Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 43
verkefni. Sauðburðurinn og smala- tíminn er það skemmtilegasta við búskapinn.“ Auk þessa eru þau hjón með litla útiræktun á lífrænu grænmeti, sem skapar skjólstæðingunum verkefni yfir sumartímann. Þau hafa einnig komið sér upp vinnuaðstöðu til að vinna úr grænmetinu. Markmiðið er að skapa markaðshæfan vinnustað fyrir sambýlið. „Ræktunin er líka mjög skemmti- legt viðfangsefni, ekki síst vegna þess að fræ og ræktunargen koma frá föðurafa mínum og hafa lengi verið ráðandi í ræktun fjölskyld- unnar. Það á vel við mig að fara ekki mjög troðnar slóðir, halda mig við sérstöðuna og prófa eitthvað nýtt.“ Í frístundum er börnin og barna- börnin númer eitt hjá Önnu: „Ég á orðið stóran flottan hóp afkomenda og ég nýt samverunnar með þeim. Söngur og dans eru líka í miklu uppáhaldi en ég er félagi í Samkór Hornafjarðar, sem er líka kirkjukór Bjarnanessóknar. Mér líkar vel að syngja í kirkjum, enda trúuð og fer oft með bænirnar mínar. Samkórinn er afar skemmtilegur félagsskapur. Loks les ég töluvert og hef alltaf haft gaman af leiklist. Fjölskylda Eiginmaður Önnu er Ari Guðni Hannesson, f. 16.2. 1960, frá Hóla- brekku. Foreldrar hans: Hannes Kristjánsson, f. 25.1. 1917, d. 14.5. 2003, og Lilja Aradóttir, f. 23.7. 1922. Fyrrverandi maður Önnu er Vign- ir Sveinbjörn Hjaltason, f 1.1. 1951, múrarameistari. Börn Önnu og Vignis Sveinbjörns eru Egill, f. 5.2. 1977, sérfræðingur í starfrænni miðlun og lífsstíls- ráðgjafi, en sambýliskona hans er Bryndís Bragadóttir, leiðbeinandi.á leikskóla og lífsstílsráðgjafi, en börn Egils og Klöru Árnadóttir eru Stein- unn Anna, og Saga, og sonur Egils og Bryndísar Bragadóttur er Bragi og dóttir Bryndísar er Júlía Sól; Hjalti, f. 24.1. 1978, stjórnmálafræð- ingur en eiginkona hans er Guðrún Ingólfsdóttir hagfræðingur og eru börn þeirra Salvör Dalla, Siggerður Egla, Kári og Katla; Ólafur Páll, f. 3.10. 1984, lögmaður ern sambýlis- kona hans er Þorbjörg Inga Þor- steinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lögfræðingur, og er dóttir þeirra Ragna Maren, en synir Ólafs og Unnar Arnarsdóttir eru Arnar Hrafn og Vignir Valur. Fóstursonur Önnu og Ara Guðna er Guðjón Bjarni Óskarsson, f. 12.7. 1986, vélamaður. Systkini Önnu eru Valgerður, f. 13.12. 1956; Hjalti, f. 11.4. 1960, Ei- ríkur, f. 13.7. 1962, öll búsett á Selja- völlum. Foreldrar Önnu: Egill Jónsson, f. 14.12. 1930, d. 12.7. 2008, bóndi, ráðunautur og alþingismaður á Seljavöllum í Hornafirði, og Hall- dóra Hjaltadóttir, f. 3.1. 1929, hús- freyja þar. Anna verður að heiman um af- mælishelgina, en miðvikudaginn 1.4. býður hún í vöfflukaffi á heimili vin- konu sinnar á Kirkjubraut 15 á Hornafirði. Úr frændgarði Önnu Egilsdóttur Anna Egilsdóttir Sigurborg Sigurðardóttir húsfr. í Hólum Þorleifur Jónsson alþm. og b. í Hólum, systursonur Benedikts á Hala, afa Þórbergs Þórðarsonar Anna Þórunn Vilborg Þorleifsdóttir húsfr. í Hólum Hjalti Jónsson smiður og b. í Hólum í Hornafirði Halldóra Hjaltadóttir húsfr. á Seljavöllum Halldóra Björnsdóttir húsfr. í Hoffelli Jón Guðmundssson b. og söðlasmiður í Hoffelli Jón Þorleifsson listmálari Páll Þorleifsson prófastur á Skinnastað Sigurður Pálsson skáld og rithöfundur Sigurborg Hjaltadóttir bankastarfsm. Sigurður Hjaltason fyrrv. sveitarstjóri á Höfn Jón Hjaltason lögfr. í Eyjum Hallgerður Jónsdóttir húsfr. á Miðskeri Björg Jónsdóttir húsfr. á Meðalfelli Anna Jónsdóttir húsfr. á Hlöðum í Hörgárdal Unnur Jónsdóttir húsfr. á Djúpavogi Ingibjörg Jónsdóttir húsfr. á Grænahrauni Hanna Jónsdóttir húsfr. á Þinganesi Droplaug Jónsdóttir húsfr. á Höfn Valgerður Sigurðardóttir húsfr. í Hoffelli, af ætt Jóns Eiríkssonar konferensráðs Guðmundur Jónsson, kaupm. og b. í Hoffelli, af ætt Þórbergs Þórðarsonar Halldóra Guðmundsdóttir húsfr. á Akurnesi Jón Jónsson Mamlquist b. og kennari á Akurnesi og í Hornafirði Egill Jónsson b., ráðunautur og alþm. á Seljavöllum Björg Sveinsdóttir húsfr., bróðurdóttir Péturs, langafa Eðvalds, föður Guðmundar Malmquist, fyrrv. framkv.stj. Byggðastofnunar Jón Pétursson b. á Kleifarstekk og Skriðu í Breiðdal, af Selkotsætt ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Barði fæddist á Efri-Hólum íPresthólahreppi 28.3. 1922,sonur Friðriks Sæmunds- sonar, bónda þar, og k.h., Guðrúnar Halldórsdóttur ljósmóður. Meðal föðursystkina Barða var Torfi, langafi Höskuldar Þráins- sonar prófessors. Friðrik var sonur Sæmundar, b. í Narfastaðseli Jóns- sonar, b. á Höskuldsstöðum, bróður Jóhannesar, langafa Salome, fyrrv. alþingisforseta og Sigurðar, fyrrv. ríkisféhirðis Þorkelsbarna. Í móðurætt Friðriks var hann þremenningur við Benedikt Sveins- sonar, alþm. og ritstjóra, föður Bjarna forsætisráðherra. Guðrún, móðir Barða, var af Hraunkotsætt. Eftirlifandi eiginkona Barða er Þuríður Þorsteinsdóttir og eign- uðust þau þrjú börn. Barði lauk stúdentsprófi frá MA 1943, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1949 og öðlaðist hrl-réttindi 1966. Að loknu lögfræðiprófi hóf hann störf hjá VSÍ og starfaði þar allan sinn starfsferil, var þar skrif- stofustjóri, framkvæmdastjóri samninga- og vinnuréttarsviðs og lögmaður VSÍ. Barði gegndi ótal trúnaðar- störfum, sat m.a.í stjórn Orators, var formaður Stúdentafélags HÍ, formaður Félags Þingeyinga í Reykjavík, sat í stjórn Landsmála- félagsins Varðar, var formaður Stúdentafélags Reykjavíkur, sat í stjórn Lífeyrissjóðs verslunar- manna, var formaður Stangaveiði- félags Reykjavíkur, sat í stjórn og framkvæmdastjórn Sambands al- mennu lífeyrissjóðanna, var varafor- maður Félags eldri borgara í Reykjavík, stjórnarformaður Ís- lenska járnblendifélagsins og sat í stjórn Samskipa. Barði var heiðarlegur og vel virt- ur af verkalýðsforystunni, ekki síður en sínum mönnum í VSÍ. Var ein- hvern tíma haft eftir Eðvarð Sig- urðssyni, formanni Dagsbrúnar, að hann treysti Barða betur en sjálfum sér. Barði fór ekki í manngrein- arálit. Hann var ljúfur og glaðsinna í viðmóti, hrókur fagnaðar á góðri stund, vinamargur, vinsæll, víðles- inn og afbragðs sögumaður. Barði lést 22.4. 2014. Merkir Íslendingar Barði Friðriksson Laugardagur 95 ára Ingveldur Anna Ingvarsdóttir 90 ára Þorkell Magnússon 85 ára Hjördís Jónsdóttir Þórdís Jónsdóttir 80 ára Ásthildur B. Cates Guðni Reykdal Magnússon Hermann Sæberg Ágústs- son Kristín Erla Albertsdóttir 75 ára Anna Júlía Óskarsdóttir Ásta Guðmundsdóttir 70 ára Aðalbjörg Elísabet Waage Bára Brynjólfsdóttir Bjarni Bjarnason Björn Hafsteinsson Elfa Guðmundsdóttir Grétar Pálsson Kristrún Gunnlaugsdóttir Örn Einarsson 60 ára Aðalheiður Ósk Valsdóttir Anna María Hilmarsdóttir Auður Sigrún Hrólfsdóttir Fjóla Vatnsdal Reynisdóttir Hannes Þorbjörn Friðriksson Martha Valþrúður Finnsdóttir Ólafía Margrét Guðmundsdóttir Ragnheiður Guðjónsdóttir Ragnhildur Sigmundsdóttir Victor Daniel G. Magnússon 50 ára Einar Jónsson Heimir Björgvinsson Helga Björg Guðmundsdóttir Jóhann Kristján Halldórsson Marta Lauritzdóttir Jörgensen Málfríður Sigurhansdóttir Ólafía Eyrún Sigurðardóttir Ómar Bjarki Kristjánsson Óskar Almar Guðmundsson Óskar Guðmundsson Una Erlingsdóttir Unnur Emanúelsdóttir Þóra Hrólfsdóttir 40 ára Aneta Barbara Rozkrut Bragi Páll Bragason Elena Makeeva Eva Hrund S. Kjerulf Gale Soka Gnarta Garðar Þorsteinsson Guðbjörg Guðný Grétarsdóttir Karl Heiðar Hilmarsson Laufey Ásgrímsdóttir Ljósbjörg Ósk Aðalsteinsdóttir Monika Los Ragnar Arngrímsson Sigurbjörg Ásmundsdóttir Sigurður Grétar Kristjánsson Sóley Eva Gústafsdóttir 30 ára Aliz Lukacs Bartosz Jan Wójcik Brynhildur Diego Kolbeinsdóttir Einar Margeir Kristinsson Einar Örn Þórðarson Erla Dögg Sigurðardóttir Inga Rán Gunnarsdóttir Jónína Lilja Þórarinsdóttir Margeir Trausti Frímannsson Rafal Terentiuk Rajna Todorovic Sjöfn Sigurbjörnsdóttir Thelma Sif Einarsdóttir Vignir Már Vignisson Sunnudagur 90 ára Eyjólfur Andrésson 85 ára Geirmundur Finnsson Guðborg Einarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Ingibjörg Jónsdóttir Óskar Árni Mar Sesselja Unnur Guðmundsdóttir Sigmar Hannes Ingason Vilborg G. Kristjánsdóttir 80 ára Esther Garðarsdóttir Guðbjörg Jóhanna Vagnsdóttir Soffía Einarsdóttir 75 ára Ásta Karen Magnúsdóttir Steinunn Þórarinsdóttir 70 ára Kristín Aðalsteinsdóttir Sigríður Sif Eiðsdóttir 60 ára Fanney María Stefánsdóttir Guðbjörg Hjartardóttir Guðríður Vilhjálmsdóttir Heiða Björk Reimarsdóttir Hörður Kristjánsson Jóhanna Guðrún Þórðardóttir Lárus Valberg Valbergsson Sjöfn Sigbjörnsdóttir Skúli Þórarinsson Sonja Eyfjörð Skjaldardóttir Sveinn Öfjörð 50 ára Auður Þorkelsdóttir Beata Wladyslawa Kakol Björgvin R. Ragnarsson Erla Guðlaug Sigurjónsdóttir Halldór Bachmann María Kristín Sævarsdóttir Ronie O. Fortugaleza Rosemary Delli Zuani Slawomir Andrezej Gawronski Svava Einarsdóttir Valdimar Helgason Valtýr Björn Thors 40 ára Bjarki Freyr Arnórsson Ívar Jónsson Kristín Halldóra Halldórsdóttir Olga Eremina Skúli Þór Hilmarsson Sunna Guðmundsdóttir Svava Björk Þorláksdóttir 30 ára Anna Dröfn Ágústsdóttir Arnar Geirsson Arnar Þór Bergþórsson Aron Már Bergþórsson Ásdís Elín Smáradóttir Einar Gísli Gunnarsson Ragnheiður Rún Gísladóttir Sara Björg Bjarnadóttir Til hamingju með daginn Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI Það borgar sig að nota það besta! TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagið Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Kúlu- og rúllulegur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.