Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 33

Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 33
Ingólfur S. Sveinsson LÆKNIR Gildi vinnu og virkni í geðlækningum í þessari grein verður fjallað almennt um gildi vinnu til endurhæfingar fólks, sem orðið ltefur óstarfhæft að nteira eða minna leyti af völdum sjúkdóma, hefur komist inn í lífs- máta athalnaleysis eða er lainað af kvíða, þunglyndi eða öðrum geðrænum vandamál- um. SJÚKLINGSHLUTVERKIÐ OG LÆKNISHLUTVERKIÐ I>að telst eðlilegur gangur mála í þjóðfé- lagi okkar, að sá sem er veikur leiti sér hjálpar hjá lækni. Sé hann mikið veikur þarf oft að leggja hann inn á spítala. Um leið og maður verður veikur, einkum þurfi hann að leggjast inn á spítala, þarf liann að ganga inn í sérstakt og oft mjög ákveðið hlutverk — hlutverk sjúk- lingsins. Eins og önnur hlutverk, t.d. hlutverk þjóna, skipstjóra, bakara, húsmæðra, presta og lækna hefur þetta hlutverk ákveðnar eig- indir, réttindi og skyldur, sem því eru gefnar af samfélaginu, samkvæmt ríkjandi gildum í menningunni. Nokkrir af helstu eiginleikum sjúklingshlutverksins eru á þessa leið: Sá sem verður veikur fær hjálp, samúð, hlýju, um- hyggju og blóm. Jafnvel þeir, sem sjaldan skipta sér af honum, drífa sig í heimsókn á spítalann af því að hann á bágt. Sjúklingnum er hlíft við kröfum og ábyrgð. Hann á að fá það besta sem til er og að rnörgu leyti er liugs- að um hann eins og barn. I staðinn á sjúkling urinn að vera þægur, ekki fara fram úr rúminu nema honum sé leyft það, hlýða lækninum og hjúkrunarkonunni og taka lyfin sín reglulega. Ef sjúklingurinn er lengi veikur, breytist lilut- verkið nokkuð. Eftir nokkrar vikur taka sumir að fækka heimsóknum, þeir hafa ekki tíma, REYKJALUNDUR 31

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.