Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 19

Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 19
til eru, eru dýrir, en alls staaðr er hægt að fara út og ganga. Að ganga úti í náttúrunni er eitt af því besta sem bakveikir geta gert. hað gefur mjúka hreyfingu í öllu bakinu og vöðvar þeir sem unnið hafa í kyrrstöðu allan daginn ná að hitna og slakna. Sund er einnig góð líkamsþjálfun, en þeir, sem eru veilir í baki, ættu heldur að synda baksund en bringu- sund. Það reynir rninna á mjóbak og háls. Margir byrja að finna fyrir bakþrautum við 25—35 ára aldur. Þá eru flestir mjög uppteknir við að stofna heimili, koma sér áfram í vinn- unni og allir eru að byggja. Allir eru þrevttir eftir langan vinnudag og þá er best að hvíla sig. Það er liægt að hvíla sig á margan hátt. Flestir leggjast upp í bekk og lesa blöðin eða setjast fyrir framan sjónvarpið. Að sitja er eitt það versta sem baksjúklingur gerir, betra er að leggjast útaf og þá gjarnan með stól eða eitthvað undir hnésbótunum, þannig að mjaðmir og hné myndi 90° horn. Þá hvflist mjóbak betur. Allra best er að fá sér göngutúr eða hreyfa sig á annan hátt. Með því að fá hreyfingu í þá vöðva sem unnið liafa í kyrr- stöðu allan daginn „skolast" vöðvinn, það er að segja blóðflæði gegnum vöðvan eykst, hann hitnar og úrgangsefni skolast burt. Að byrja líkamsrækt aftur eftir nokkra ára hlé getur haft vissar hættur í för með sér, jafnvel fyrir þá sem unnið hafa erfiðisvinnu og telja sig sterka. Að gera sömu kröfur til líkama síns við fertim og gert var um tvítugt er ekki réttlátt. Byrjið því frá byrjun og reynið ekki að gera í fyrstu það sem þið gátuð í skólaleikfimi. Gerið frekar of lítið til að byrja með. Meiðsli og miklar harðsperrur í byrjun geta valdið því að fólk hættir alveg við líkams- rækt. Þeir, sem voru vel þjálfaðir á unglings- árum, eiga hægara með að æfa upp líkams- þrótt en þeir sem eru að byrja í fyrsta sinn 35—40 ára. Mikilvægt er að líkamsrækt sé regluleg, helst þrisvar í viku, annars er hætt við harðsperrum í hvert skipti. Við alla líkams- rækt ætti að hafa í huga að jafnvægi í vöðva- styrk líkamans er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir rangt álag á liði, og ættu baksjúkling- ar að forðast að gera eingöngu „bakæfingar". Einnig ber að hafa í huga að það „að vera sterkur" er ekki það sama og „að vera vel þjálfaður". Flestir hafa frekar þörf fyrir að vera vel þjálfaðir, það er að segja að þola langvinnt álag, hvort sem það er talið þungt eða létt. (sbr.: að sitja reynir meira á mjóbak en að standa). Sé rétt þjálfað myndast ekki „vöðvafjöll", þau má aftur á móti fá fram með sérstakri þjálfun. AÐ LOKUM Líkamsrækt er öllum holl og nauðsynleg, alveg frá barnsaldri til elliára. Ekki kemur hún þó í veg fyrir allar þrautir, og þarf stund- um að grípa til annara aðgerða sem ekki verða raktar hér. Einn þáttur er þó ónefndur sem dregið getur úr bakþrautum almennt, en það er bætt vinnuaðstaða. Meiri háttar breytingar á vinnustað eru oft dýrar og erfitt að fram- kvæma. En margar smábreytingar, sem ekkert kosta nema hugkvæmni, eru auðveldar í fram- kvæmd. Er vinnuborðið í réttri hæð? Kemur ljósið úr réttri átt? Er stóllinn rétt stilltur fyrir þann sem situr í honum hverju sinni? Þetta eru örfáar spurningar sem auðvelt er að svara og gallar sem lagfæra má á mörgum vinnu- stöðum. Víða er þó erfitt að breyta vinnuað- stöðu, en allt sem auðveldar viðkomandi að breyta urn vinnuaðstöðu er til bóta. Eitt er víst. Það er dýrt fyrir samfélagið að hafa marga baksjúklinga, auk þess sem það er andlegt og líkamlegt álag á sjúklinginn. Ættu því allir, ríki, vinnuveitendur og ein- staklingar að hjálpast að og bæta vinnuað- stöðu og efla líkamsrækt. REYKJALUNDUR 17

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.