Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 38

Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 38
Hér er vissulega gengið út frá því sem gefnu að „vinnan göfgi manninn". Hvers konar störf koma þá til greina? Ekki eru öll störf jafn „göfgandi". Flestir vita hvað átt er við þegar talað er um svokallaða Kleppsvinnu — vinnu sem er meiningarlaus. Sagan segir að eitt af því sem gert hafi verið á Kleppi hafi verið að moka sandi í botnlausa tunnu. Eftir bestu heimildum hefur slíkt þó aldrei verið gert þar. Erfitt er að bera virðingu fyrir vinnu sem er í eðli sínu gagnslaus og tilgangslaus. Sama virðist gilda um vinnu þar sem enginn hirðir hvort hún er vel eða illa unnin. Störf þurfa að hafa gildi í sjálfu sér og gera kröfur til starfsmannsins svo að sá, sem vinnur. finni að viðleitni hans hafi einhvern tilgang. Sem dæmi um endurhæfingarstörf í sjúkrahúsi sem geta haft mikið gildi má nefna: 1. Að búa til fallegan eða gagnlegan ldut fyrir sjálfan sig, mála mynd, búa til flík, ösku- bakka eða skartgrip. Er ])etta oft gert í iðju- þjálfun. Verkefni sem þetta krefst þess að fólk noti sköpunarhæfni sína. Það í sjálfti sér að geta búið eitthvað til sem er sýni- legt og áþreifanlegt veitir vissa gleði og sjálfstraust. Er þetta oft fyrsta skrefið út úr því ástandi að vera lokaður í eigin hug- arheimi, hafa ekki samband við umhverfið og vera upptekinn af sjálfum sér. 2. Þátttaka með starfsfólki í þjónustustörfum á sjúkrahúsi s.s. við ræstingu, hjúkrun eða þrif og önnur störf á lóð spítalans. 3. Framleiðslu- og viðgerðarstörf á verkstæð- um og í vinnustofum. 4. Starf úti á almerinum vinnumarkaði sem sjúklingur stundar um tíma áður en hann útskrifast frá sjúkrahúsinu. 5. Þá getur það verið verkefni og eins konar starf í sjálfu sér að leita sér að vinnu, hús- næði og annarri aðstöðu utan sjúkrahússins t.d. með því að læra að nota auglýsingar blaðanna og fara eftir þeim. 6. Tómstundir geta notast mjög vel í meðferð þó ekki sé um vinnu að ræða í venjulegum skilningi. Það skiptir t.d. miklu má!i hvort viðkomandi eyðir helginni uppi í rúmi eða sitjandi í stól, ellegar hvort hann gerir áætlanir um að gera eitthvað ánægjulegt s.s. að fara í leikhús, bíó, ferðalag eða fjall- göngu. Fólk, sem er haldið kvíða, þunglyndi og tilheyrandi minnimáttarkennd, hefur til- hneigingu til að forðast annað fólk, draga sig í hlé. Þátttaka í félagslífi að einhverju marki er því mikilvægur þáttur í almennri endurhæfingu. Vinnuprógrömm sjúkrahúsa eru venjulega ekki nema hluti dagsins og þar sem endurhæfing í þessum skilningi er fyrst og fremst barátta við sljóleika, sinnu- leysi, einangrun og kvíða þá skiptir miklu máli að hinar löngu frístundir séu ekki dauður tilbreytingarlaus tími. Fólk getur þurft hvatningu og jafnvel kennslu í að vera með öðru fólki og njóta lífsins á ný. UMBUN OG LAUN Eitt það lögmál, sem einkennir bæði menn og dýr, er að gera það sem helst borgar sig best samkvæmt mati einstaklingsins. Þótt það sé vissulega mikilvægt í iðju- og vinnuþjálfun að starfið sé gagnlegt eru líkurnar fyrir árangri því meiri sem viðkomandi fær meiri umbun. Umbun getur verið margvísleg: I.aun í formi peninga er öflugur hvati til að vinna eins og flestir munu kannast við sem vinna launuð störf. Æskilegt er að hægt sé að hækka launin með því að bæta vinnugæði eða auka afköst. Jákvætt viðmót frá verkstjóra s.s. bros, hrós, verðskulduð viðurkenningarorð getnr verið virkasta hvatningin. Viðurkenning eða virðing starfsfélaga getur verið mikil hvatning til að vinna vel. Á langdvalardeildum geðsjúkrahúsa er oft komið upp launakerfum sem miðast við gild- ismat króniskra sjúklinga. Þar geta vindlingar, aukið frelsi, aukakaffisopi o. s. frv. skipt meira máli en flest annað og því geta slíkir hlutir verið virkust umbun þar. 36 REYKJAT.UNDUR

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.