Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 28
Fyrir stuttu komu saman í Reykjavík forsætisráðherrar Norðurlandanna, Eystrasalts-
ríkjanna og Bretlands á ráðstefnuna
Northern Future Forum (NFF) í boði
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
forsætisráðherra.
Fyrsta ráðstefnan undir þessu
heiti var haldin í London 2011 að
frumkvæði David Cameron, for-
sætisráðherra Breta, og þær hafa
síðan verið haldnar í Stokkhólmi,
Ríga og Helsinki. Það sem gerir
NFF-ráðstefnuna óvenjulega er að
þar setjast ráðherrarnir niður, tveir
til þrír saman, í litlum málstofum
með sérfræðingum frá löndunum
og ræða framtíðina með hliðsjón
af tilteknum þemum. Undirliggj-
andi markmið ráðstefnunnar er að
greina hvaða leiðir eru mögulegar til
auka vöxt og viðgang viðkomandi
samfélaga og skoða hvað við getum
lært hvert af öðru. Ráðherrarnir
hlusta, taka þátt í umræðum og fara
heim með hugmyndir um leiðir til
samfélagsumbóta. Þau samskipti
sem fram fara á NFF og sú jákvæða
nálgun sem notuð er til þess að
horfa til framtíðarinnar gerir ráð-
stefnuna að einstökum viðburði.
Í ár var horft til tveggja þátta, ann-
ars vegar vaxtar og viðgangs skap-
andi greina og hins vegar nýsköpun-
ar í opinberum rekstri. Áður hafa á
fundunum verið rædd málefni eins
og hvernig menntakerfið styður
við nýsköpun, græna hagkerfið og
hvernig hægt er að fjölga konum
í stjórnunarstöðum. Allt málefni
sem skipta löndin miklu og í raun
heiminn allan.
Á ráðstefnunni í Reykjavík var
meðal annars rætt hvernig mennta-
kerfi gætu ýtt undir skapandi hugs-
un, hvernig hönnun getur nýst á
ýmsum sviðum, með hvaða hætti
hægt er að standa að nýsköpun í
opinberum rekstri, t.d. í flóknum
kerfum, svo sem heilbrigðiskerfum
og skattkerfum, og hvernig hægt er
að nota tækninýjungar til að hjálpa
til við skipulag, þróun og rekstur
borgarsamfélaga. Ásamt forsætis-
ráðherrunum tók fjöldi sérfræðinga
þátt í ráðstefnunni, þar af ríflega 40
frá fjölbreyttum fyrirtækjum og
stofnunum. Um var að ræða bæði
forstjóra stórra fyrirtækja, svo sem
dönsku risanna Lego og ATP, en
einnig forsvarsmenn minni fyrir-
tækja og sprotafyrirtækja og fulltrúa
frá opinberum stofnunum.
Á vefnum http://nff2015.is/ eru
allar frekari upplýsingar um ráð-
stefnuna. Þar má nálgast umfjöllun
um sérfræðingana, greinar um
þemun, samantekt af málstofum
o.fl. Áformað er að næsta ráðstefna
verði haldinn í Noregi að ári.
Northern Future Forum
Það er nokkuð vinsælt í kvik-myndum að mynda hið gamla og ekki síður að spá
í framtíðina eins og nýlegar kvik-
myndir hafa sýnt og verið vin-
sælar.
Nóg er þessa dagana af áhuga-
verðu efni sem skrásetjarar fram-
tíðar geta skoðað og kvikmyndað,
t.d. hvort hjólreiðamönnum hafi
tekist að loka Reykjavíkurflugvelli
og knýja borgarbúa sem lands-
menn almennt til hjólreiða.
Annað áhugavert er nýlega
fundinn snyrtilega hlaðinn götu-
kantur sem hlaðinn var 1928 og
nokkrir landkrabbar og lands-
feður hafa viljað kalla hafnargarð
og friða sem fornminjar. Vandséð
er hvers konar skip gætu lagst að
slíkum halla.
Nýjan spítala án myglusvepps
Þriðja málið væri hinn umtal-
aði Landspítali sem er nokkurn
veginn á sama aldri og meintur
hafnargarður og því rökrétt einnig
fornminjar. Spítalinn er ótvírætt
gamall með myglusveppum vítt og
breitt sem hafa valdið heilsuvanda
jafnvel hjá starfsfólki. Ekki eru
heldur salernin mörg samkvæmt
upplýsingum starfsmanna í fjöl-
miðlum.
Þörf á nýjum spítala með sal-
ernum og án myglusveppa er
flestum ljós. Var samþykkt sam-
hljóða í hvelli af vitringum við
Austurvöll að endurbyggja spítal-
ann við Hringbraut og endurnýta
byggingar sem mest og gera að
hátæknisjúkrahúsi. Slíkar álykt-
anir eru sjaldnast til heilla og nú
efast margir um ákvörðun vitr-
inganna en sitja upp með þá og
ákvörðun þeirra og telja nýbygg-
ingu (án myglusveppa) utan þétt-
asta byggðakjarnans vera vitur-
legri.
Til hverra var leitað?
Fullyrt er við almenning að bestu
ráða hafi verið leitað víða um lönd
og samdóma álit fengist um að
núverandi staðsetning væri hent-
ugust þrátt fyrir umferð og endur-
nýta ætti sem flest á staðnum.
Fróðlegt væri að vita til hverra
hafi verið leitað a.m.k. var það
ekki til Karólínsku stofnunar-
innar, einnar virtustu á Norður-
löndum og jafnvel í Evrópu sem
nú er að endurbyggja sjúkrahúsið
í a.m.k þriðja skipti frá grunni og
á nýjum stað utan borgarkjarn-
ans með þeim rökum að það væri
hentugra en að endurbyggja og
endurnýta allt það gamla.
Þarf ekki að leita víða til að
sjá að þekkt sjúkrahús hafi verið
endurbyggð á nýjum stöðum. Ein-
hverjir eru með langt nef eins og
Gosi forðum og svartan blett á
tungunni fyrir að segja ekki rétt
frá.
Kvikmyndagestir framtíðar-
innar geta sennilega fengið að
vita hvaða hagsmunaöfl réðu því
að reynt var að byggja hátækni-
sjúkrahús með framtíðarþarfir í
huga á mygluðum fornminjum!
Vonandi verður ekki tilefni fyrir
kvikmyndagesti framtíðarinnar
að spyrja hvers vegna ábyrgðar-
stöður séu enn veittar samkvæmt
pólitískum, ættar- og kunnings-
skapartengslum en ekki faglegum
verðleikum.
Hátækni á mygluðum
fornminjum
Birgir
Guðjónsson
læknir
Kvikmyndagestir framtíðar-
innar geta sennilega fengið
að vita hvaða hagsmunaöfl
réðu því að reynt var að
byggja hátæknisjúkrahús
með framtíðarþarfir í huga á
mygluðum fornminjum!
Í ár var horft til tveggja
þátta, annars vegar vaxtar
og viðgangs skapandi greina
og hins vegar nýsköpunar í
opinberum rekstri.
Arnar Þór
Magnússon
skrifstofustjóri
í forsætisráðu-
neytinu
Málsvari byggingamanna
það er mikilvægt að ráða iðnmeistara
sem er með trausta fagmenn í vinnu.
Fagmenn með iðnréttindi bera félagsskírteini.
ER NÝJA
DRAUMAHÚSIÐ
ÞITT BYGGT AF
FAGMÖNNUM?
Vertu viss um að nýja draumaheimilið
sé byggt af fagmönnum með iðnréttindi
áður en þú ráðstafar aleigunni.
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r28 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-F
D
C
4
1
6
E
E
-F
C
8
8
1
6
E
E
-F
B
4
C
1
6
E
E
-F
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K