Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 47
barna að lifa eðlilegu fjölskyldulífi. Þetta
krefðist fórna og mikillar samvinnu. Hann
sagði að t.d. í U.S.A. þar sem engar almanna-
tryggingar væru, leystust um 85% hjóna-
banda upp. Um 15% foreldra FC barna
fremdu sjálfsmorð.
Jan greindi frá samböndum sínum við á-
hugafólk um FC börnin víða um heirn. í Tel
Aviv í ísrael og í Phíladelphia í Bandaríkjun-
um eru sérstök sjúkrahús starfandi fyrir F.C.-
börn.
Jan taldi rnjög óæskilegt að móðir FC barns
vinni úti, þar sem FC barn krefðist upp í 6
klst. vinnu af móður. Móðir slíks barns fær
í Noregi 3.000 n.kr. mæðralaun frá trygging-
unum, einnig fjögurra vikna frí á fullum
launum á ári. Uppþvottavél er alveg nauð-
synleg vegna smithættu. AUt á lreimilinu er
sótthreinsað tvisvar á dag.
Jan giskaði á að í Noregi væru unt 150 FC
börn, sem lítið eða ekkert væri vitað um.
Hann kvað Ketil son sinn borða aðeins fitu-
lausa fæðu, mikið af tómötum og eplurn. Hann
borðar þó sykur en tennur eru sérstaklega vel
burstaðar á eftir. Þá taldi Jan mikilvægt að
börnin væru í æfingum daglega t.d. hjóluðu
mikið inni. Jan lofaði ágæti sundstaða hér
á landi fyrir þessi börn.
Elsti FC einstaklingur, sem vitað er um,
er um 48 ára. . . , ,, s
(Ur minmsbok).
FRÁ BRETUM
í október 1976 dvöldum við hjónin hálfan
annan dag í London og notuðum við ta:-kifær-
ið til þess að heimsækja bækistöðvar bresku
samtakanna, er liafa innan sinna vébanda
brjóstholssjúklinga (öndunarfærasjúkdóma) og
sjúklinga með heilablæðingu. Forstjóri sam-
takanna (The Chest, Heart and Stroke
Assocation), Hilda Watts, tók vel á móti okk-
ur. Ég hafði skrifað henni áður og ennfremur
höfðum við meðferðis kynningarbréf formanns
SÍBS, Kjartans Guðnasonar.
Hilda Watts veitti okkur fúslega allar upp-
lýsingar urn samtökin, en þau vortt stofnuð
1899 af berklasjúklingum, enda störfuðu þau
á sarna grundvelli og berklavarnadeildirnar
hér á landi. Árið 1954 var sambandinu breytt
í sannök brjóstholssjúklinga, og f'yrir tveim
árum voru sjúklingar með heilablæðingu
(stroke) teknir í samtökin. Samtökin eru rekin
án nokkurs styrks frá breska ríkinu en lifa
á gjafafé og styrkjum. Samtökin eru fyrst og
fremst leiðbeiningastöð. Til liennar snúa sér
læknar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfólk og svo
að sjálfsögðu sjúklingar og aðstandendur
þeirra. Leiðbeint er með félagsleg réttindi,
lijálpartæki, bent á heppilega og góða surnar-
dvalarstaði, klúbba og deildir og sjúklinga,
sem eiga við samskonar erfiðleika að stríða, —
eru tengiliður. Þá reyna samtökin að hafa
álnif á bætta heilbrigðisþjónustu og berjast
fyrir betra lífi og hreinna lofti. Þá veita þau
foreklrasamtiikum astma - FC og barna með
hjartagalla hvers konar þjónustu og ráðgjöf.
Ég þakka Kjartani Guðnasyni hans ágæta
kynningarbréf, sent opnaði okkur allar dyr
í þessari ferð.
Hjördis Þorsteinsdóttir.
SAMTÖK ASTMA- OG
OFNÆMISSJÚKLINGA
Skrifstofa S.A.O. er í Suðurgötu 10, opin
alla fimmtudaga kl. 17—19. Sími: 22153.
Félagslíf samtakanna er til húsa að Norð-
urbrún 1, í vistlegum salarkynnum Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar. Margir
góðir læknar og aðrir fyrirlesarar liafa flutt
þar ágæta fyrirlestra á fundum samtakanna.
Þá er þar oft spilnð félagsvist og bingó. Vel
hefur verið mætt á skemmtifundum þessum,
og hefur kornið greinilega í Ijós, að fólk nýtur
þess og kann vel að meta það að fá
tækifæri til þess að hittast og rabba saman
annars staðar en á biðstofum læknanna.
REYKJALUNDUR
45