Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2014, Page 28

Ægir - 01.09.2014, Page 28
28 „Báturinn hefur staðist okkar væntingar. Þetta er mikil breyting frá gamla bátnum, tvennt ólíkt,“ segir Örn Rafns- son, skipstjóri á Óla á Stað en á móti honum er sonur hans, Rafn, við stjórnvölinn. Aðspurð- ur í hverju stærstu breytingarn- ar felist nefnir hann aðbúnað áhafnarinnar fyrst til sögunnar. „Það er mikið rými fyrir áhöfnina í bátnum og vel búið að okkur í alla staði. Stóran hluta úr árinu róum við frá Siglufirði eða Austfjörðum og núna komum við til með að búa í bátnum í stað þess að leigja íbúðir á stöðunum,“ segir Örn. Útgerðarformið á bátnum segir hann verða með líku sniði og áður, dagróðrar og aflanum landað til vinnslu hjá Stakkavík í Grindavík. Báturinn hefur verið á línu úti fyrir Grindavík og Sandgerði nú fyrstu vikurnar og verður þar á vertíðinni í vetur og fram á vorið. Síðan tekur við úthald í þorskveiði á öðrum svæðum, líkast til fyrir Norður- landi og Austurlandi eins og verið hefur. „Þessi aðstaða um borð gerir okkur auðveldara að færa okkur um set eftir því hvar veiðin er þannig að möguleikarnir verða meiri en áður,“ segir Örn og bætir við að Óli á Stað sé ágætt sjóskip og ganghraðinn vel ásættanlegur. Hagkvæmast sé að keyra bátinn á um 8,5-9 míl- um. „Hann er svolítið snöggur en veltur ekki mikið og stendur sig bara mjög vel í sjógangi. Hann er stór og öflugur og gott að draga línuna á honum. Síðan er nýjung hjá okkur að hafa blóð- gunarkör á þilfarinu þar sem hægt er að láta fiskinn blæða áður en hann fer í ískrapa í lestina. Þetta á að skila betri vöru, bæði blóðgunarkerfið og að geta kælt fiskinn hraðar nið- ur en áður.“ Örn segir veiðin að undan- förnu hafi verið mest í keilu og löngu á línuna, þorskurinn láti lítið á sér kræla. „Þetta er venju- legur gangur hér á slóðinni. Þegar kemur fram í desember og fram yfir áramót fer þorkveiðin að aukast og vertíð- in í fullan gang þar með,“ segir hann. Örn Rafnsson, skipstjóri, í brúnni. Mikil breyting fyrir áhöfnina S k ip a stóllin n Óli á Stað við bryggju í Grindavíkurhöfn.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.