Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 44

Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Líttu á björtu hliðarnar og gerðu þér sem flest að gamni. Reyndu að tala ekki stanslaust. Fólk tekur alls staðar eftir þér, hver sem ástæðan er. 20. apríl - 20. maí  Naut Lánið leikur við þig og þú átt svo sannarlega skilið að njóta árangurs erfiðis þíns. Gættu að því hvert hvatvísin leiðir þig í dag því það er hætt við ruglingi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samstarfsmenn þínir eru hressir og hjálpsamir í dag. Vertu vakandi fyrir því sem gerist í kringum þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Dagskrá þín krefst þess að þú gerir margt í einu, en samt ekki alltaf. Fólk er já- kvætt gagnvart þér og þú sýnir því vináttu á móti. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hlustaðu vandlega á þá ráðgjöf sem þú færð og berðu hana saman við það sem þér finnst sjálfum. Ekkert er dýrmætara en heilsan svo þú skalt varast að ofbjóða þér til sálar eða líkama. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vertu sjálfum þér trúr og gerðu þér ekki upp skoðanir á mönnum og málefnum. Lykillinn að samvinnu er að uppgötva það sem hvetur alla til dáða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur lofað svo upp í ermina á þér að þú verður að sætta þig við að komast hvorki lönd né strönd fyrr en allt er frá. Farðu að minnsta kosti og kauptu afskorin blóm. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er ekki ólíklegt að vanda- mál komi upp í nánum samböndum þínum við aðra. Hvettu ástvini til þess að styðja þig með því að veita þér svigrúm. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að gefa þér tíma til ein- veru í dag. Ný iðja og nám vekja barnið innra með þér, ótt og uppvægt að taka við nýjum upplýsingum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er rétt að snúa sér að verk- efnum í vinnunni, sem krefjast einbeitingar, nákvæmni og rannsókna. Hallaðu þér aftur og leyfðu því að stjana við þig. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Látið það ekki skemma fyrir ykk- ur daginn þótt hann fari eitthvað skringilega af stað. Aðrir eru hálfhræddir við þig þegar þú geltir á þá. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert frábær talmaður alls þess sem þú trúir á. Vertu sérstaklega á verði með það hvað þú segir öðrum. Síðasta gáta var sem oftar eftirGuðmund Arnfinnsson: Töðugresi grænt er hún. Getur verið slegið tún. Austanlands það svæði sá. Sú er öllum hestum á. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Af túni há er taða þá tvisvar sláum hér. Þingháin Hjaltastaða. Há hrosshúð kölluð er. Helgi R. Einarsson segir að þar sem hann búi í Mosfellsbæ minnist hann á Tungubakkana þar sem börn og hross fái að sletta úr klauf- unum. Á Tungubökkum er tuggan gróf, þar tölta hrossin ungu. Við Hróars- fyrst og síðan hóf- hengja má við tungu. Árni Blöndal sendi mér þessa kveðju: Mínar kvarnir möluðu, magnaðar sá ég lausnir tvær. Til mín báðar töluðu, tel því best að senda þær. Og sagði síðan: Lausn: 1. Há. Ilmandi Há kom auga á, orkurík þar á velli lá, austur á landi er, þinghá. oft kallast, fáka húðin,- Há. Lausn: 2. Mön Þó taðan græn sé túni á, títt sjást Manir, ófelld strá, flóða manir, forða vá, fögur mön á hrossa há. Lausn Guðmundar er þessi: Menn á túni heyja há. Há er líka slegið tún. Austanlands er Eiðaþinghá. Auma há ég strýk á Brún. Og limra: Hána er Hervar að slá, hávaxinn teignum á, ef svengja hann fer, þá fær hann sér sker. Hann er austan úr Eiðaþinghá. Og loks gáta: Nú góðskáld eitt haft er í huga. Hreyfir sig gári á ver. Við mögnun hljóðs mun vel duga. Marglitt það blómstur er. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af háarslætti og hrossum á Tungubökkum Í klípu „ÞÚ GETUR ANDAÐ RÓLEGA, ÞVÍ AÐ ÉG MUN EKKI ENDURTAKA NEITT SEM SAGT ER Í ÞESSARI SKRIFSTOFU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... betri sein en aldrei. GRETTIR, ÞAÐ ER TIL GAMALT SPAKMÆLI... „LATUR KÖTTUR FÆR ENGA KLEINUHRINGI“ ÞESS VEGNA ER ÉG MEÐ ÞIG TIL AÐ ÞJÓNA MÉR HVERNIG GET ÉG LÆRT AÐ LESA OG SKRIFA, BRÓÐIR ÓLAFUR? ÞÚ VERÐUR AÐ FARA Í SKÓLA OG LÆRA, SONUR MINN ÓKEI, EN ÞAÐ MÁ EKKI VERA OF LENGI! ÉG ÞARF AÐ FARA Í VÍKING TIL ENGLANDS Á ÞRIÐJUDAGINN! Víkverji ætlar ekki að kvarta und-an veðrinu núna þrátt fyrir að hann hafi í fávisku sinni haldið að það væri að koma vor, vitandi að páskarnir eru á næsta leiti. Og hvað gerist um páskana, jú alveg rétt: Hretið með stóru Hái. x x x Kannski hélt Víkverji að það væriað koma vor því hann sá í frétt- um heila fylkingu af konum sem beruðu brjóst sín og margar hverjar gengu um götur. Víkverji spurði lík- lega ekki hvort þeim hefði verið kalt en hann fagnar framtakinu. x x x Víkverji býr í blokk. Í nýrri blokksem var reist á góðæristíma- bilinu. Hún er frekar kuldaleg á að líta. Gott og vel en Víkverja líður vel í blokkinni. Hins vegar er galli á gjöf Njarðar, ef galla skyldi kalla, og hann er sá að það er mjög hljóðbært í blokkinni. Í hvert skipti sem einhver opnar dyrnar að íbúð sinni og Víkverji er með opinn glugga sem vísar fram á gang sameignarinnar þá heyrist lyklinum snúið í skránni og hurðinni skellt á eftir. x x x Hljóðin berast líka annars staðarað og þau koma úr svefn- herbergjum blokkarinnar. Víkverji getur ekki tjáð sig um hvort nægj- anlegt byggingarefni í blokkina hafi verið notað á sínum tíma því hann hefur ekki hundsvit á slíku. En aftur að svefnherbergjunum. Hljóðin sem berast á milli hæða úr svefnherbergjunum koma ýmist frá grátandi litlum börnum eða full- orðnu fólki að stunda kynlíf. Þessi hljóð berast af hæðinni fyrir neðan Víkverja og alveg upp. x x x Í fyrstu þótti Víkverja þetta vand-ræðalegt en svo hætti honum að finnast það. Hann hugsaði frekar með sér, já þetta fólk er í góðu sam- bandi því þessi athöfn er jú hluti af því að viðhalda góðu sambandi. Þetta veit alþjóð. Sem betur fer býr Víkverji á efstu hæð og þarf því ekki óttast neitt. víkverji@mbl.is Víkverji En helgið Krist sem Drottin í hjörtum ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara hverjum manni sem krefst raka fyrir voninni sem þið eigið. (Fyrra Pétursbréf 3:15) Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is BRIGHT glerlampi Frábær fermingargjöf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.