Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 50

Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 50
Fátt er foreldrum mikilvægara en að börnum þeirra líði vel í skólanum, eigi góða félaga og vini, hafi sjálfstraust og góða sjálfs- mynd. „Þú mátt ekki vera með í leiknum“ eða „ég vil ekki leiða þig“ eru orð lítilla leikskólabarna í íslenskum leikskólum, barna sem eru að fóta sig í flóknum heimi og læra samskipti við jafnaldra sína. Svona samskipti virðast sak- leysisleg, en ef þau eru endurtekin gagnvart sama barninu án þess að hinir fullorðnu grípi inn í, skapast mynstur sem getur þróast út í ein- elti eða útilokun og varað árum saman. Mikilvægt er að byrgja brunninn og það er á ábyrgð hinna fullorðnu. Barnaheill – Save the Children á Íslandi bjóða leikskólum nú til notkunar forvarnarefni gegn ein- elti. Efnið nefnist Vinátta, eða Fri for mobberi í Danmörku þar sem það er upprunnið. Vinátta byggir á nýjustu rann- sóknum á einelti og samanstendur af verkefnatösku með raunhæfum verkefnum fyrir börnin og leið- beiningum fyrir starfsfólk, en efnið er einnig notað með foreldrum. Árangur af notkun þess er mældur reglulega og reynist mjög góður. Samkvæmt Vináttu er litið á ein- elti sem félagslegt, menningarlegt og samskiptalegt mein, en ekki einstaklingsbundið vandamál eins og áður var gjarnan álitið. Vinátta leggur áherslu á hópinn sem heild og að vinna með viðhorf og sam- skiptamynstur. Ekki er einblínt á að einhver sé slæmur og annar góður, ekki á geranda eða þol- anda. Í Vináttu eru börnin þjálfuð í að setja sér mörk og bregðast við órétti sem þau og félagarnir eru beitt. Umburðarlyndi og samkennd Það sem einkennir barnahópa þar sem einelti nær ekki að þrífast er hár þröskuldur umburðarlyndis og samkennd. Börnin njóta virðingar og viðurkenningar. Þau finna sér sinn eðlilega sess í hópnum sama hver þau eru, hvernig þau líta út, hvaða hlutverki þau gegna eða hvers þau eru megnug. Gildi margbreyti- leikans er virt og umburðarlyndi fyrir því að hópurinn sé samsettur úr mismunandi einstaklingum með mismunandi einkennum og styrk- leikum. Þar er jákvæður og góður skólabragur. Á því byggir Vinátta. Haustið 2014 tóku starfsmenn í sex leikskólum í jafnmörgum sveitarfélögum þátt í námskeiði á vegum Barnaheilla til að öðlast rétt til að nota Vináttu-námsefnið. Það er óhætt að segja að mikil ánægja sé með efnið meðal starfsfólks, barna og foreldra og góður árangur er af notkun þess. Nú hafa 25 nýir leik- skólar sótt um að fá efnið til notk- unar og munu starfsmenn þeirra sækja námskeið í janúar 2016 og fá námsefnið afhent að því loknu. Barnaheill – Save the Children á Íslandi vilja bjóða fleiri leikskólum þátttöku í verkefninu og benda áhugasömum á að hafa samband við undirritaða á margret@barna- heill.is. Á vefsíðu Barnaheilla má sjá frekari upplýsingar um Vináttu. Árlega er haldið upp á alþjóð- legan dag gegn einelti 8. nóvember. Það er von Barnaheilla að innan tíðar verði Vináttu-verkefnið komið í notkun það víða að það skapi íslenskum börnum umhverfi þar sem einelti nær ekki að festa rætur og þrífast. Ég vil ekki leiða þig … Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjóri inn- lendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi Nýlegar fréttir þar sem grunur leikur á að konum sé byrluð ólyfjan á skemmtistöðum í Reykjavík er ógeðfelld lesning. Þessi brot eru alltof algeng hér á landi. Öllum má vera ljóst að slíkur verkn- aður, að setja deyfandi lyf í drykk hjá einstaklingi, er partur af tilraun til nauðgunar. Það er kristaltært að ábyrgð á nauðg- un ber aðeins sá sem hana fremur. Allt tal um gáleysislegan klæðnað kvenna eða óhóflega áfengisdrykkju fórnar- lamba er argasta þvæla enda er slíkt ofbeldi aldrei afsakanlegt. En hvað er til ráða? Öryggismálum má skipta í þrennt; vitund, varnir og viðbrögð. 1) gera þá sem eru í hættu meðvitaða um hættuna. 2) setja upp varnir til að draga úr líkum á að hættan komi upp og 3) innleiða viðbrögð til að minnka hugsanlega skaða. Í einni stöðuuppfærslu þar sem fórnarlamb tjáir sig, segir: „Þú … hefur … passað vel uppá að byrla okkur öllum til þess að það gæti nú engin okkar komið þeirri okkar sem þú ætlaðir að nauðga til aðstoðar þegar við myndum lamast …“ Í hvernig samfélagi búum við þar sem brotamaður getur gengið út frá því vísu að ósjálfbjarga manneskju verði ekki hjálpað af ókunnugum? Getur almenningur, með yfirvöld í fararbroddi, ekki tekið upp þá vitund að áberandi drukkið fólk eigi ekki að vera eitt á ferli, heldur að það skuli aðstoðað? Nú er það svo að dyraverðir þurfa vottun yfirvalda. Það eru því hæg heimatökin þar að auka vitund þeirra hvað þessa ógn varðar. Spurning um hugarfar Ef skemmtistaður leggur áherslu á að stöðva áberandi ölvaðan einstakling á leið inn, af hverju má þá ekki stöðva áberandi ölvaðan eða lyfjaðan einstak- ling sem er á leið út; veit hann eða hún hvert skuli haldið? Þykir viðkomandi hæfur til að koma sér heilum heim? Einnig má þá spyrja þann sem er að aðstoða þann ölvaða (hugsanlegur gerandi) um skilríki, s.s. taka mynd af þeim þannig að ef til kæru kemur í kjölfar lyfjanauðgunar, þá eru upp- lýsingar um geranda til. Hvað með þá sem eru edrú inni á þessum stöðum? Barþjónar, dyraverðir og aðrir starfsmenn? Af hverju er með- vitundarleysi eða ofurölvun ekki gerð að stórmáli inni á skemmtistöðum? Þetta er spurning um hugarfar. Hvaða staðir eru þetta? Lögreglan hlýtur að búa yfir þeim upplýsingum út frá útköllum og kærum. Hvað ef til- raun til lyfjaárásar á skemmtistað hefur áhrif á endurnýjun vínveitingaleyfis? Hvað ef þessir staðir eru opinberaðir, taka þeir þá kannski til hjá sér? Þjálfa starfsmenn sína betur, leita þeir frekar tæknilegra lausna, s.s. að bjóða upp á „örugg glös“ eða ísmola sem greina lyf? Af hverju búum við ekki til umhverfi þar sem meðvitundarleysi á almanna- færi er tekið meira alvarlega? Við þurfum að auka umræðuna, upplýsa um hugsanlegar afleiðingar og fjölga Samverjum. Ég veit að það er hægt að draga úr fjölda lyfjaárása, sem og draga úr líkum á að þær heppnist. Þetta er spurning um vilja þeirra sem ráða. Lyfjaárásir – allir til varna Eyþór Víðisson löggæslu- og öryggis- fræðingur Ef skemmtistaður leggur áherslu á að stöðva áberandi ölvaðan einstakling á leið inn, af hverju má þá ekki stöðva áberandi ölvaðan eða lyfjaðan einstakling sem er á leið út; veit hann eða hún hvert skuli haldið? Árið 1962, þá 24 ára, kom undirritaður heim frá námi ásamt konu og barni, næstum peningalaus. Hópur nokkurra góðra félaga hófst þá handa um undirbún- ing þess að fá lóð og hefja undirbún- ing að byggingu íbúðablokkar. Við gengum í Byggingasamvinnufélagið Framtak, mynduðum þar deild sem bar ábyrgð á sínum gerðum. Árið 1963, eftir nokkra vinnu og nokkurn tíma, fékkst lóð frá Reykja- víkurborg fyrir fjögurra hæða sextán íbúða blokk við Fellsmúla. Sextán fjöl- skyldur hófust handa. Í þessum hópi voru einstaklingar með sérhæfða menntun sem nýttist vel til þessara byggingaframkvæmda. Arkitekt, raf- virki og trésmiður en einnig aðrir eins og teiknari, kennari, sjómenn og fagmenn á allt öðrum sviðum. Allt var þetta fólk sem gat notað krafta sína til margvíslegrar vinnu, allt verk sem vinna þarf á hinum ýmsu stigum byggingaframkvæmda. Til þeirra verkefna sem við réðum ekki við varð að kaupa vinnu frá fagmönnum. Verkfræðingar, bygg- ingameistari o.fl. komu þar við sögu. Undirbúningur framkvæmda tók sinn tíma og það fóru fram umræður eins og um stærðir og gæði íbúða. Niður- staðan var bygging þriggja og fjögurra herbergja íbúða ásamt kjallara sem yrði allur sameign. Greiðslugeta hópsins og raunverulegur kostnaður réð för Kjörin var stjórn og formaður sem bar ábyrgð á framkvæmdum, fjárfram- lögum og byggingarhraða. Áætluð fjárhagsleg geta hópsins sem heildar lá þar að baki. Allt var þetta byggt á ákvörðunum á félagsfundum. Í upphafi skráðu fjölskyldur sig fyrir ákveðinni stærð íbúða. Hlutfallslegur kostnaður hvers og eins byggðist á stærðarhlutföllum hverrar íbúðar í eigninni. Um leið og byggingaframkvæmdir hófust urðu til verkefni fyrir margar vinnandi hendur fagmanna sem og almennra félaga. Fjölskyldumæður sem báru þung- ann af börnum vinnumannanna lögðu sitt af mörkum; þær sáu um fatnað, fæði og aðra umhyggju. Fram- kvæmdir gengu nokkuð markvisst fyrir sig en greiðslugeta hópsins og raunverulegur kostnaður réð þar för. Álagið á flesta félaga var mikið, því margir unnu langan og strangan vinnudag og svo einnig um kvöld og helgar. Vinna fagmanna var sam- kvæmt samningum og vinnutími félaga var vottaður af samstarfs- manni eða verkstjóra á vinnustað. Stjórn félagsins var virk og bar mikla ábyrgð. Framkvæmdir, allt frá fyrstu skóflustungu þar til flutt var inn, stóðu yfir í tæp þrjú ár. Þegar allt var að verða tilbúið var efnt til dráttar um hvar hver fjölskylda lenti í húsinu og það virtust flestir ánægðir með sinn hlut. Ég fékk einn félagann til að rifja þennan tíma upp: „Ég var jafn blankur og öll hin, en ég átti bíl sem ég seldi og átti þar með fyrir fyrstu innborgun, sem gæti hafa verið á bilinu 30 til 50 þúsund gamlar krónur. Þetta voru að minnsta kosti fjögurra mánaða laun. Síðan tóku við fastar mánaðar- greiðslur, 10 þúsund krónur. Þessa greiðslu gat maður svo lækkað með því að leggja fram sína vinnu – og það gerði ég óspart. Ég hjólaði inn í Fells- múla að loknum vinnudegi og vann þar í þrjá til fjóra tíma eftir því sem þurfti hverju sinni. Þetta var mestan- part hreinsun á timbri, mokstur og önnur skítavinna.“ Á þessum tíma voru nokkrir bygg- ingameistarar og byggingafélög að byggja álíka blokkir í hverfinu kringum okkur þar sem til staðar var þekking, reynsla og fjármagn. Stuðningur okkar kom frá lífeyris- sjóðum ásamt Húsnæðisstofnun. Bankar vildu lítið af okkur vita. Athygli okkar vakti að þrátt fyrir sterkari stöðu þessara framkvæmdaaðila voru þeir að selja sínar íbúðir á hærra verði en raunkostnaður var við okkar hús. Við vissum á hverjum tíma hvað við höfðum lagt fram í formi vinnu og peninga. Lágmark 20-30% hærra verð urðu þeirra kaupendur að borga og að auki var sameignin verulega minni, því flestir þeirra voru að selja íbúðir í kjöllurum húsanna. Fólk í íbúðarleit heimsótti okkur til að forvitnast um raunkostnað og þaðan höfðum við upplýsingar um verðlagningu. Einka- framtakið vildi fá sinn hagnað. Hvar eru byggingarsamvinnu- félög ungs fólks? Samfélag okkar varði í mörg ár og hjá mörgum var þetta góður áfangi til frekari fjárfestinga. Raunkostnaður og nýting okkar á vinnuframlagi gaf mörgum gott veganesti. Ég furða mig á því hvers vegna þetta samvinnubyggingarform hefur ekki haldist. Hvar er í dag ungt fólk sem nýtir krafta sína og þekkingu til þess að eignast með þessu móti þak yfir höfuðið á réttu verði í stað þess að borga óeðlilegt yfirverð? Þak yfir höfuðið – saga um samstarf Gísli B. Björnsson myndlistarmaður Það sem einkennir barna- hópa þar sem einelti nær ekki að þrífast er hár þrösk- uldur umburðarlyndis og samkennd. 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r34 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð Framkvæmdir gengu nokkuð markvisst fyrir sig en greiðslugeta hópsins og raunverulegur kostnaður réð þar för. 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E F -2 5 4 4 1 6 E F -2 4 0 8 1 6 E F -2 2 C C 1 6 E F -2 1 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.