Fréttablaðið - 12.11.2015, Side 2
Suðlæg átt, yfirleitt fremur hægur vindur.
Snjó- eða slydduél sunnan- og vestanlands,
Yfirleitt þurrt og bjart um landið
norðaustanvert, en léttir til suðaustanlands
þegar líður á daginn. Kólnandi veður í kvöld.
Sjá Síðu 44
Veður Tóku hænuskref í Vesturbænum
HeilbrigðiSmál Borið hefur á því að
læknar séu skráðir fyrir vélskömmt-
un lyfja án þess að þeir viti af því en
einnig að einstaklingar fái ávísað
sömu lyfjum í stökum ávísunum
á sama tíma og þeir fá skammt-
að. Um er að ræða lyf úr öllum
flokkum en Embætti landlæknis
hefur mest verið að gera athuga-
semdir varðandi ávanabindandi lyf.
Stutt er síðan vélskömmtun lyfja fór
að berast í nýja lyfjagagnagrunninn.
„Nú geta læknar sjálfir séð skammt-
anir og nafn þess læknis sem stend-
ur fyrir þeim. Læknar hafa haft
samband við Embætti landlæknis
til að breyta skömmtunum eða fella
skömmtunarseðla niður því enn
er það þannig að læknar sjá ekki í
hvaða apóteki ávísanir eru leystar
út,“ segir Ólafur B. Einarsson hjá
Embætti landlæknis.
„Þetta eru fyrst og fremst ávana-
bindandi lyf sem um ræðir en marg-
ir einstaklingar sækja stíft í slík lyf.
Við bindum miklar vonir við það
að aðgangur lækna að lyfjagagna-
grunni komi til með að minnka
misnotkun á þessum lyfjum. Þá er
búið að sameina sjúkraskrárkerfi
milli starfsstöðva lækna þannig að
upplýsingaaðgengi lækna er orðið
mun betra. Við höfum trú á því að
þetta muni hafa jákvæð áhrif en
Það gerist hægt.“
Ein afleiðing af auknum upp-
lýsingum hjá læknum er að lyfja-
gjöf til einstaklinga er hafnað.
Þetta birtist meðal annars í því að
einstaklingar í fíknivanda reyna
að komast yfir þessi lyf með því að
villa á sér heimildir og biðja um
lyfjaávísun frá lækni eða reyna að
leysa út lyf úr apótekum á nafni
annarra. Dæmi eru um að slíkar
Skráðir fyrir ávísunum
án eigin vitundar
Læknar hafa látið Embætti landlæknis vita af lyfjaávísunum ávanabindandi
lyfja sem þeir vissu ekki af. Aukið gagnsæi minnkar hættu á misnotkun.
Við bindum miklar
vonir við það að
aðgangur lækna að lyfja-
gagnagrunni komi til með að
minnka misnotkun á þess-
um lyfjum.
Ólafur B. Einarsson
hjá Embætti landlæknis
Ólafur segir gagnsæi í lyfjagrunninum minnka hættu á misnotkun en best sé að læknar
ávísi ekki ávanabindandi lyfjum án þess að hitta sjúklinginn. Fréttablaðið/SteFán
falsanir hafi viðgengist mánuðum
saman þegar einstaklingarnir
sjálfir eða starfsfólk apóteka hefur
komið upp um þær fyrir tilviljun.
Það er möguleiki að slíkar fals-
anir viðgangist og ekki hafi komist
upp um þær. „Hluti vandans er sá
að það getur verið erfitt að sann-
reyna hvort það sé réttur aðili sem
hringir og biður um lyfjaávísun
t.d. á heilsugæslu,“ segir Ólafur.
Stöðugt fleiri læknar nota lyfja-
gagnagrunn landlæknis, í septem-
ber 2014 var fjöldinn 412 en í sept-
ember 2015 867 læknar. Aðgengi
þeirra að lyfjagagnagrunninum
hefur aukið öryggi ávísana að sögn
Ólafs.
Hann segir þó bestu leiðina til
að koma í veg fyrir misnotkun að
skrifa ekki út ávanabindandi lyf án
þess að hitta sjúklinginn. „Best er að
læknar hitti einstaklingana í eigin
persónu og ræði við þá um lyfja-
notkunina.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Skila sér alltaf heim „Þær rölta oft um hverfið og fara á lóðirnar í kring en skila sér alltaf heim. Það má segja að radíusinn hjá þeim stækki alltaf með
hverjum mánuði,“ segir Ólafur Breiðfjörð Finnbogason, eigandi fjögurra hænsna sem fengu sér göngutúr í Vesturbænum í Reykjavík í gær. Ólafur
segir þau hjónin hafa átt hænurnar í 5 ár. Fréttablaðið/Vilhelm
ViðSkipti Af 15.662 bifreiðum sem
hafa verið nýskráðar það sem af
er ári eru 6.308, eða 40 prósent,
skráðar í notkunarflokkana „bíla-
leiga“ og „bílaleiga/húsbifreið"
samkvæmt tölum frá Samgöngu-
stofu. 8.238 bifreiðar eru skráðar í
almenna notkun.
Til samanburðar voru 10.611
bílar nýskráðir allt árið 2014 sam-
kvæmt tölum frá Bílgreinasam-
bandinu og því hefur orðið 50
prósenta aukning milli ára. Dregið
hefur úr hlutfalli nýskráninga bíla
sem fara á bílaleigur, en árið 2014
voru þeir nærri því helmingur
nýskráðra nýrra fólksbifreiða. Því
virðist sem almenni bílamarkaður-
inn sé að sækja töluvert í sig veðrið.
Ef litið er til ársins 2013 má sjá að
nýskráningar hafa tvöfaldast en þá
voru 7.267 bílar fluttir inn. Þar af
voru 3.254 bílaleigubílar, eða um
46 prósent allra innfluttra bíla. – sg
40 prósent fara
á bílaleigur
lögreglumál Jóhanna Sigurjóns-
dóttir, lögmaður tveggja kvenna
sem kært hafa tvo karla fyrir kyn-
ferðisbrot, mun í dag kæra lög-
manninn Vilhjálm H. Vilhjálmsson,
sem er verjandi annars sakborning-
anna í málinu, fyrir að leka trún-
aðarupplýsingum í því. Í samtali við
mbl.is segir Jóhanna að fyrirhuguð
kæra snúist um ummæli sem Vil-
hjálmur hefur látið falla í fjölmiðl-
um sem lögmaður annars ákærðu.
Jóhanna hefur sagst óttast að ítar-
leg umfjöllun í fjölmiðlum um mál
kvennanna kunni að hafa spillt fyrir
rannsókn málsins. Þá sagði hún
engan vafa leika á því að Vilhjálmur
hefði brotið gegn starfsskyldum
sínum sem verjandi í þessu máli
og brotið þar með gegn ákvæðum
hegningarlaga, ákvæðum laga um
meðferð sakamála, lögum um lög-
menn og siðareglum lögmanna.
Vilhjálmur gerir þá kröfu að
Jóhanna biðji hann þegar í stað
afsökunar. Vilhjálmur hefur lagt
fram kæru á hendur stúlkunum sem
lögðu fram kærur í nauðgunarmál-
unum, um rangar sakargiftir. – ngy
Kærir
Vilhjálm
fyrir leka
Vilhjálmur er verjandi annars hinna
grunuðu. Fréttablaðið/Valli
1 2 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 F i m m t u D A g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
D
-C
B
A
4
1
6
E
D
-C
A
6
8
1
6
E
D
-C
9
2
C
1
6
E
D
-C
7
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K