Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 42

Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Guðleifur Rafn Einarsson er nýkominn af sjónum en hann ermatsmaður á frystitogaranum Þerney RE1 sem HB Grandigerir út. „Þetta er langstærsti túr sem ég hef verið á, bæði í tonnafjölda upp úr sjó, sem voru um 1.270, og í aflaverðmætum en verð á fiski er almennt mjög hátt. Uppistaðan er þorskur en við vor- um að veiða á Lófóten-svæðinu sem er eitt stærsta hrygningarsvæði þorsks í heimi. Við vorum slétta 40 daga á sjó, en það er þakið á út- haldinu hjá okkur. Það er í lögum að hver túr má ekki vera lengri en 40 dagar. Við fórum aldrei í land en norska fjallasýnin blasti við okkur nær allan tímann.“ Guðleifur býr með Christel Björgu Rúdolfsdóttur, kennara í Grundaskóla á Akranesi, ásamt tveim yngri börnum hennar, Hervari og Elviru Öglu. „Elsta dóttir Christelar, Margrét Saga, var að taka þátt í Idolinu í undanúrslitunum síðasta sunnudag með frumsamið lag.“ Þerney er á leið í slipp og því er langt frí fram undan hjá Guðleifi. „Ég fer ekkert á sjó fyrr en eftir sjómannadag, en maður er aðeins búinn að skipuleggja fríið. Við Christel ætlum t.d. að fara til London í maí að sjá Paul McCartney í O2-höllinni en tónlist og gítarspil er aðaláhugamál mitt. Ég ligg núna í Bob Dylan, er að grúska í plöt- unni Blood on the Tracks og tek gítarinn oftast með mér út á sjó. Svo hef ég gaman af að lesa og er alltaf með einhverja góða bók á náttborðinu.“ Guðleifur ætlar að bjóða vinum sínum í mat í kvöld, eða eins og hann kallar það: Fiskisúpu-kvöldverðarhvítvínsboð með vínyl- slagsíðu. Guðleifur Rafn Einarsson er 43 ára í dag Í Færeyjum Guðleifur og Christel í heimsókn hjá ættingjum hennar. Langstærsti túrinn Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykdal Magnússon er áttræður í dag, laugardaginn 28. mars. Hann heldur upp á daginn að heiman með sínum nánustu. Árnað heilla 80 ára Reykjavík Kristjón Helgi Ingimarsson fæddist 28. mars 2014 kl. 15.23. Hann vó 3.970 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Ingimar Helgason og Halldóra St. Kristjónsdóttir. Nýr borgari A nna fæddist á Hólum í Hornafirði 28.3. 1955 en flutti ársgömul með for- eldrum sínum að Selja- völlum í sömu sveit þar sem þau stunduðu síðan búskap og hún ólst upp við leik og hefðbundin sveitarstörf: „Ég átti yndislega æsku og fékk gott uppeldi sem hefur komið sér afar vel í lífsbaráttunni. Þegar upp er staðið hefur það verið mitt besta veganesti.“ Anna gekk í Nesjaskóla. Á þeim árum var enginn gagnfræðaskóli á Hornafirði og fór hún því í til Vest- mannaeyja og dvaldi þar í þrjá vet- ur, við nám í Gagnfræðaskólann þar: „Unglingauppeldið fór að miklu leyti fram í Eyjum, hjá Jóni frænda mín- um og Steinunni konu hans. Það voru líka mjög góð ár og síðan þá eiga Vestmannaeyjar og fjölskyldan mín þar sérstakan stað í hjartanu.“ Síðan lá leið Önnu í Fósturskóla Ís- lands en þaðan útskrifaðist hún 1976. Anna hefur verið leikskóla- kennari og leikskólastjóri, lengst af á Hornafirði, og átti þátt í því ásamt fleirum að móta starf Leikskólans í Lönguhólum er hann tók til starfa. Einnig hefur hún fengist við kennslu yngri barna, umönnun aldraðra, fiskvinnslu og ýmislegt fleira. Nú er hún forstöðumaður Sambýlisins Hólabrekku sem hún starfrækir ásamt eiginmanni sínum Ara Guðna Hannessyni, á samnefndu býli þeirra hjóna. Þar reka þau einnig sauðfjárbú og rækta grænmeti. Helsta áhugamál Önnu er starfið, en í tengslum við það hefur hún tek- ið fjölmörg námskeið auk þess að njóta handleiðslu og ráðgjafar hjá fagfólki: „Við hjónin höfum mótað þetta starf, með þeirra hjálp. Við reynum að hafa það í stöðugri fram- för og njótum þess vel að vinna sam- an. Auk þess rekum við sauðfjárbú og þar hafa skjólstæðingar okkar Anna Egilsdóttir, forstöðumaður og bóndi á Hólabrekku – 60 ára Langmæðgur Anna Egilsdóttir og Ari Guðni, maður hennar, með elsta barnabarninu, Steinunni Önnu Egilsdóttur. Við ræktun lýðs og lands Rölt um á Ísafirði Anna með systur sinni og móður, Valgerði og Halldóru. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Fastus ehf. • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is FA S TU S _H _0 9 .0 3 .1 5 VINNUSKÓR Hágæða vinnuskór fyrir fagfólk á heilbrigðisstofnunum og í matvælaiðnaði á tilboði í mars 20% AFSLÁTTUR Í MARS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.