Ægir - 01.09.2014, Qupperneq 26
26
Útgerðar og fiskvinnslufyrirtæk-
ið Stakkavík í Grindavík tók nú í
október við nýjum 30 tonna bát
sem smíðaður var hjá
bátasmiðjunni Seiglu á Akur-
eyri. Báturinn er í krókaafla-
markskerfinu og er annar
tveggja af þessari stærð sem
Stakkavík kaupir af Seiglu en
síðari báturinn er væntanlegur
haustið 2015. Nýi báturinn ber
nafnið Óli á Stað GK-99 en bát-
ur Stakkavíkur með því nafni
gekk upp í kaupin, sem og ann-
ar af bátum fyrirtækisins, Hóps-
nes GK-77.
Hermann Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Stakkavíkur, segir
bátinn hafa reynst vel í fyrstu
túrum. Bylting verði með til-
komu hans, bæði hvað varðar
vinnuaðstöðu, aðbúnað áhafn-
ar og síðast en ekki síst afla-
meðferðina.
„Þetta er mun stærri bátur
en við höfðum fyrir og með
stærri lest sem getur tekið allt
að 40 ker, 400 og 600 lítra. Í
bátnum er einnig krapavél og
blóðgunarker sem gera okkur
kleift að koma með hráefnið í
bestu gæðum í land. Það er
alltaf markmiðið,“ segir Her-
mann en í bátnum er 50
rúmmetra fiskilest.
Stór og vel búinn
Óhætt er að segja að báturinn
sé vandaður og öflugur hvernig
sem á hann er litið. Óli á Stað er
14,81 m að lengd og 55,70 m á
breidd. Fjórir áhafnarklefar eru í
bátnum og rúm fyrir átta skip-
verja en auk þess er rúmgóð
setustofa, borðsalur, eldhús og
snyrtiaðstaða. Gott rými er
einnig í brú og báturinn er bú-
inn öllum helstu fiskileitar- og
siglingatækjum, m.a. fjölgeysla-
mæli, JRC dýptarmæli, straum-
mæli, AIS tæki, kompás og Max-
Sea siglingatölvu, allt búnaði
frá Sónar.
Aðalvélin er af gerðinni Yan-
mar 6AYM-WGT frá fyrirtækinu
Marási. Báturinn er búinn
tveimur hliðarskrúfum frá
Sleipner og tveimur Northen
Light ljósavélum.
Á yfirbyggðu þilfari er línu-
búnaður frá Mustad sem selt er
af fyrirtækinu Tóbis en frá Beiti í
Vogum komu beitukör, blóðg-
unar- og skolunarkör, auk
færaspils, krapavél í bátnum er
frá Kælingu ehf.
Meðal annarra fyrirtækja
sem komu að verkinu má nefna
Danfoss, Norðurlagnir, Sérefni,
Rafeyri og trésmiðjuna Öl.
Ný tækifæri opnast
Hermann segir verulega
breytingu verða í starfsemi
Stakkavíkur með tilkomu báts-
ins, sem og þegar sá síðari bæt-
ist við á næsta ári. Óli á Stað
opni fyrirtækinu meiri mögu-
leika en áður.
„Stærðar sinnar vegna og
búnaðar opnar þessi bátur okk-
ur mikla möguleika og hag-
ræðingu í bæði útgerðinni og
vinnslunni. Í fyrsta túrnum
fengum við 16-17 tonn, sem er
mjög gott og allt reyndist hið
besta þó auðvitað þurfi alltaf að
lagfæra einhver smáatriði í byrj-
un. Það er eðlilegt,“ segir Her-
mann.
S
k
ip
a
stóllin
n
Bylting fyrir Stakkavík
með nýjum Óla á Stað
Óli á Stað GK-99, fánum prýddur við komuna til Grindavíkur í október. Myndir: Eyjólfur Vilbergsson
Blóðgunar og þvöttakör eru frá Beiti í Vogum. Í klefum eru kojur fyrir átta skipverja.
Báturinn er búinn öflugum línubúnaði frá Mustad. Hægt er að vera með
22 þúsund króka.