Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
VERUM, VERSLUM OG NJÓTUM ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR!
MIDBORGIN.IS — FACEBOOK.IS/MIDBORGIN
Gjafakor
t
Miðborg
arinnar
okkar
Fáanlegt
í bókave
rslunum
miðborg
arinnar
Í maí víkur vetrarúlpan fyrir þynnri yfirhöfnum og þeir bjartsýnustu
dusta rykið af stuttbuxunum og sandölunum. Mannlífið blómstrar í
miðborginni og þar er alltaf gott að versla. Gjafir og gotterí á hverju
strái og sól langt fram eftir kvöldi.
Opið til kl. 17:00 og víða lengur í verslunum.
BERGSTAÐIR
KOLAPORT
RÁÐHÚSIÐ
STJÖRNUPORT
TRAÐARKOT
VESTURGATA
VITATORG
Sumarið mætir
í miðborgina
LANGUR LAUGARDAGUR Í DAG
10. maí Mæðradagurinn
13. maí Listahátíð í Reykjavík sett
13. maí Miðborgarvaka til kl. 22
14. maí Uppstigningardagur
24. maí Hvítasunnudagur
Alltaf nóg af bílastæðum og munið bílastæðahúsin.
Breska FTSE 100 vísitalan hækkaði
um tæplega 0,4% á föstudag og end-
aði í 6.985,95 stigum. Hækkunin
var drifin áfram af 2% styrkingu
námafyrirtækja. Yfir vikuna alla
veiktist vísitalan um 1,2%. Hins
vegar styrktist FTSE 100 um 2,8% í
aprílmánuði og hjálpaði þar til að
hlutir orkufyrirtækja hækkuðu
töluvert í mánuðinum.
Á föstudag veiktist breska pund-
ið og lækkaði um 1,5% gagnvart
bandaríkjadal. MarketWatch segir
lækkunina einkum stafa af því að
framleiðslutölur aprílmánaðar
voru neikvæðar og hafa ekki mælst
lægri í sjö mánuði. Innkaupastjóra-
vísitala Markit féll úr 54 stigum í
mars niður í 51,9 stig í apríl.
ai@mbl.is
AFP
Turnar Fjármálahverfið í London. Pundið veiktist skarplega á föstudag.
FTSE 100 hækkar
og pundið veikist
Lesendur þekkja Tesla Motors best
fyrir vinsæla og kraftmikla raf-
magnsbíla. Nú hefur fyrirtæki frum-
kvöðulsins Elon Musk hafið innreið
sína inn á nýjan markað með risa-
stórri heimilisrafhlöðu.
Rafhlaðan var kynnt á fimmtudag
og geymir frá 7 upp í 10 kílóvatt-
stundir. Kosta rafhlöðurnar, sem á
ensku kallast „power wall“, frá 3.000
til 3.500 dali, jafnvirði 394.000 til
460.000 króna. Er þetta mun lægra
verð en sést hefur á risarafhlöðu-
markaði til þessa og að auki á að vera
auðvelt að koma rafhlöðunum fyrir.
Einnig voru kynntar stærri og af-
kastameiri rafhlöður sem ætlaðar eru
til notkunar í atvinnurekstri og iðn-
aði.
Breytir orkukerfinu
Þegar Musk kynnti rafhlöðuna
sagði hann blaðamönnum að ætlunin
sé að „reyna að breyta grunninnvið-
um orkukerfis heimsins.“
Rafhlöðuna má m.a. nota til að
geyma rafmagn sem sótt er á dreifi-
kerfið á þeim tímum dags sem orkan
er ódýrari, eða til að geyma rafmagn
sem kemur úr sólarsellum húsa til
notkunar eftir að sólin er sest.
Wall Street Journal segir að mark-
aðurinn fyrir heimilisrafhlöður hafi
vaxið um 40% á síðasta ári og er því
spáð að útbreiðsla heimilisrafhlaða í
Bandaríkjunum verði þrefalt hraðari
á þessu ári en því síðasta, mælt í kíló-
vattstundum.
Á sumum stöðum í Bandaríkjunum
greiðir hið opinbera niður mikið af
verði rafhlöðunnar. Í Kaliforníu má
reikna með allt að 60% endurgreiðslu
og á landsvísu má fá skattaafslátt sem
nemur 30% af verði rafhlaða sem
tengdar eru við sólarsellur.
ai@mbl.is
AFP
Hönnun Heimilisrafhlaðan er engin smásmíði og nokkuð snotur á að líta.
Tesla kynnir risaraf-
hlöðu til heimilisnota
Elon Musk segist vilja umbylta orkukerfi heimsins