Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 1
SögufrægurnafnalistiFRANSKRI GESTABÓK FRÁ Á1839 SUNNUDAGUR POPPARINN ÁSTHILDURSLÓ Í GEGN NÍNA DÖGG SKAPAREIGIN STÍL SIGGA DÖGGBÝÐUR HEIM MATARBOÐ 32 TÍSKA 40 INNLIT 26 SAMEINAST ÍKRÖFUGÖNGU 3. MAÍ 2015 46 GET „SNAPPAГYFIR ÓSANNGIRNI Í 5SMÁFORRIT SEMMINNA MANN Á AÐSTANDA UPP FRÁSKRIFBORÐINU L A U G A R D A G U R 2. M A Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  102. tölublað  103. árgangur  KREDDUFESTA ALLTAF AÐ SKJÓTA RÓTUM FJÖGURRA ÁRA ÆVINTÝRI Á SKÚTU FRÁ FRAKKLANDI TIL ESKIFJARÐAR 16SKÁLHOLT EFTIR KAMBAN 10 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ef kemur til verkfalls hjúkrunar- fræðinga hjá ríkinu verður ástandið í heilbrigðiskerfinu gjörsamlega komið úr böndum, að mati land- læknis. Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga efnir til atkvæðagreiðslu á meðal félagsmanna um boðun ótímabundins verkfalls hjá ríkinu frá og með 27. maí næstkomandi. Verkföll starfsstétta innan BHM valda þegar röskun í spítölum og annars staðar í heilbrigðiskerfinu. Fjölda læknisaðgerða hefur verið frestað, meðal annars meðferð krabbameinssjúklinga. Embætti landlæknis fylgist með ástandinu. „Ég veit að það er allt gert sem hægt er til að tryggja öryggi sjúk- linga. Ég fæ hins vegar ekki séð hvernig hægt væri að fást við að- stæður ef til verkfalls hjúkrunar- fræðinga kæmi,“ segir Birgir Jak- obsson landlæknir. Hann segir að embættið hafi ekki úrræði til að grípa inn í. Það geti aðeins reynt að þrýsta á samn- ingsaðila um að ljúka deilunni. „Það er ekki hægt að reka heil- brigðiskerfið við slíkar aðstæður,“ segir Birgir og tekur fram að hann vonist til þess að ekki komi til verk- falls. Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, segir að langt sé á milli sjón- armiða samninganefnda og þar sem ekki sé hægt að merkja mikinn samningsvilja hjá ríkinu séu hjúkr- unarfræðingar nauðbeygðir til að kanna hug félagsmanna til aðgerða. Ástandið úr böndum  Landlæknir sér ekki hvernig hægt verður að reka heil- brigðiskerfið ef til verkfalls hjúkrunarfræðinga kemur MLaunin verði samkeppnishæf »6 Jónas Hallgrímsson skáld taldi sig ári yngri en haft er fyrir satt. Hann skrif- ar fæðingarár sitt 1808, ekki 1807 eins og kirkjubókin segir. Þetta má sjá á gestalista úr sögufrægu samsæti sem Íslendingar héldu Frakkanum Paul Gaimard í Kaupmannahöfn í janúar 1839. Morgunblaðið birtir í dag mynd af listanum, en hann hefur ekki áður komið fyrir sjónir almennings. Á list- anum, sem er í bók er kom óvænt í leitirnar fyrir nokkrum árum, eru eiginhandaráritanir 32 Íslendinga sem voru við nám eða störf í Danmörku í ársbyrjun 1839. Í hópnum eru nokkrir nafnkunn- ustu Íslendingar 19. aldar. Auk Jón- asar má nefna Jón Sigurðsson forseta og Jens bróður hans, Konráð Gíslason, Finn Magnússon, Þorleif Repp, Grím Thomsen og Pétur Havsteen. Athygli vekur að Jón skrifar nafn sitt með mun stærra letri en aðrir. Það er eins og hann vilji segja: „Hér kem ég!“ að því er fram kemur í grein um gesta- listann og Gaimard-leiðangurinn. Jónas áleit sig einu ári yngri  Gaimard-listinn frá 1839 birtur Jón Sigurðsson Jónas Hallgrímsson MSunnudagur »52-54 GOLFHÁTÍÐ Í DAG KYNNTU ÞÉR FRÁBÆR TILBOÐ OG SPENNANDI KEPPNIR KOMDU OG GERÐU ALLT KLÁRT FYRIR GOLFSUMARIÐ  Miklir sinubrunar voru í mýrum norðan við Stokkseyri í gærkvöldi. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu börðust við eldinn fram eftir kvöldi. Engar byggingar voru í hættu. Ekki var hægt að komast með slökkvibíla að eldinum og voru slökkviliðsmenn að drepa í log- unum með klöppum. Það var sein- legt verk. Varðstjóri hjá Bruna- vörnum taldi að um 10 hektara landsvæði væri undir. Sina logaði í 10 hektara svæði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, telur skynsamlegt að mismun- andi hópar innan sambandsins eigi samstarf um samninga um almennar launahækkanir en jafn ljóst sé að mæta þurfi sér- óskum einstakra hópa. Hann hvetur til þess að settur verði aukinn þrýstingur á atvinnu- rekendur með því að fylkja 110 þúsund félagsmönnum ASÍ undir einn fána. Ef fleiri hópar færu að dæmi SGS mætti bú- ast við að 100 þúsund félagar væru komnir í verkfall í lok maí. Samstarf um grunnhækkun FORSETI ASÍ Fjölmenni var í kröfugöngu verkalýðsfélaganna í Reykjavík og á útifundi á Ingólfstorgi í gær, á baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Svo var einnig á mörgum öðrum stöðum þar sem efnt var til dagskrár til að efna baráttu- andann í yfirstandandi kjaradeilum og boðuðum aðgerðum. Í ræðum for- ystufólks kom fram að víðtækur stuðningur er við kröfur um hækkun launa verkafólks og hart deilt á atvinnurekendur og ríkisstjórn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dagskrá á baráttudegi verkalýðsins Fjölmenni í kröfugöngum og á baráttufundum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.