Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 46
Frá samtökum astma-
og ofnæmissjúklinga
„REYKHOLTSHÓPURINN"
t síðasta riti Reykjalundar var getið nám-
skeiðs fyrir astmasjúk börn og foreldra þeirra,
sem haldið var í Reykholtsskóla í Borgarfirði.
Námskeið þetta, það fyrsta hér á landi, þótti
takast með ágætum, og þeim tilgangi náð,
sem til var ætlast.
Segja má, að þarna hafi skapast vináttu-
tengsl milli þeirra, sem þarna mættu og áttu
við sameiginleg eða skyld vandamál að stríða.
Var það álit allra þátttakenda, að slíka starf-
semi yrði að efla og gefa sem flestum kost á
að kynnast vandamálunum og hvernig bregð-
ast skuli við þeim, þegar t.d. börn fá astma-
köst.
Því miður hefur ekki orðið af að annað
námskeið yrði haldið, en hópurinn frá Reyk-
liolti hefir lialdist, og tengsl þau er þá bundust
aldrei rofnað.
Á s.l. sumri hittist þessi hópur á ný í hiriu
glæsilega sumarhúsi sambandsins við Hrafna-
gjá í Þingvallasveit, og dvaldist þar í viku-
tíma. Báru foreldrarnir þarna saman bækur
sínar, og töluðu um þá fræðslu og það gagn,
er þau höfðu haft af námskeiðinu.
Auk fræðslunnar, sem þau nutu, töldu þau
sig einnig miklu öruggari í umgengni við börn
sín m.a. vegna þeirrar vissu, að nú væru þau
að gera rétt.
Vonandi verður „Reykholtshópurinn" lang-
lífur og stækkandi eftir því sem þörf krefur.
OFMÆMISKÖNNUN Á ÍSLANDI
Á vegum rannsóknarnefndar Félags lækna-
nema og Samtaka astma- og ofnæmissjúklinga
stendur yfir rannsókn á tíðni ofnæmis hér á
landi.
Á árinu 1976 voru gerðar forkannanir. Voru
þá sendir út spurningalistar til þess að kanna
hvernig svör yrðu. Það var svo í febrúar 1977
að send voru út 5000 bréf, með spurningalist-
um, til fólks um land allt. 2800 svör bárust eða
frá 56% spurðra. Götun fyrir úrvinnslu í tölvu
er nú lokið. í undirbúningi er framhalds-
könnun, spurningalisti, sem verður sendur
þeim er svöruðu jákvætt í fyrrnefndri könnun.
verður það væntanlega gert með haustinu, og
ættu þá svör að liggja fyrir nm næstu áramót.
Þessi könnun á tíðni ofnæmis á íslandi er
styrkt af SÍBS, Samtökum astma- og ofnæm-
issjáklinga, Háskóla íslands og IBM.
HVAÐ NORÐMENN GERA
FYRIR FC BÖRNIN
Hinn 5. nóvember 1976 boðaði Ólafur
Stephensen barnalæknir, ásamt Jan Moue
framkv.stjóra frá Noregi, til fundar í Land-
spítalanum. Jan Moue er formaður foreldra-
deildar FC barna í Noregi. í fylgd með hon-
um var norskur sjúkraþjálfari og 10 ára gamall
sonur Jans, Ketill að nafni. FC barn. Einnig
sátu fundinn: Björn Júlíusson barnalæknir,
Ásta Classen sjúkraþjálfari, Unnur Cuttorms-
dóttir og fl. sjúkraþjálfarar.
Sjúkraþjálfarinn sýndi hvernig öndunarvél-
ar eru notaðar, en þær eru í eigu sjúkrasam-
lagsins. Hann sýndi og ýmsar stöður sjúklinga
í banki þar á meðal fráhvarfsstöðu. Ketill
litli er bankaður tvisvar á dag, 45 mín. í hvort
skipti. Lýst var notkun bekkjar, sem festur er
á vegg.
Laun sjúkraþjálfara eru greidd af norsku
tryggingunum og kémur bann á heimili, ef
nauðsyn krefur. Jan ræddi mikið um trygg-
ingamál. Þær greiða ennfremur fyrir námskeið,
en vikunámskeið eru haldin tvisvar á ári fyrir
alla fjölskyldu FC barna. Laun eru greidd
fyrir foreldra á meðan á námskeiðinu stend-
ur. Einnig greiða tryggingarnar ýmis hjálpar-
tæki t.d. þrekhjól. Þá nefndi Jan fjölskyldu
þar sem væru þrjú FC börn.
Jan benti á, að erfitt væri fyrir fjölskyldu FC
44
REYK JAI.UNDUR