri vaxtakjör hefðu boðist sem varð til þess að ákvörðun var tekin um endurfjármögnunina. CCP mun greiða bréfin í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins þar sem skuldabréfaeigendur hafa 30 daga frá tilkynningu um inn- köllun til að tilkynna hvort þeir nýti sér breytirétt. Bréfin, sem eru skráð í Nasdaq OMX Iceland hf., verða afskráð að lokinni innköllun. CCP Endurfjármögnun á 25,4 millj- ónum dollara stendur fyrir dyrum. Endur- fjármögn- un CCP Íbúðalánasjóður (ÍLS) skilaði 3,4 milljarða króna hagnaði á síðasta ári. Þetta er í fyrsta sinn í sjö ár sem sjóðurinn skilar jákvæðri af- komu. Það þýðir að ríkissjóður þarf ekki að leggja ÍLS til eigið fé vegna reksturs á síðastliðnu ári þrátt fyrir heimild í fjárlögum. Rekstrarkostnaður sjóðsins lækkaði um 113 milljónir á milli ára eða um 5,2%. Þá hækkaði eiginfjár- hlutfall hans í 4,5% og nær það nú lögbundnu lágmarki, sem var 3,4% í upphafi árs. Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði kemur fram að virðisrýrnun vegna tapsatburða í efnahagshruninu hafi verið bakfærð. Jafnframt kemur þar fram að vanskil heimila hafi minnkað umtalsvert á árinu 2014 og vísbendingar séu um að sú þróun muni halda áfram. Loksins hagnaður hjá ÍLS Bankas t ræt i 7 er samsta r f sað i l i Ga l l e r í L i s t . einstakt eitthvað alveg einstakar gjafir fyrir einstök tækifæri handa einstöku fólki Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Skipholt 50a | S 581 4020 | www.galleril ist.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.