Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
VITA
Mallorca
VITA er lífið
Vaxtalaus ferðalán
til allt að 12 mánaða
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
74
07
9
4/
20
14
Fjölskyldan kemst í sólina með VITA fyrir aðeins
25.900kr. á mánuði*Vaxtalaust
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
*M.v. 2 fullorðna og 2 börn til Mallorca eða Calpe á völdum dagsetningum.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Sigurður Bogi Sævarsson
Andri Steinn Hilmarsson
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
sigldi í Landeyjahöfn síðdegis í
gær, það er fyrstu ferðina síðan í
nóvemberlok í fyrra. Á síðustu dög-
um hafa dæluskip verið notuð til að
fjarlægja sand frá höfninni svo þar
er nú orðið fært inn á flóði.
„Sundið milli lands og Eyja var
spegilslétt og siglingin gekk vel.
Minnsta dýpi undir skipið í Land-
eyjahöfn var 2,5 metrar og það er
feikinóg. Þó á eftir að dæla talsvert
miklu af sandi enn, svo skipið kom-
ist líka inn á fjöru,“ sagði Steinar
Magnússon, skipstjóri á Herjólfi, í
samtali við Morgunblaðið.
Mikil gleði var á meðal Eyja-
manna í gær þegar Eimskip til-
kynnti að Herjólfur myndi sigla
sína fyrstu ferð til Landeyjahafnar
síðdegis. Gunnlaugur Grettisson,
rekstrarstjóri Herjólfs, segir að-
stæður hafa verið eins og best
verður á kosið, fyrir utan dýpið, en
Herjólfur sigldi inn á flóði í gær.
Björgun ehf. vinnur áfram að dýpk-
un hafnarinnar og segir hann að
fyrst um sinn taki áætlunarferðir
Herjólfs mið af sjávarföllum.
Gunnlaugur Kristjánsson, for-
stjóri Björgunar, segir enn dálítið
magn ótekið í höfninni en góðar
horfur séu um framhaldið.
Höfnin er aðeins hálfbyggð
Alls 119 manns og 40 bílar voru
með ferjunni í Landeyjaferðinni í
gær. „Þessarar ferðar hefur verið
beðið með óþreyju því Eyjamenn
eiga allt sitt undir góðum sam-
göngum. Og nú er þetta að komast
í lag og einn sagði við mig í dag að
þegar orðið væri fært í Landeyjar
færi sólin loksins að skína skærar,“
segir Steinar skipstjóri.
Hann segir að í vetur hafi veður
oft verið leiðinlegt við suðurströnd-
ina og suðvestlægar áttir ríkjandi.
Legið hefði í brælu og öldutíð verið
mikil. „Við höfum aldrei fellt jafn
margar ferðir niður og í vetur því
bæði siglingaleiðin og eins innsigl-
ingin í Þorlákshöfn getur verið erf-
ið.“
Steinar kveðst vel skilja óþol
fólks í Vestmannaeyjum yfir því að
samgöngur séu í ólagi, það er að
ferjan hafi ekki náð í Landeyjahöfn
í rúma fimm mánuði.
„Menn verða þó að hafa í huga að
mannvirkið er aðeins hálfbyggt.
Það er mjög aðkallandi að reistir
verði varnargarðar sem næðu
lengra út og myndu umlykja þá
sem nú eru ystir. Slík framkvæmd
er brýn og myndi fjölga þeim dög-
um sem fært væri í höfnina. Ný
ferja myndi ekki leysa vandann
nema að litlu leyti,“ segir Steinar
sem hefur verið til sjós hjá Eimskip
frá árinu 1963 og siglt um öll
heimsins höf. Á Herjólfi hefur
Steinar verið síðan 2007.
Nær senn 3.000 ferðum
„Það er gaman að eiga samskipti
við Eyjamenn sem láta sig Herjólf
miklu varða, enda er þetta þeirra
þjóðvegur. Í þessum töluðum orð-
um er ég kominn með nákvæmlega
2.914 ferðir til og frá Eyjum og
mér reiknast svo til að fyrri hlut-
ann í júní nái ég 3.000 ferða tak-
markinu,“ segir Steinar sem verður
í brúnni á Herjólfi út október næst-
komandi – en lætur þá af störfum
vegna aldurs.
Í brúnni Steinar Magnússon, skipstjóri, segir veturinn hafa verið erfiðan
Erfiður vetur er að baki
Herjólfur loks í Landeyjahöfn Aldrei fleiri ferðir verið felldar niður
Ferðirnar taka enn mið af sjávarföllum 2.914 ferðir Steinars skipstjóra
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Ánægðir Fyrstu farþegar Herjólfs ganga frá borði í Landeyjahöfn síðdegis í gær. Skipið hafði ekki siglt þangað síðan í lok í nóvember.
Efla verkfræðistofa fór í einu og öllu
eftir aðferðafræði Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar, ICAO, við gerð
skýrslu um nothæfisstuðul Reykja-
víkurflugvallar. Efla vann skýrsluna
fyrir Isavia og segir Guðni Sigurðs-
son, upplýsingafulltrúi Isavia, að Efla
hafi farið eftir aðferðafræði ICAO.
Til þess að meta forsendur útreikn-
inga Eflu fékk Isavia óháða úttekt-
araðila; veðurfræðing, verkfræðing
og sérfræðinga í flugleiðsögu, til að
gera óháða úttekt á forsendum út-
reikninganna.
„Þetta er allt alveg hárrétt og
byggt á mjög nákvæmum veður-
gögnum sem eru tekin á 15 sekúndna
fresti,“ segir Guðni.
Í Morgunblaðinu í gær gagnrýndi
Jóhannes Loftsson, verkfræðingur
og framkvæmdastjóri, skýrslu Eflu
og sagði að þar hefði verið stuðst við
nýleg veðurgögn sem gætu valdið
verulegu vanmati þar sem útreikn-
ingar Eflu tækju ekki tillit til þekktra
langtímasveiflna í veðurkerfum í
kringum Ísland. Hann segir að Norð-
ur-Atlantshafs-áratugasveiflan sé
langtímaveðursveifla, sem sé talin
valda hita- og veðursveiflu á 60-70 ára
endurtekningatíma.
Vísar gagnrýni á bug
Guðni vísar gagnrýni Jóhannesar á
bug og segir að Isavia hafi leitað til
fyrrnefndra sérfræðinga. Stuðst
verði við skýrsluna sem nú er á borð-
um Samgöngustofu við umfjöllun
stofnunarinnar á mögulegum áhrif-
um lokunar flugbrautar 06/24, hinnar
svokölluðu neyðarbrautar.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
vildi ekki tjá sig um skýrsluna þegar
Morgunblaðið leitaði eftir við-
brögðum hennar. Þá vildi aðstoð-
armaður borgarstjóra Reykjavíkur
heldur ekki tjá sig um málið að svo
stöddu. ash@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Isavia segir að forsendur út-
reikninga Eflu standist skoðun.
Stuðst
verður við
skýrsluna
Segir skýrsla Eflu
standast kröfur ICAO
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er orðið svo mikið að gera að
við getum ekki stoppað skipin til að
koma þeim í slipp. Eitthvað verður
að gera,“ segir Rannveig Grétars-
dóttir, framkvæmdastjóri hvala-
skoðunarfyrirtækisins Eldingar.
Fyrirtækið hefur fest kaup á
skemmtiferðabát frá Svíþjóð sem
verður sjöundi hvalaskoðunarbátur
fyrirtækisins og sá stærsti.
Gestum í skoðunarferðir fyrirtæk-
isins hefur fjölgað um 10-20% á ári,
síðustu fjögur árin. Um 85 þúsund
gestir fóru í hvalaskoðun og aðrar
náttúruskoðunarferðir fyrirtækisins
á síðasta ári og er búist við að þeim
fjölgi um 9-10 þúsund í ár. Auk þess
rekur fyrirtækið Viðeyjarferðir.
Mikið var að gera fyrstu mánuði árs-
ins og bókanir góðar fyrir sumarið,
að sögn Rannveigar en Elding er
stærsta hvalaskoðunarfyrirtæki
landsins.
Nýi báturinn hét Norreborg og
var gerður út frá Landskrona í Sví-
þjóð. Hann hefur fengið vinnuheitið
Elding III. Hann er 34 metrar á
lengd, smíðaður 1971.
Báturinn er væntanlegur til hafn-
ar í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Þá
verður hann málaður rauður og
gerður klár fyrir 15 ára afmæli fyr-
irtækisins á föstudag. helgi@mbl.is
200 manna bátur Eldingar
Elding III Nýi báturinn verður málaður rauður, í einkennislit Eldingar.
Stöðug aukning
í hvalaskoðun