Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 10

Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 10
Anne Grethe Hansen IÐJUÞJÁLFI Á endurhæfingardeildum og sjúkrahúsum er stór hópur sjúklinga hreyfihamlaður eftir slys eða bráð veikindi, sem getur haft í för með sér að lífshættir sjúklinganna geta breyst að miklu leyti. Endurhæfing getur tekið frá þrem mánuðum og allt upp í -eitt ár, og er Jrá unnið að ]n í að ná mestri mögulegri færni fyrir hvern sjúkling. í sumum tilfellum geta einkenni gengið að mestu til baka, ef um lömun er að ræða, þannig að sjúklingur getur án erfiðleika verið áfram í sínu venjulega umhverfi. En fyrir flesta er um að ræða var- anlega fötlun. Þessi grein fjallar um fram- tíðarhorfur þessara sjúklinga, Jregar að útskrift kemur. Það er ekki eðlilegt fyrir einstakling að búa á stofnun, jafnvel þó hann sé fatlaður, enda óska flestir sjúklingar eftir því að fara heim að endurhæfingu lokinni. Það þarf hins vegar að fyrirbyggja að stökkið útskrift verði of stórt. Oft kemur fyrir að sjúklingur verður einangr- aður og óvirkur þegar heim er komið, vegna þess að hann kemst ekki ferða sinna án hjálpar og vegna þess að hann getur ekki lengur stund- að vinnu utan né innan heimilis. Þess vegna er endurhæfingu þannig liáttað, að sem fyrst er byrjað að kenna sjúklingnum að lifa með fötlun sinni sem eðlilegustu lífi. Flestir taka fyrst og fremst eftir Jdví sem tapast hefur og leggja áherslu á ]>að, en mikilvægara er að nýta sterku hliðar sjúklingsins og leggja áherslu á það sem eftir er. Færnisþjálfun, þ.e.a.s. þjálfun í daglegum athöfnum, bætist mjög fljótlega við líkamlegu þjálfunina, enda er það mjög tengt hvoru öðru. Maður reynir að gera sjúklinginn eins sjálfbjarga og mögulegt er, að hann geti klætt sig og snyrt, komist ferða sinna í eða án hjóla- stóls og e.t.v. matreitt, þrifið o.fl. Ræður þar viljastyrkur sjúklings miklu um árangur, en jafn mikilvægur er stuðningur ættingja og annarra. Þurfa þeir þess vegna að þekkja og sjá hjálpartækin og aðferðirnar, sem sjúkling- urinn lærir að nota. Þegar sjúkl. er ekki talinn geta tekið meiri framförum í bili, þarf að meta möguleika hans. Taka þarf ákvörðun um hvort hann geti út- skrifast heim, með eða án breytinga á heim- ilinu, hvort kostur er á húsnæði þar sem sjúk- lingurinn getur fengið félagslega fyrirgreiðslu, svo sem fæðu, hjúkrun o.fl. — eða hvort hann þurfi að dveljast áfram á stofnun. Það þarf 8 REYK JALUNDUR

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.