Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2014, Page 30

Ægir - 01.09.2014, Page 30
30 Goðsögnin um að konur séu frá Venus en karlar frá Mars er lífseig enn í dag en það eru konur eins og Erla Björg Guð- rúnardóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Marz Sjávarafurða ehf., sem hjálpa til við að breyta ímynd okkar um stöðu kynj- anna en hún stýrir fyrirtæki þar sem eingöngu konur starfa. Reyndar er engin tenging nafnsins við þessa goðsögn að sögn Erlu heldur var kennitala með þessu nafni til í fjöl- skyldunni svo hún nýtti sér tækifærið. Það var auk þess kostur að nafnið hljómaði vel í alþjóðlegu umhverfi. Marz stofnað í Stykkishólmi Erla Björg stofnaði sjávarút- vegsfyrirtækið Marz ehf. 2003. Hún hafði starfað hjá Eimskipa- félaginu frá 1988 til 1996 þegar hún gifti sig til Stykkishólms. Þegar Erla stofnaði fyrirtækið voru fá atvinnutækifæri í Stykk- ishólmi en neyðin kennir naktri konu að spinna eins og Erla sagði í fyrirlestri sínum. Og nú, 11 árum síðar, er fyrirtækið með skrifstofur á Íslandi og í Dan- mörku. Kaupendur Marz sjávar- afurða eru iðnaðarkaupendur, heildsalar, veitingahúsakaup- endur og smásöluverslanir og eru viðskiptalönd fyrirtækisins um allan heim. Stöndum við það sem við segjum Erla hélt erindi á Sjávarútvegs- deginum 2014 sem hún kallaði „Konur í karlaheimi“! Skiptir það máli að hennar mati? „Það var alls ekki upphafleg stefna hjá okkur að ráða ein- göngu konur til starfa heldur hafa mál þróast með þeim hætti,“ segir Erla og er mjög sátt við þá þróun. „Hér hefur starfað karlmaður en það gekk ekki. Konurnar hafa einfaldlega reynst betur í þessu fyrirtæki. Með því er ég alls ekki að fella neinn dóm yfir karlmönnum því ég er þess fullviss að slíkt samstarf sé miklu frekar spurning um persónuleika en kyn. Allir geta verið sammála um að í fyrirtæki þar sem er eingöngu annað kynið sé annarskonar húmor og öðruvísi umræðuefni en ef vinnustaðurinn er blandaður. Hingað hafa valist mjög sterkar konur og það hefur margsýnt sig að í þeim er töggur,“ segir Erla og brosir að þeim misskiln- ingi sem sumir séu haldnir að konur séu að einhverju leyti veikari en karlarnir. „Ég er sjálf mikil strákastelpa og kann vel við sterkar konur. Við Marzkonurnar vegum hver aðra mjög vel upp því við erum sterkar á mismunandi sviðum. Það er óneitanlega einhver þráður á milli okkar og gagn- kvæmur skilningur á því sem gera þarf. Vinnubrögð okkar gerir okkur auðveldara að tak- ast á við ný verkefni. Við erum sterkar, vinnusamar, ábyggi- legar, nákvæmar, duglegar og lífsglaðar og andinn og vinnu- brögð Marz stelpnanna er klár- lega markaðsforskot í hörðum karllægum heimi,“ segir Erla. „Við stöndum við það sem við segjum og þannig vil ég að við vinnum. Ég legg mikið upp úr því að við vinnum hratt og örugglega, svörum öllum fyrir- spurnum samdægurs og klár- um hvert verkefni vel. Það gef- ur auga leið að margir vilja vera í viðskiptum við fyrirtæki sem stendur alltaf við sitt. Þar er okkar forskot en ekki það að við séum konur,“ segir Erla ákveðin. Í öllu markaðsefni Marz eru not- uð persónuleg skilaboð til við- skiptamanna. Það segir Erla sannarlega vera hluta af því að vera í góðu sambandi við við- skiptamenn fyrirtækisins. Konur í karlaheimi Erla Björg Guðrúnardóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Marz Sjávarafurða ehf. Þar starfa einvörðungu konur. S já v a rú tv eg u r

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.