Reykjalundur - 01.10.1977, Síða 25
öll undir læknastöð og verður heilsugæslustöð
héraðsins í norðurenda en læknar Reykjalund-
ar hafa sína aðstöðu í suðurenda. Mitt á milli
verða síðan rannsóknarstofur og önnur sam-
nota þjónusta.
Eru þá upptaldar þær lielstu framkvæmclir,
sem tilheyra áætluninni frá 1971, en ýmis
önnur verkefni hafa bæst við á tímabilinu, sent
óhjákvæmilegt var að sinna. £g vil hér aðeins
minnast á eitt þeirra, sem er frágangur hlaðs-
ins, gerð bílastæða og gangbrauta. Brýna
nauðsyn bar til þess að bæta aðkomu að staðn-
um og jafnframt skapa skjólstæðingum okkar
aðstöðu til að komast leiðar sinnar þrátt fyrir
fötlun. Ráðist var í að liafa gangstíga og bíla-
stæði fatlaðra upphituð þannig að útivera
þessa fólks á ekki að vera árstímabundin leng-
ur. Þessu verki var að mestu lokið á árinu
1976, en gróðursetning og annar frágangur
bíður næsta árs.
4. FRAMLEIÐSLAN
Eins og áður sagði var vatnsröra- og plast-
filmuframleiðslan flutt í nýtt húsnæði á árinu
1974. Nýjurn vélum var bætt við til að mæta
vaxandi eftirspurn og lagersvæði var aukið og
endurbætt. Er verksmiðjan öll hin fullkomn-
asta að gerð og búnaði og á Jón Þórðarson
framleiðslustjóri mikinn þátt í því hve vel
hefur tekist. Plaströrin frá Reykjalundi eru
fyrir löngu orðin ríkjandi vatnslagnaefni á
íslandi og þekkt gæðaframleiðsla eins og ann-
að, sem héðan fer. Það er raunar merkilegt,
eins og okkur íslendingum er gjarnt að sækja
allt til útlanda, að útlendingar, sem okkur
heimsækja skuli telja sig fróðari um plaströra-
framleiðslu á eftir. Þessi verksmiðja veitir að
vísu ekki vistmönnum vinnu nema í takmörk-
uðum mæli, enda verkefni þar of erfið þeim,
sem ekki njóta fullra líkamsburða, en afrakst-
ur þessa iðnaðar er ómissandi bakhjarl fyrir
öryrkjavinnuna og allan annan rekstur á
Reykjalundi.
í plaststeypu- og samsetningardeildum er
fengist við steypu, frágang og pöllun á um-
búðafötum, búsáhöldum, lyfjaumbúðum, raf-
tenglum og til skamms tíma voru þar fram-
leiddir Iiinir vinsælu LEGO kubbar. Við
þessa framleiðslu vinna einungis vistmenn
undir stjórn eins verkstjóra í hverri deild.
A mótaverkstæði vinna 3—4 vistmenn við
framleiðslu geymsluskápa úr járni, samsetn-
ingu trébíla og sprauta. Daglegur vinnutími
vistmanna er ákveðinn af læknum stofnunar-
innar frá 1 upp í 6 klst. á dag. Áður er
minnst á, að vinnuhæfni þeirra, er nú vistast
á Reykjalundi er lakari en áður var þegar
hér voru einkurn berklasjúklingar. Nokkur
fækkun hefur því orðið á þeim, sem sækja
vinnustofurnar og erfiðara er að finna fram-
leiðsluvörur, sem lienta þessu fólki til vinnu.
I því skyni að fullnota þá aðstöðu, sem hér er
hefur verið ákveðið að opna clyr vinnusalanna
öryrkjum og öðrum þeim, sem af einhverjum
ástæðum aðlagast ekki þeim kröfum, sem gerð-
ar eru á almennum vinnumarkaði. Vilað er
að hliðstæðar vinnustofur t.d. Múlalundur
anna engan veginn þeirri þörf, sem er fyrir
verndaða vinnustaði. Fjöldi fólks með skerta
starfsgetu er á stofnunum og í heimahúsum
svipt þeirri lífsfyllingu, sem vinna, og það að
láta eitthvað eftir sig liggja, veitir. Hér er
verðugt verkefni fyrir Reykjalund, þegar
verkfærum höndum á stofnuninni sjálfri
fækkar, og á Jtessu verkefni ætlum við að taka.
Meðan Jjörf er á Jjeirri aðstöðu og Jjeirri
reynslu, sem Reykjalundur hefur í Jjessum
efnum verður ekki um samdrátt að ræða í
Jjessari grein iðnaðarins heldur aukningu.
Vistmenn gegna einnig ýmsum öðrum störf-
um á Reykjalundi, einkurn Jjjónustustörfum
svo sem símavörslu, gangastörfum, kaffihitun
á vinnustöðunum og vinnu í þvottahúsi og
saumastofu. Af Jjeim 150 sjúklingum, sem nú
eru á Reykjalundi, lætur nærri að um þriðj-
ungur gangi til vinnu á hverjum degi. Hvort
sú fækkun er einungis tímabundin veit eng-
REYKJALUNDUR
23