Fréttablaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 24
Breyttar aðstæður í Egyptalandi
Kona einsömul í minjagripabúð í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi, en nýverið var sett ferðabann til þessa annars vinsæla ferðamannastaðar. Yfirleitt
eru minjagripabúðirnar á svæðinu yfirfullar af ferðamönnum en um þessar mundir eru þær heldur tómlegar eftir að þúsundir ferðamanna yfirgáfu
svæðið í kjölfar þess að rússnesk flugvél hrapaði. Fréttablaðið/aFP
Ný útgáfa af iPad Pro, svokallaður
risa-iPad með 12,9 tommu skjá, er
væntanleg til landsins í mánuðinum.
Þetta staðfestir Sigurður Stefán Flygen-
ring, þjónustustjóri fyrirtækjasviðs hjá
Macland. Spjaldtölvan verður í boði í
þremur litum, silfur, gull og „space gray“
og í tveimur stærðum, 32GB og 128GB.
„Apple ræður til hvaða landa þeir
senda tækin hverju sinni. Ísland er
ekki partur af löndunum sem fá fyrstu
sendinguna eins og er. En vonandi
fáum við að fylgja með næstu lönd-
unum. Ef ég þekki Apple rétt þá verður
það í mánuðinum. Þeir hjá Apple eru
snöggir að senda vöruna frá sér,“ segir
Sigurður Stefán.
„Það er mikil tækni í litlu tæki og
þetta er kraftmikið tæki. Þetta opnar
möguleikana fyrir meiri aukahluta-
markað, þeir eru meðal annars komnir
með Smart Connector á iPadinn og
það verður spennandi að sjá hvað þeir
gera við hann. Ég held að þetta muni
taka við af fartölvunni hjá mörgum
aðilum, þó ekki öllum. Tim Cook, for-
stjóri Apple, ferðast til dæmis einungis
með iPad Pro og iPhone 6S út um allan
heim, ef það er nóg fyrir hann, held ég
að það sé nóg fyrir flesta,“ segir Sig-
urður Stefán. – sg
Risa-iPad
væntanlegur
risa iPad má sjá lengst til hægri á
myndinni. Fréttablaðið/EPa
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri telur hættu á offjárfestingu í
hótelbyggingum næstu árin. „Yfir-
leitt fara svona fjárfestingarbylgjur
fram úr sér að lokum og það er
bara spurning hvað það verður
mikið,“ sagði Már á opnum fundi
efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis í gær.
„Hvort við séum þar, það er full-
yrt að svo sé ekki, og staðreyndin
er sú að hótelnýting á Íslandi er
með því hæsta sem gerist enn sem
komið er, en við þurfum að fylgjast
með þessu,“ sagði hann.
Már var þar að svara spurningu
Vilhjálms Bjarnasonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, sem benti á
að reynsla af útlánatapi í ferða-
þjónustu væri nokkuð mikil, sér-
staklega í hótelbyggingum.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
sérfræðingur hjá greiningardeild
Arion banka, segir að vel geti
verið að menn hafi farið of geyst í
hótelfjárfestingu áður. „En miðað
við hvernig nýting hótelherbergja
er núna og hvernig áætlanir eru
um fjölgun ferðamanna í fram-
tíðinni þá lítur út fyrir að það sé
þörf á þeim hótelherbergjum sem
er verið að byggja, að minnsta
kosti ef við ætlum að fjölga ferða-
mönnum meira.“
Anna bendir á að hvergi í Evr-
ópu sé betri nýting á hótelher-
bergjum en í Reykjavík. „Þannig
að það eru allt aðrar aðstæður en
hafa verið áður svo að ég veit ekki
hversu mikið þýðir að skoða þetta
í sögulegu samhengi, við þurfum
auð vitað að skoða stöðuna núna.“
Anna segir að ef spá Arion banka
um tuttugu prósenta fjölgun ferða-
manna á næsta ári rætist þá verði
að fjölga hótelherbergjum. Þeir
sem sérfræðingar greiningardeild-
arinnar hafi talað við í hótelbrans-
anum telji að það sé ekki hægt að
ná meiri nýtingu yfir árið á höfuð-
borgarsvæðinu en er núna.
Anna segir engu að síður skiljan-
legt að fólk hafi áhyggjur af offjár-
festingu. „En vanfjárfesting getur
líka verið kostnaðarsöm og sú
staðreynd að enginn sá fyrir þessa
fjölgun sem við höfum orðið vitni
að á undanförnum árum hefur gert
ferðaþjónustunni erfitt fyrir því
það hefur verið erfitt fyrir fyrir-
tæki í þessum geira að halda í við
vöxtinn.“
Hins vegar geti styrking á gengi
krónunnar verið áhættuþáttur
fyrir ferðaþjónustuna. Ef gengi
krónunnar styrkist verulega á
næstunni gæti það valdið því að
ferðamenn eyði minna hér á landi
eða það dragi úr fjölda ferða-
manna.
Þá segir Anna að umtalsverðar
framkvæmdir við hótelbyggingar
séu hugsanlega ein orsök þess að
minna hefur verið byggt af íbúðar-
húsnæði að undanförnu en búist
var við. „Ein skýring er að þeir sem
eru að byggja núna eru frekar að
byggja hótel en íbúðir.“ Íbúða-
fjárfestingar séu að verða undir í
slagnum við hótelfjárfestingu um
iðnaðarmenn og fjármagn.
ingvar@frettabladid.is
Seðlabankastjóri telur hættu á
offjárfestingu í hótelum
Hætta er á að of mikið verði fjárfest í hótelum á næstunni, að sögn seðlabankastjóra. Sérfræðingur hjá
greiningardeild Arion banka segir áhyggjur skiljanlegar en að nauðsynlegt sé að byggja meira til að halda í
við fjölgun ferðamanna. Miklar hótelbyggingar geti verið skýring á því hve lítið sé byggt af íbúðarhúsnæði.
Mikið hefur verið byggt af hótelum hér á landi að undanförnu og þeim mun fjölga
enn frekar á næstunni. Fréttablaðið/gva
Yfirleitt fara svona
fjárfestingarbylgjur
fram úr sér að lokum og það
er bara spurning hvað það
verður mikið.
Már Guðmundsson,
seðlabankastjóri
Miðað við þá sem
við í greiningar-
deildinni höfum talað við í
hótelbransanum þá segja
þeir að það sé ekki hægt að
ná meiri nýtingu yfir árið á
höfuðborgarsvæðinu heldur
en er núna.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
sérfræðingur hjá greiningardeild
Arion banka
Arion banki hagnaðist um 25,4
milljarða króna á fyrstu níu mán-
uðum ársins. Í tilkynningu vegna
uppgjörsins segir að sala fyrirtækja
setji umtalsverðan svip á afkomuna.
Félagið hafi selt hluti í fasteigna-
félaginu Reitum, alþjóðlega drykkja-
framleiðandanum Refresco Gerber
og Símanum á árinu. Vegna þessa
hafi hreinar fjármunatekjur Arion
banka numið 10,6 milljörðum króna
það sem af er ári samanborið við 5,3
milljarða á sama tímabili fyrir ári.
Hagnaður bankans í heild eykst
um tæpa þrjá milljarða miðað við
sama tímabil fyrir ári.
Hagnaður af reglulegri starf-
semi nam 13,5 milljörðum króna
samanborið við 11,4 milljarða á
sama tímabili í fyrra. Heildareignir
Arion banka nema 1.010 milljörðum
króna en voru 934 milljarðar um
síðustu áramót.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
Arion banka, segir ljóst að draga
muni úr áhrifum af sölu fyrirtækja í
afkomu bankans á næstu árum, hún
verði þá borin uppi af hefðbundinni
fjármálastarfsemi. Þá muni bankinn
bregðast við gagnrýni sem hann hafi
fengið að undanförnu vegna sölu á
hlutum í Símanum. „Við tökum
mark á málefnalegri gagnrýni og
munum breyta verklagi okkar þar
sem við á,“ segir Höskuldur. – ih
Arion banki
hagnast um 25
milljarða
Höskuldur Ólafsson segir einskiptisliði
setja svip á uppgjörið. Fréttablaðið/gva
Viðskipti
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r24 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-5
F
C
4
1
6
E
E
-5
E
8
8
1
6
E
E
-5
D
4
C
1
6
E
E
-5
C
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K