Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 22

Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015 Persónuleg þjónusta og vinalegt umhverfi Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Fjölbreytt æfingarstöð eitthvað fyrir alla Ketilbjöllur v Spinning v Hópatímar Skvass v Golf hermir v Körfuboltasalur Cross train Extreme XTX Einkaþjálfun v Tækjasalur 12 mán. kort: kr. 59.900,- (ekki skvass) nánar á veggsport.is Áhrifarík sárameðferð - Bakteríueyðandi plástur - Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is Fyrirbyggir og eyðir sýklum í sári á náttúrulegan hátt án sýkladrepandi efna. Virkar á alla helstu sárasýkla, m.a. MOSA og VRE. Sorbact® - Græn sáralækning Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast sárasýklar við umbúðirnar, verða óvirkir og hætta að fjölga sér, án sýkladrepandi efna. Skaðar ekki nýjar frumur. Ótakmörkuð notkun á allar tegundir sára. Dregur úr sársauka. Engar aukaverkanir. Vatnsheldur og ofnæmisfrír límflötur. Þolir íþróttir, leiki, sturtuböð og sund. Krumpast ekki á köntum. hlutverkum en Curio Office virðist vera fyrsta lausnin sem býður upp á notendavæna og heildstæða lausn. Að sögn Baldvins gerir Curio ráð fyrir þrenns konar notendum: „Við höfum notendur með stjórnendaað- gang sem hafa yfirsýn yfir öll verk- efni. Þá höfum við starfsmenn sem geta séð og haft góða stjórn á þeim verkefnum sem þeir eru í og hefur verið deilt með þeim. Loks eru við- skiptavinirnir sem hafa í gegnum hugbúnaðinn „glugga“ inn í það verkefni sem þeir hafa stofnað inni í hugbúnaðinum, eða hafa pantað með hefðbundnum hætti, geta fylgst náið með framvindunni, safnað saman gögnum og átt í samskiptum við allt teymið sem að verkefninu kemur í gegnum eina gátt.“ Skýr sýn á stöðuna Baldvin segir Curio Office gefa fólki með mannaforráð mun betri tæki en áður hefur sést til að fylgjast með framvindu verkefna og leiða saman bæði starfsmenn, verktaka og viðskiptavini. Framsetningin sé myndræn og hægt að nota liti sem tæki við skipulagningu verkefna. Þá henti forritið sérlega vel á vinnustöðum þar sem margir eða all- ir starfsmenn vinna í fjarvinnu. „Sem dæmi þá geta allir starfsmenn eða af- markaðir hópar átt í samskiptum á svæði sem er ekki ósvipað Facebook. Óháð því hvar fólk er í heiminum er hægt að miðla upplýsingum hratt og greiðlega, í einkasamtali eða á opn- um vegg, eða gefa til kynna ef skjót- ast þarf frá vinnustöðinni.“ Tímaskráningar- og verkseðlahlið Curio bætir yfirsýnina enn frekar. Viðmótið er hannað til notkunar jafnt á tölvuskjá, í spjaldtölvu og snjall- síma og léttur leikur fyrir starfs- manninn að skrá niður vinnustundir og verkaskiptingu, jafnvel ef dagur- inn er óreglulegur. „Hugbúnaðinum er m.a. ætlað að svara þeirri vaxandi kröfu fólks að fá aukinn sveigjanleika í vinnutíma sín- um. Starfsmaðurinn eða verktakinn vill þá kannski fá að vinna frá 9-11, en svo gera eitthvað annað frá 11-12, og taka sér hádegismat frá 12-13, vinna eftir hádegi og sækja svo börnin á skóla kl. 15-16, og klára vinnudaginn eftir kvöldmat. Með Curio Office er þetta ekkert mál og gerir vinnustað- inn sem nýtir svona hugbúnað þeim mun eftirsóknarverðari.“ Með stimpilklukk- una í símanum  Með íslenskri lausn hafa fyrirtæki á einum stað forrit sem halda utan um allt frá tímaskráningu til verkefnastjórnunar Flækjur Baldvin Þór segir algengt að íslensk fyrirtæki noti 5-6 forrit til daglegs utanumhalds, með miklum tilkostnaði og misjöfnum árangri. Viðmót Hugbúnaðurinn leggur áherslu á myndræna framsetningu. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Curio Office (www.curiooffice.com) er nýr íslenskur hugbúnaður sem heldur á þægilegan og skilvirkan hátt utan um verkefnastjórnun og hvers kyns fyrirtækjarekstur. Curio hefur m.a. að geyma einfalt bók- halds- og reikningakerfi, gagnsætt og fjölhæft verkefnastjórnunarkerfi, samskiptakerfi, stimpilklukku og tímaskráningu. Curio var þróað hjá auglýsinga- og vefhönnunarfyrirtækinu Betri stof- unni en síðustu áramót var nýtt fyrir- tæki, Kreativ Online, stofnað í kring- um hugbúnaðinn. Kreativ hefur einnig þróað snotra stimpilklukku á netinu sem má prufa á slóðinni www.curiotime.com. Oft mörg forrit í gangi Baldvin Þór Baldvinsson er stofn- andi og framkvæmdastjóri Kreativ og segir hann hugmyndin hafi fyrst kviknað þegar hann gerði sér grein fyrir hversu mörg forrit fyrirtæki eru oft að nota til að halda utan um reksturinn, oft gegn háu gjaldi og með notkunareiginleika sem falla ekki endilega að þörfum stjórnand- ans. „Bókhaldsforrit eru yfirleitt hönn- uð með bókarann í huga, og gerð til þess að létta honum störfin, en gagnast síður stjórnandanum sem þarf á einhverju öðru að halda en löngum runum af tölum til að skilja stöðuna í rekstrinum,“ segir Baldvin og bætir við að ekki sé óalgengt að dæmigert íslenskt fyrirtæki noti á bilinu 5-6 forrit til að halda starfsem- inni gangandi og getur mánaðarleg- ur kostnaður oft hlaupið á tugum ef ekki hundruðum þúsunda. Hann segir mörg ágæt forrit á markaðinum sem sinna afmörkuðum Baldvin notar Curio Office vita- skuld í rekstri Kreativ og segir hann þetta stjórntæki nýtast mjög vel hjá fyrirtæki þar sem fjöldi verkefna streymir í gegn í mánuði hverjum og ótalmargir verktakar, sumir í fjarlægum heimshlutum, leggja hönd á plóg. Hann segir að markaðs- umhverfið kalli í vaxandi mæli á að nota krafta verktaka og bjóða starfsfólki upp á fjarvinnu en þá um leið eykst mjög þörfin á hug- búnaði sem gerir verkefnastjórnun auðveldari og skýrari. „Þetta fyr- irkomulag þýðir líka að ég á auð- veldara með að nýta mér krafta þeirra sem færastir eru hver á sínu sviði, án þess að þurfa að ráða þá í fasta vinnu, og án þess að þurfa að fjárfesta í dýrri yfirbyggingu, s.s. húsnæði og tækjakosti.“ Með starfsmenn hér og þar VINNUSTAÐUR FRAMTÍÐARINNAR ER DREIFÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.