Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 49

Morgunblaðið - 28.03.2015, Side 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Hjarta mannsins, þriðja bók Jóns Kalmans í þríleiknum sem hófst með Himnaríki og helvíti og Harmi englanna, hlýtur mikið lof hjá Boyd Tonkin, bókmennta- gagnrýnanda breska dagblaðsins Independent. Bókin heitir í enskri þýðingu The Heart of Man og segir Tonkin hana fallega þýdda yfir á ensku af Philip Roughton og að prósi Jóns þenjist út, drynji og ljómi líkt og hafið við Ísland á sumardegi. Dóminn má finna á vef Inde- pendent, independent.co.uk. Lofar Hjarta mannsins Lof Gagnrýnandi Independent er afar hrifinn af bók Jóns Kalmans. Nýjasta mynd kvikmynda-skáldsins Dags Káravar frumsýnd á Berl-inale hátíðinni í byrjun febrúar þar sem hún vakti tölu- verða lukku og hlaut talsvert lof. Hún heggur að mörgu leyti í sama knérunn og fyrri myndir leikstjór- ans, Nói albínói, Voksne menne- sker og The Good Heart, því segja má að allar séu þær tilvist- arspekilegar og einlægar þroska- sögur eftirminnilegra persóna sem höfða til áhorfenda og hreyfa við þeim á alþjóðlegum vettvangi. Fúsi (Gunnar Jónsson), titilpers- óna nýjustu myndarinnar, er lið- lega fertugur piparsveinn sem býr enn hjá móður sinni (Margrét Helga). Það fyrirkomulag er ást- manni hennar (Arnar Jónsson) til nokkurs ama, en hann fær vart rönd við reist því Fúsi er afar fast- ur í viðjum vanans og ragur við að hleypa heimdraganum. Fátt tíð- indavert drífur á daga Fúsa sem unir sér best í félagsskap eina vinar síns (Sigurjón Kjartansson), en saman sviðsetja þeir gömul heims- stríð með fornfálegum módelum. Hegðun hans og framkoma minnir því þversagnarkennt í senn á for- sögulegan, risavaxinn loðfíl með þykkan skráp og óharðnaðan, ófleygan unga sem getur ekki steypt sér úr hreiðrinu. Þegar tvær örlagadísir, báðar kenndar við gyðjur, koma óvænt inn í líf hans, fer það allt úr skorðum þannig að Fúsi neyðist til að stíga út fyrir þægindaramma sinn og bjóða fram- tíðinni byrginn. Tilvera einbúans Sjafnar (Ilmur Kristjánsdóttir) og hinnar barnungu Heru (Franziska Una) er einnig fremur lítilfjörleg við upphaf frásagnarinnar, en hún tekur stakkaskiptum líkt og hlut- skipti Fúsa eftir að þau fara að rugla saman reytum. Líkt og áður er framvinda þess- arar nýjustu myndar Dags Kára, hispurslaus, án allrar tilgerðar og mörkuð einstaklega mannlegu skopskyni. Myndatakan og sögu- sviðið, sem er að mörgu leyti afar gamaldags, ramma persónu Fúsa myndrænt inn, svo áhorfendur eru vel meðvitaðir um hvernig honum er sniðinn allt of þröngur stakkur, jafnt í lifanda lífi sem og innan hans huglæga heims. Hann stingur veru- lega í stúf hvert sem hann fer og hefur því dregið sig inn í skelina og setið eftir í framrás tímans þannig að hann er orðinn að risavaxinni tímaskekkju. Hlutverkið er ber- sýnilega skrifað fyrir Gunnar og hann nær því að gæða persónu sína afar mikilli tilfinninganæmni, að því er virðist áreynslulaust og á lágstemmdasta mögulega máta. Mótleikur Ilmar er á hinn bóginn hamslausari, enda Sjöfn miklu op- inskárri og berskjaldaðri tilfinn- ingavera sem ræður ekkert við skapgerðarsveiflur sínar. Líkt og nafna hennar er hún ástargyðja og hún seiðir Fúsa til lags við sig með óvæntri glettni og kántríballöðunni „Islands in the Stream“. Persóna Heru veitir að sama skapi skemmti- legt mótvægi með barnslegri ein- lægni sinni og raunar kallast allar aukapersónur á við aðalhetjuna. Þar sem þær eru nánast allar hag- anlega dregnar upp í handriti skila leikararnir allir af sér sterkum, þéttum og samstilltum leik. Eins og gerist og gengur í lífinu almennt hefur hver persóna sinn djöful að draga. Þær geta fyrir- varalaust stokkið í vænisjúka vörn og verið fordómafullar og skeyting- arlausar í garð náungans ef þeim finnst að sér vegið og hvorki mann- dómur þeirra, gæska né örlög liggja ljós fyrir þegar þær stíga fram á sjónarsviðið. Breytni þeirra kemur því áhorfendum sífellt á óvart og þær endurspegla þannig ágætlega fjölbreytileika raunveru- legs mannlífs. Óhætt er að hvetja fólk til að flykkjast í bíó, hvort sem það telur sig tilfinninganæmt eða kaldlynt, til að sjá hvort hjákátlegi en hjartahreini og óspjallaði ridd- arinn Fúsi sem ekur um á skrið- drekalegum kagga með þungarokk á hæsta hljóðstyrk í græjunum geti staðið af sér fordóma og skeyting- arleysi samfélagsins og leyst ást- argyðju sína úr hennar eigin helj- aránauð. Eitt er víst að þeir sem það gera koma til með að nærast andlega og geta í kjölfarið orðið kærleiksríkari og jafnvel sýnt meira umburðarlyndi í garð náung- ans. Tilvistarspekileg þroskasaga Ástargyðja „Líkt og nafna hennar er hún ástargyðja og hún seiðir Fúsa til lags við sig með óvæntri glettni og kántríballöðunni „Islands in the Stream“,“ segir um persónuna Sjöfn sem Ilmur Kristjánsdóttir leikur. Hér sést Sjöfn með Fúsa á línudansnámskeiði í kvikmynd Dags Kára, Fúsa. Háskólabíó og Smárabíó Fúsi bbbbn Leikstjórn og handrit: Dagur Kári. Kvik- myndataka: Rasmus Videbæk. Klipping: Olivier Bugge Coutté, Andri Steinn Guð- jónsson og Dagur Kári. Aðalhlutverk: Gunnar Jónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Arnar Jónsson og Franz- iska Una Dagsdóttir. Ísland, 2015. 93 mín. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Júníus Meyvant, Pál Óskar og Ný- dönsk munu koma fram á Þjóðhátíð í Eyjum sem haldin verður 31. júlí-2. ágúst. Fyrir hafa verið kynntar FM Belfast og AmabA- damA. Vestmannaeyingurinn Júní- us Meyvant átti eitt mest spilaða lag landsins í fyrra, „Color Decay“ og var lagið valið lag ársins á Ís- lensku tónlistarverðlaununum í ár og Júníus bjartasta vonin. Júníus, Páll Óskar og Nýdönsk í Eyjum Eyjamaður Júníus Meyvant er hress náungi og verður á Þjóðhátíð í Eyjum. ÍSLENSKUR TEXTI Besta leikkona í aðalhlutverki WILL FERRELL OG KEVIN HART HAFA ALDREI VERIÐ BETRI. ÍSLENSKT TAL SÝND Í 2D OG 3D HÖRKUGÓÐ SPENNUMYND FYNDNASTA GAMANMYND ÞESSA ÁRS! Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á - bara lúxus SÝND Í 2D OG 3D

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.