Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 25

Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015 Sex lögreglumenn, sem höfðu af- skipti af Freddie Gray í Baltimore, 25 ára blökkumanni, verða ákærðir fyrir aðild að drápi hans. Þetta til- kynnti Marilyn Mosby, æðsti sak- sóknari Baltimore, á blaðamanna- fundi í gær, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún fékk niðurstöður lögreglurannsóknar í hendurnar. „Dauði herra Grays var morð,“ fullyrti hún og bætti við að enginn væri yfir lögin hafinn. Handtöku- skipanir hafa verið gefnar úr á hend- ur lögreglumönnunum sex. Ceasar Goodson, sá sem ók lögreglubifreið- inni þar sem hinn 25 ára Gray lést, var ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði en hinir fimm voru ákærðir fyrir manndráp af gáleysi, líkamsárás og brot í starfi. Mosby sagði að Gray hefði látist af völdum hálsáverka sem hann hlaut á meðan hann var handjárnaður og hlekkjaður inni í lögreglubifreið án þess að vera í sætisbelti. Einnig sagði hún að handtaka hans hinn 12. apríl sl. hefði verið ólögmæt, þar sem hnífurinn í vasa hann hefði verið lög- legur samkvæmt lögum Maryland- ríkis. Þá hefði hnífurinn ekki komið í ljós fyrr en eftir að Gray hefði verið handtekinn. brynja@mbl.is Ekki hafnir yfir lög AFP Saksóknari Marilyn Mosby tilkynnti ákærurnar í gærmorgun.  Sex lögreglumenn ákærðir fyrir aðild að drápi á Freddie Gray í Baltimore  Dó vegna áverka inni í lögreglubíl Um 500 há- skólanemar í Búrúndí neydd- ust til að eyða að- faranótt föstu- dags fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna eftir að háskól- anum þeirra var lokað vegna mót- mæla gegn ríkis- stjórninni. Í viðtali við BBC sögðust þeir hafa farið í sendiráðið vegna þess að þeir væru ekki óhultir í höf- uðborginni Bujumbura. Lokað hef- ur verið fyrir aðgang að samfélags- miðlum, útvarpsstöðvum hefur verið lokað og mótmæli bönnuð. Mótmæli standa yfir vegna ákvörð- unar forsetans Pierre Nkurunziza um að sækjast eftir endurkjöri, andstætt stjórnarskrá landsins. 500 háskólanemar gistu við sendiráð Bandaríkjanna Framboði forset- ans mótmælt. BÚRÚNDÍ Tyrkneska lögreglan skaut gúmmí- kúlum og beitti táragasi gegn vinstrisinnuðum mótmælendum í miðborg Istanbúl í gær, að því er fram kemur hjá BBC. Einhverjir mótmælenda köstuðu flöskum og steinum og kveiktu á flugeldum meðan á þessu stóð, nærri Taksim- torgi. Þúsundir lögreglumanna lokuðu aðliggjandi götum að torginu en átök á Taksim-torgi hinn 1. maí eru árviss viðburður. Lögregla beitti tára- gasi og gúmmíkúlum AFP Mótmæli Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í miðborg Istanbúl. TYRKLAND Breska blaðið In- dependent birti í gær viðtöl, myndir og mynd- bönd sem sýna grimmilegt of- beldi öfgahóps- ins Jabhat al- Nusra í garð sýr- lenskra mótmælenda í kjölfar mótmæla- göngu í Aleppo í apríl. The Indep- endent birti sláandi myndir af áverkum mannanna og ítarlegar lýsingar þeirra á pyntingum sem hafa vakið mikla reiði almennings. Ofbeldislýsingar vekja mikla reiði Aleppo Borgin er nær rústir einar. SÝRLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.