Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur
Mikið úrval af gjafavöru
fyrir dömur og herra
· Töskur
· Hanskar
· Seðlaveski
· Ferðatöskur
· Tölvutöskur
· Belti
· Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Léttar
ferðatöskur
Kortaveski úr leðri
frá kr. 4.800. Nafngylling kr. 1100.
Tru virtu
ál kortahulstur.
Kr. 7200 Kemur í veg fyrir
skönnun á kortaupplýsingum.
Skartgripaskrín-
Lífstíðareign
Sjá ítarlegar
upplýsingar á
www.drangey.is
Forsetningar eru smáorð sem taka sér oft stöðu með sögn í til-teknu orðasambandi, sbr. syngja fyrir einhvern, tala um ein-hvern. Sé breytt um forsetningu gjörbreytist merkingin:syngja með einhverjum, tala við einhvern. Töluvert er um að
rangt sé farið með föst orðasambönd.
Á netinu eru mörg dæmi um að leitað sé *af einhverjum í stað þess
að leita að viðkomandi. Hugsanlega er um heyrnarvillu að ræða. Mál-
notendur eiga til að ruglast á forsetningunum af og að. Þeim er að
sumu leyti vorkunn vegna þess að stundum er aðeins blæbrigðamunur
á. Til að mynda er forsetningin af í orðasambandinu að hafa gaman af
einhverju en aftur á móti er forsetningin að í orðasambandinu það er
gaman að þessu. Einnig er hent gaman að mönnum og málefnum.
Jafnframt er rétt að segja að gefnu tilefni, eins og fyrirsögnin segir til
um, en hins vegar af þessu tilefni,
af sérstöku tilefni og í tilefni af ein-
hverju.
Forsetningin um er víða rangt
notuð. Í Viðskiptablaðinu í nóv-
ember í fyrra var talað um ólíkar
skoðanir *um hugmynd (orða-
sambandið er að hafa skoðun á ein-
hverju). Þessi málvilla kemur talsvert fyrir í orðræðu og á prenti. Á vef
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja segir að forstjóri nokkur hafi lýst yfir
áhuga *um að nýta aðstöðu. Forstjórinn hefur sem sagt áhuga á að
nýta aðstöðuna; hann er með öðrum orðum áhugasamur um það. Einn-
ig kemur fyrir að talað sé um viðhorf *um eitthvað. Í skýrslu frá
Námsmatsstofnun frá 2009 er til dæmis fjallað um „viðhorf um beina
yfirfærslu þekkingar“ (hvað bein yfirfærsla þekkingar merkir er síðan
annað mál; svarið leynist eflaust í skýrslunni).
Í fyrra var mikið talað um að bjarga íslenska geitastofninum *frá út-
rýmingarhættu. Réttara væri að bjarga honum úr hættu. Hins vegar
væri eðlilegt að bjarga geitunum frá úlfum ef sú hætta væri fyrir
hendi.
Borið hefur á að fólk segist hafa áhyggjur *yfir hinu og þessu. Rugl-
ingur felst í að það er annars vegar áhyggjufullt yfir einhverju en hef-
ur hins vegar áhyggjur af því. Annar ruglingur er þegar talað er um að
menn hafi ekkert *með eitthvað að segja – þeir hafa kannski eitthvað
um það að segja þótt þeir hafi ekkert með það að gera.
Forsetningar geta verið vandasamar. Þegar ég lærði dönsku í fram-
haldsskóla þuldi kennarinn ávallt upp sagnir með viðeigandi forsetn-
ingum og þá einkum þegar forsetningin í dönsku var önnur en í ís-
lensku. Æ síðan man ég hvaða forsetningar fylgja sögnunum, svo sem
vente på (bíða eftir), lede efter (leita að), tale med (tala við), lytte til
(hlusta á). Nú er spurning hvort þörf sé á sömu innrætingu í móð-
urmálskennslu og dönskukennarinn minn viðhafði fyrir allmörgum ár-
um. Fyrir aðra er nærtækast að fletta upp í góðri orðabók og finna
hefðbundin orðasambönd, ef þeir eru í vafa og vilja vanda mál sitt.
,,af” eða ,,af”
þar liggur efinn
Að gefnu tilefni
Tungutak
Eva S. Ólafsdóttir
eva@skyrslur.is
Saga Héðins Unnsteinssonar er saga afreks-manns. Í fyrradag kom hluti þeirrar sögu útá bók sem nefnist Vertu úlfur – Wargus esto– og Héðinn hefur skrifað. Ég hef lesið
margar erlendar bækur um geðveiki og líf fólks sem
hefur þjáðst af geðsjúkdómum. Ég hef aldrei lesið
bók sem lýsir jafn vel hugarheimi geðsjúks manns og
því sem bærist hið innra með honum, þegar sjúkdóm-
urinn sækir hvað fastast á.
Að því leyti til er þessi bók nánast einstök.
Héðinn var 19 ára gamall, þegar hann kynntist
fyrst þessum förunaut sínum. Á þeim rúmum ald-
arfjórðungi, sem síðan er liðinn hefur hann barizt við
alvarlegan og þungbæran sjúkdóm og haft sigur með
því að fara ótroðnar slóðir.
Hann hefur lokið háskólanámi, starfað hjá al-
þjóðastofnun, gerzt forystumaður ásamt nokkrum
öðrum í grasrótarhreyfingu fólks, sem hefur breytt
þjóðfélagsumræðum á Íslandi um geðsjúkdóma, upp-
lifað nauðungarvistun á geðdeild, barizt við geðheil-
brigðiskerfið um þau sjálfsögðu mannréttindi að
mega hafa skoðun en fá lækn-
ishjálp, þótt skoðanir hans hafi
ekki fallið í kramið hjá „kerfinu“
og gerzt lykilmaður í því að
breyta löggjöf á Íslandi í þágu
hagsmuna geðsjúkra. Og þar að
auki haslað sér völl í stjórnkerfinu
sem sérfræðingur í stefnumótun.
Sá sem nær þessum árangri á
sama tíma og hann berzt á köflum
við illvígan sjúkdóm er afreksmaður.
Héðinn segir í bók sinni:
„Það er eitthvað við úlfa sem heillar mig. Þeir eru
hópsálir en hver og einn hefur sín sérkenni. Þeir eiga
sér einungis einn inn- og útgang úr bæli sínu, ólíkt
refnum sem býr til margar leiðir í greni sitt …
Næstu dagar liðu hratt í rugli og ofurskynjunum. Ég
silaðist um gangana með derhúfu, sólgleraugu og í
hettupeysu. Ég tengdi hettuna úlfunum, ég var einn
þeirra. Var úlfur. Hinir geðsjúku eru, líkt og úlfarnir,
einangraðir með sínar skapandi, oft „öðruvísi“ hugs-
anir, sem erfitt er að útskýra með sniðmáti hins
venjulega, ef það er þá til. Þeir lifa á jaðri samfélags-
ins í dulúð en þrá að falla í fjöldann, þrá eins og aðrir
að vera hluti af heild.“
Þessi áhugi á úlfum, sem skýrir bókarheitið, er at-
hyglisverður. Jafnaldra Héðins, hinn heimskunni
franski píanóleikari, Helen Grimaud, hefur líka áhuga
á úlfum og sinnir þeim jöfnum höndum með mús-
íkinni. Reyndar uplifir hún tónlist líka sem liti.
„Ég þoldi enga birtu. Orðin liðuðust út úr mér,
hægt eins og sérhljóðarnir ætluðu ekki að ná að
tengjast hver öðrum í eyðimörk af samhljóðum. Orð-
in voru vart skiljanleg … Blóðrauð birta síðustu
strengja sólar lak inn um eldhúsgluggann, þar sem
ég lá nakinn á gólfinu. Þykka flauelsteppið grúfði yfir
heilanum, starfsemin var deyfð, öll skynjun ofurnæm.
Ég gat ekki meira, gat ekki lifað við þetta. Ég var
fársjúkur og einn með afar takmarkaða sam-
skiptagetu við umheiminn.
Höfðuðið lét ekki að stjórn …
… Ég reisti mig upp en ég komst ekki út, íbúðin
var orðin fangelsi.“
Eitt af því sem Héðinn Unnsteinsson hefur unnið
að undanfarin ár er að útrýma þeim vinnubrögðum
að aðstandendur geðsjúkra séu knúnir til að hafa for-
göngu um nauðungarvistun á geðdeild. Það eitt og
sér er stórmál. Til eru fjölskyldur sem að læknisráði
hafa haft forgöngu um nauðungarvistun sinna nán-
ustu. Afleiðingarnar eru verri en sjúkdómurinn sjálf-
ur. Það mun taka margar kynslóðir í þeim fjöl-
skyldum að sárin grói.
Héðinn lýsir eigin nauðungarvistun á geðdeild með
þessum hætti í bók sinni:
„Ég lagðist sjálfviljugur niður á
mottuna í holinu. Ég var grátandi
áður en til átaka kom. „Þið vitið
ekki hvað þið eruð að gera.“ Þrátt
fyrir allan kraftinn hafði ég innsæi
til þess að velja að berjast ekki á
móti … Ég lá þarna sem lamaður
með tárin í augunum. Svívirtur og
niðurlægður.“
Þessa lífsreynslu hefur Héðinn
nýtt til þess að vinna að því að aðrar fjölskyldur
þurfi ekki að upplifa það sama.
Samskipti Héðins Unnsteinssonar við geðheilbrigð-
iskerfið vegna þess að honum var synjað um innlögn
á geðdeildina á Akureyri vegna skoðana sem hann
hafði sett fram eru kapítuli út af fyrir sig. Hann rakti
þá sögu í Kastljósi sl. miðvikudagskvöld. Kvöldið eft-
ir, á fimmtudagskvöld, má segja að hann hafi unnið
fullan sigur, þegar nýr landlæknir tók í öllum meg-
inatriðum undir sjónarmið hans í samtali við Kast-
ljós.
En málið allt er lærdómsríkt, það sýnir hvernig
„kerfið“ ver sig og það sýnir, þegar grannt er skoðað,
því miður, samstöðu fagstétta, sem engar forsendur
eru fyrir.
Bók Héðins Unnsteinssonar ætti að vera skyldu-
lesning fyrir alla sem starfa að geðheilbrigðismálum,
bæði lækna, hjúkrunarfræðinga og aðra starfsmenn á
geðdeildum svo og þá sem vinna að þessum mála-
flokki á öðrum sviðum í heilbrigðiskerfinu vegna þess
fyrst og fremst að hún veitir þessu fólki ómetanlega
innsýn í hugarheim sjúklinganna, innsýn sem þeir í
fæstum tilvikum geta veitt sjálfir.
Hún auðveldar aðstandendum geðsjúkra að skilja
hvað veldur háttsemi þeirra og getur því með þeim
hætti lægt öldur sem stundum rísa hátt á heimilum
og í fjölskyldum þeirra sem eru að glíma við þessa
sjúkdóma.
Vertu úlfur – Wargus esto – er merkilegt framlag
til umbóta í geðheilbrigðismálum á Íslandi.
Hinir geðsjúku og úlfarnir
Viðbrögð nýs landlæknis
tryggðu Héðni Unnsteins-
syni fullan sigur í átökum
við geðheilbrigðiskerfið
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Menn kunna að segja að Jón Sig-urðsson, leiðtogi sjálfstæð-
isbaráttunnar, hafi verið óbilgjarn
gagnvart Dönum. Þegar stjórn-
skipan Dana var í deiglu 1848, setti
Jón fram þá kenningu að hún breytti
engu fyrir Íslendinga. Þeir hefðu
gert sáttmála við konung 1262 þar
sem kveðið væri á um réttindi þeirra
og skyldur. Þegar Íslendingar hefðu
játast undir einveldi 1662 hefði sátt-
málinn frá 1262 fallið úr gildi en
hann tæki aftur gildi um leið og kon-
ungur afsalaði sér einveldi. Ísland
væri þess vegna fullvalda land í kon-
ungssambandi við Danmörku.
Danir tóku rökum Jóns fjarri.
Hann sat hins vegar í nefnd um fjár-
hagslegan aðskilnað Danmerkur og
Íslands 1862. Aðrir nefndarmenn
töldu eðlilegt að ríkissjóður Dana
legði Íslendingum til 42 þúsund rík-
isdali á ári. En Jóni reiknaðist til að
Danir skulduðu Íslendingum stórfé
vegna einokunarverslunarinnar og
upptöku eigna á Íslandi svo að þeir
ættu að greiða Íslendingum 100 þús-
und ríkisdali árlega þegar dregið
hefði verið frá framlag til konungs
og æðstu stjórnar.
Sumum kann að finnast reiknings-
krafa Jóns jafnlangsótt og skírskot-
unin í sáttmálann frá 1262. En hvers
vegna bar jafnraunsær maður og
Jón fram slík rök? Vegna þess að
hann var að reyna að efla sjálfsvirð-
ingu sinnar fámennu, fátæku þjóðar
og koma fram af reisn út á við. Ís-
lendingar áttu ekki að leggjast á
hnén og biðja auðmjúklega um það
sem þeir þurftu, heldur standa á
rétti sínum.
Þetta vissu Ólafur Thors og
Bjarni Benediktsson þegar þeir
sömdu við Bandaríkjamenn um her-
vernd. Hið sama var ekki að segja
um þá sem sömdu við Breta í Ice-
save-deilunni. Þeir fóru ekki að for-
dæmi Jóns Sigurðssonar enda runnu
öll þeirra vötn til Dýrafjarðar.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Var Jón Sigurðsson
óbilgjarn?