Morgunblaðið - 28.03.2015, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Hjarta mannsins, þriðja bók Jóns
Kalmans í þríleiknum sem hófst
með Himnaríki og helvíti og
Harmi englanna, hlýtur mikið lof
hjá Boyd Tonkin, bókmennta-
gagnrýnanda breska dagblaðsins
Independent. Bókin heitir í enskri
þýðingu The Heart of Man og
segir Tonkin hana fallega þýdda
yfir á ensku af Philip Roughton
og að prósi Jóns þenjist út, drynji
og ljómi líkt og hafið við Ísland á
sumardegi.
Dóminn má finna á vef Inde-
pendent, independent.co.uk.
Lofar Hjarta mannsins
Lof Gagnrýnandi Independent er
afar hrifinn af bók Jóns Kalmans.
Nýjasta mynd kvikmynda-skáldsins Dags Káravar frumsýnd á Berl-inale hátíðinni í byrjun
febrúar þar sem hún vakti tölu-
verða lukku og hlaut talsvert lof.
Hún heggur að mörgu leyti í sama
knérunn og fyrri myndir leikstjór-
ans, Nói albínói, Voksne menne-
sker og The Good Heart, því segja
má að allar séu þær tilvist-
arspekilegar og einlægar þroska-
sögur eftirminnilegra persóna sem
höfða til áhorfenda og hreyfa við
þeim á alþjóðlegum vettvangi.
Fúsi (Gunnar Jónsson), titilpers-
óna nýjustu myndarinnar, er lið-
lega fertugur piparsveinn sem býr
enn hjá móður sinni (Margrét
Helga). Það fyrirkomulag er ást-
manni hennar (Arnar Jónsson) til
nokkurs ama, en hann fær vart
rönd við reist því Fúsi er afar fast-
ur í viðjum vanans og ragur við að
hleypa heimdraganum. Fátt tíð-
indavert drífur á daga Fúsa sem
unir sér best í félagsskap eina vinar
síns (Sigurjón Kjartansson), en
saman sviðsetja þeir gömul heims-
stríð með fornfálegum módelum.
Hegðun hans og framkoma minnir
því þversagnarkennt í senn á for-
sögulegan, risavaxinn loðfíl með
þykkan skráp og óharðnaðan,
ófleygan unga sem getur ekki
steypt sér úr hreiðrinu. Þegar tvær
örlagadísir, báðar kenndar við
gyðjur, koma óvænt inn í líf hans,
fer það allt úr skorðum þannig að
Fúsi neyðist til að stíga út fyrir
þægindaramma sinn og bjóða fram-
tíðinni byrginn. Tilvera einbúans
Sjafnar (Ilmur Kristjánsdóttir) og
hinnar barnungu Heru (Franziska
Una) er einnig fremur lítilfjörleg
við upphaf frásagnarinnar, en hún
tekur stakkaskiptum líkt og hlut-
skipti Fúsa eftir að þau fara að
rugla saman reytum.
Líkt og áður er framvinda þess-
arar nýjustu myndar Dags Kára,
hispurslaus, án allrar tilgerðar og
mörkuð einstaklega mannlegu
skopskyni. Myndatakan og sögu-
sviðið, sem er að mörgu leyti afar
gamaldags, ramma persónu Fúsa
myndrænt inn, svo áhorfendur eru
vel meðvitaðir um hvernig honum
er sniðinn allt of þröngur stakkur,
jafnt í lifanda lífi sem og innan hans
huglæga heims. Hann stingur veru-
lega í stúf hvert sem hann fer og
hefur því dregið sig inn í skelina og
setið eftir í framrás tímans þannig
að hann er orðinn að risavaxinni
tímaskekkju. Hlutverkið er ber-
sýnilega skrifað fyrir Gunnar og
hann nær því að gæða persónu sína
afar mikilli tilfinninganæmni, að
því er virðist áreynslulaust og á
lágstemmdasta mögulega máta.
Mótleikur Ilmar er á hinn bóginn
hamslausari, enda Sjöfn miklu op-
inskárri og berskjaldaðri tilfinn-
ingavera sem ræður ekkert við
skapgerðarsveiflur sínar. Líkt og
nafna hennar er hún ástargyðja og
hún seiðir Fúsa til lags við sig með
óvæntri glettni og kántríballöðunni
„Islands in the Stream“. Persóna
Heru veitir að sama skapi skemmti-
legt mótvægi með barnslegri ein-
lægni sinni og raunar kallast allar
aukapersónur á við aðalhetjuna.
Þar sem þær eru nánast allar hag-
anlega dregnar upp í handriti skila
leikararnir allir af sér sterkum,
þéttum og samstilltum leik.
Eins og gerist og gengur í lífinu
almennt hefur hver persóna sinn
djöful að draga. Þær geta fyrir-
varalaust stokkið í vænisjúka vörn
og verið fordómafullar og skeyting-
arlausar í garð náungans ef þeim
finnst að sér vegið og hvorki mann-
dómur þeirra, gæska né örlög
liggja ljós fyrir þegar þær stíga
fram á sjónarsviðið. Breytni þeirra
kemur því áhorfendum sífellt á
óvart og þær endurspegla þannig
ágætlega fjölbreytileika raunveru-
legs mannlífs. Óhætt er að hvetja
fólk til að flykkjast í bíó, hvort sem
það telur sig tilfinninganæmt eða
kaldlynt, til að sjá hvort hjákátlegi
en hjartahreini og óspjallaði ridd-
arinn Fúsi sem ekur um á skrið-
drekalegum kagga með þungarokk
á hæsta hljóðstyrk í græjunum geti
staðið af sér fordóma og skeyting-
arleysi samfélagsins og leyst ást-
argyðju sína úr hennar eigin helj-
aránauð. Eitt er víst að þeir sem
það gera koma til með að nærast
andlega og geta í kjölfarið orðið
kærleiksríkari og jafnvel sýnt
meira umburðarlyndi í garð náung-
ans.
Tilvistarspekileg þroskasaga
Ástargyðja „Líkt og nafna hennar er hún ástargyðja og hún seiðir Fúsa til lags við sig með óvæntri glettni og kántríballöðunni „Islands in the Stream“,“
segir um persónuna Sjöfn sem Ilmur Kristjánsdóttir leikur. Hér sést Sjöfn með Fúsa á línudansnámskeiði í kvikmynd Dags Kára, Fúsa.
Háskólabíó og Smárabíó
Fúsi bbbbn
Leikstjórn og handrit: Dagur Kári. Kvik-
myndataka: Rasmus Videbæk. Klipping:
Olivier Bugge Coutté, Andri Steinn Guð-
jónsson og Dagur Kári. Aðalhlutverk:
Gunnar Jónsson, Ilmur Kristjánsdóttir,
Sigurjón Kjartansson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Arnar Jónsson og Franz-
iska Una Dagsdóttir. Ísland, 2015. 93
mín.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Júníus Meyvant, Pál Óskar og Ný-
dönsk munu koma fram á Þjóðhátíð
í Eyjum sem haldin verður 31.
júlí-2. ágúst. Fyrir hafa verið
kynntar FM Belfast og AmabA-
damA. Vestmannaeyingurinn Júní-
us Meyvant átti eitt mest spilaða
lag landsins í fyrra, „Color Decay“
og var lagið valið lag ársins á Ís-
lensku tónlistarverðlaununum í ár
og Júníus bjartasta vonin.
Júníus, Páll Óskar
og Nýdönsk í Eyjum
Eyjamaður Júníus Meyvant er hress
náungi og verður á Þjóðhátíð í Eyjum.
ÍSLENSKUR TEXTI
Besta leikkona
í aðalhlutverki
WILL FERRELL OG KEVIN HART
HAFA ALDREI VERIÐ BETRI.
ÍSLENSKT TAL
SÝND Í 2D OG 3D
HÖRKUGÓÐ SPENNUMYND
FYNDNASTA
GAMANMYND
ÞESSA ÁRS!
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxus
SÝND Í
2D OG 3D