Morgunblaðið - 28.03.2015, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Útför Ríkharðs þriðja Englandskonungs fór fram á
fimmtudaginn í Leicester, tæpum 530 árum eftir andlát
hans. Lík hans fannst á ný árið 2012 þegar verið var að
grafa fyrir bílastæðum, og tókst að staðfesta með DNA-
prófi að um konunginn væri að ræða. Ríkharður þykir
með óvinsælli konungum í sögu Bretlands.
AFP
Ríkharður III borinn til grafar
Nígeríski herinn tilkynnti að bærinn
Gwoza hefði verið tekinn á ný, en
þar hafa hryðjuverkasamtökin Boko
Haram haft sínar helstu bækistöðv-
ar, og lýstu þaðan yfir kalífadæmi á
síðasta ári.
Samkvæmt heimildum frá varn-
armálaráðuneyti landsins náðist
mikið magn af skotfærum og vopn-
um í bænum, og var leit hafin í ná-
grenninu að liðsmönnum samtak-
anna.
Einnig fannst fjöldi líka í bænum,
en heimildir herma að yfirstjórn
samtakanna hafi fyrirskipað fjölda-
morð á konum sem liðsmenn sam-
takanna höfðu tekið sér fyrir eig-
inkonur.
Fregnirnar koma á besta tíma
fyrir Goodluck Jonathan, forseta
Nígeríu, en forsetakjör fer fram í
landinu í dag. Kosningarnar áttu að
fara fram í febrúar, en var frestað
vegna hættunnar frá Boko Haram.
Höfuð-
stöðvarn-
ar teknar
Boko Haram á
flótta í Nígeríu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Saksóknarar í Þýskalandi greindu
frá því í gær að Andreas Lubitz, að-
stoðarflugmaðurinn sem talinn er
hafa grandað flugvél Germanwings-
flugfélagsins vísvitandi á þriðjudag-
inn, hefði leynt veikindum sínum fyr-
ir yfirmönnum sínum. Við húsleit á
heimili Lubitz í Düsseldorf fundust
gögn frá læknum sem gáfu til kynna
að hann hefði gengist undir læknis-
meðferð vegna þunglyndis.
Þar á meðal voru læknisvottorð
þar sem Lubitz var sagt að fara ekki
til vinnu, og náði eitt þeirra til þriðju-
dagsins, þegar flugslysið varð.
Að sögn saksóknaranna fannst
ekkert sjálfsvígsbréf eða játning, né
heldur neitt sem benti til þess að Lu-
bitz hefði haft pólitískar eða trúar-
legar ástæður fyrir athæfi sínu.
Vara við ályktunum
Bresku geðlæknasamtökin sendu í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem var-
að var við því að fólk hrapaði að
ályktunum, um þunglyndi meðal
flugmanna, í kjölfar þessa harmleiks.
Bentu samtökin á að fjölmargir
þjáðust af þeim sjúkdómi, en að með
réttri meðferð væri yfirleitt hægt að
lækna hann. Nauðsynlegt væri hins
vegar að gera fólki auðveldara að
leita sér réttrar meðferðar.
Lubitz leyndi veikindum sínum
Læknisvottorð fundust á heimili flugmannsins Átti ekki að vinna þennan dag
AFP
Til minningar Reistur var minnisvarði um fórnarlömb flugslyssins í gær og
komu ættingjar og aðstandendur að og lögðu blóm að honum.
Arabaríki, með Sádí-Arabíu í far-
arbroddi, héldu áfram loftárásum
sínum á Jemen í gær, annan daginn í
röð. Sádí-Arabar lofuðu því að þeir
myndu gera hvað sem þyrfti til þess
að tryggja sess Abedrabbo Mansour
Hadi, forseta Jemens, en hann hefur
nú leitað hælis í Sádí-Arabíu.
Sádí-Arabar sökuðu Írana í leið-
inni um að hafa ýtt undir uppreisn
svonefndra Huthi-manna, en þeir
eru sjíar líkt og Íranar.
Tíu ríki taka nú þátt í loftárás-
unum á Huthi-menn, og segja fjöl-
miðlar í Sádí-Arabíu að Persaflóa-
ríkin Kúveit, Sameinuðu arabísku
furstadæmin, Katar og Bahrain hafi
öll lagt til flugvélar. Þá mun sádí-
arabíski herinn vera í viðbragðs-
stöðu við landamæri Jemen með um
150.000 manns.
Hafa ekki áhrif á viðræður
Íranar hafa brugðist illa við loft-
árásunum og sagt þær vera brot á
fullveldi Jemens, en Bandaríkin hafa
stutt við aðgerðir Sádí-Araba. Munu
þær þó ekki hafa nein áhrif á yfir-
standandi viðræður um kjarn-
orkuvopnaáætlun Írans.
AFP
Gráir fyrir járnum Skriðdreki uppreisnarmanna keyrir um götur Aden.
Loftárásir halda
áfram í Jemen
Hæstiréttur Ítal-
íu hefur sýknað
Amöndu Knox af
morðinu á hinni
bresku Meredith
Kercher, sem
myrt var í Per-
ugia árið 2007.
Knox hafði
ásamt fyrver-
andi kærasta
sínum, Raffaele Sollecito, verið
dæmd fyrir morðið í undirrétti á
Ítalíu og hlaut þá 28 og hálfs árs
fangelsi en Sollecito fékk 25 ára
dóm.
Fyrir tæpu ári krafðist Sollecito
þess að mál hans yrði tekið fyrir
að nýju og það yrði skilið frá máli
Knox. Nú hefur hæstiréttur Ítalíu
komist að þeirri niðurstöðu að
sýkna beri Knox og verður því
ekkert af því að ítölsk stjórnvöld
óski eftir framsali á henni en hún
er búsett í Bandaríkjunum.
Maður að nafni Rudy Guede sit-
ur inni fyrir morðið á Kercher en
bæði fingraför og DNA-sýni úr
honum fundust á morðvettvangi.
Saksóknari í málinu hélt því þó
fram að Knox og Sollecito væru
vitorðsmenn Guedes.
ÍTALÍA
Amanda Knox sýkn-
uð í hæstarétti
Amanda Knox
Sænska nóbels-
skáldið Tomas
Tranströmer lést
á fimmtudaginn,
83 ára að aldri,
eftir skammvinn
veikindi.
Tranströmer
hlaut nób-
elsverðlaunin í
bókmenntum árið 2011, en fyrsta
ljóðabók hans kom út árið 1954.
Hann var sálfræðingur að mennt.
Tranströmer fékk heilablóðfall
árið 1990 og orti mörg ljóð um
tengsl fólks við umheiminn.
Tranströmer hlaut margar við-
urkenningar á ferlinum, meðal ann-
ars frá Norðurlandaráði og hin
virtu Neustadt-verðlaun.
SVÍÞJÓÐ
Tomas Tranströmer
látinn, 83 ára
SÖLUAÐILAR:
Reykjavík: Tímadjásn Grímsbæ - Efstalandi 26 s: 553-9260,GÞ skartgripir og úr Bankastræti 12 s: 551-4007,
Gullsmiðurinn í Mjódd s: 567-3550Meba Kringlunni s: 553-1199,Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711,Rhodium
Kringlunni s: 553-1150 Hafnarfjörður: Gullsmiðjan Lækjargötu 34c s: 565-4453 Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-
4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s:
462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiðurAusturvegi 11 s: 482-1433 Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s:481-3333