Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
E-60 Bekkur
Verð frá kr. 59.000
Fáanlegur í mismunandi lengdum.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn
Retro borð með stálkanti
Verð frá kr. 96.000
Fáanlegt í mismunandi stærðum.
E-60 Stólar
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð
Verð frá kr. 24.300
Greinakurlarar
Öflugir greinakurlarar sem taka
allt að 45 mm stofna
Einfasa rafmótor, tvær stærðir fáanlegar:
2500 eða 2800 w
Sjálfbrýnandi kurlaravals.
Hljóðlátir, meðfærilegir og
auðveldir í allri notkun.
Koma með safnkassa
Mikið úrval greinaklippa
Handklippur,
Skaftklippur,
Toppaklippur, mikið úrval
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Í Biblíunni er frá-
sögn af manni nokkr-
um sem gerði sér
ferðir inn í bænahús,
en þangað leitaði fólk,
eins og vænta mátti,
til þess að biðja Guð
um náð og hand-
leiðslu og um fyr-
irgefningu synda
sinna.
En erindi þessa
manns í bænahúsið voru á allt
annan veg. Hann kom til þess að
þakka Guði fyrir hversu syndlaus
og vammlaus hann væri sjálfur,
þakka fyrir að hann væri ekki
syndugur og breyskur eins og aðr-
ir væru.
Þessi dæmisaga leiðir ósjálfrátt
hugann að þeirri umræðu sem hér
ríkir um málefni fólks sem flust
hefur hingað á síðustu árum og er
múhameðstrúar. Trúfrelsi er
mannréttindi sem varin eru í
stjórnarskrá okkar, um þann rétt
þarf ekki að deila. Það sama gildir
hins vegar ekki um hinar ólíku
siðvenjur sem ríkja meðal þessa
fólks. Sumar þeirra eru ekki að-
eins framandi, heldur stangast
beinlínis á við mikilvæg mannrétt-
indi, sem skylt er að virða og líka
eru bundin í Stjórnarskrá, m.a.
trúfrelsið. Bara sem dæmi má vísa
til viðtala í sjónvarpi nýlega við
innflytjendur þar sem einn faðir
svaraði því hiklaust aðspurður, að
ef dóttir hans yrði ástfangin af
pilti sem ekki væri múham-
eðstrúar þá yrði henni útskúfað úr
fjölskyldunni. Margar harmsögur
eru til um slíkt, t.d. frá nágrönn-
um okkar á Norðurlöndunum.
Áform um að byggja mosku í
Reykjavík hafa verið í sviðsljósinu
að undanförnu. Á dögunum frétt-
ist svo af því að Sádi-Arabar
hygðust veita háa upphæð í styrk
til fyrirhugaðrar byggingar. For-
svarsmaður safnaðarins hér virtist
ekki telja neitt athugavert við að
þiggja slíkan styrk, vildi aðeins
fullvissa alla um að ef sá styrkur
yrði þeginn þá yrði það gert án
allra skuldbindinga. En það breyt-
ir engu um að það er
ófært að þiggja slíkan
styrk. Í hugann kem-
ur upp hryllilegt atvik
sem átti sér stað í
Sádi-Arabíu fyrir ör-
fáum árum. Eldur
kom upp í skóla þar
sem eingöngu voru
þarlendar stúlkur inn-
andyra. Trúar-
lögreglan taldi hins-
vegar óhæfu að
hleypa þeim út, þar
sem þær væru ekki
sómasamlega klæddar. Því brunnu
þær allar inni.
Staðreyndin er auðvitað sú að
með komu innflytenda er að eiga
sér stað samfélagsþróun sem gefa
verður strax gaum að og bregðast
við á réttan hátt. Hver sá sem
kemur til Íslands til þess að setj-
ast hér að er velkominn, en ætti
þó aðeins að vera að því tilskildu
að virða að fullu íslensk lög og
mannréttindi. Ef þau stangast á
við trúar- og siðvenjur viðkom-
andi, ætti sá hinn sami að þurfa
að finna sér annan dvalarstað. Það
má telja það fullvíst að þetta sé
skoðun stærsta hluta þjóðarinnar
og sú skoðun er fyllilega réttmæt.
Hún byggist á eindregnum vilja til
þess að vernda íslenskt samfélag
og halda skilyrðislaust í heiðri þau
lög og mannréttindi sem þjóðfélag
okkar byggist á.
Það ætti því að vera skylda lög-
gjafans og stjórnvalda að bregðast
við og standa vörð um þessi gildi,
m.a. með því að setja upp skýr
skilyrði fyrir rétti til búsetu á Ís-
landi. Hér er ekkert dægurmál á
ferðinni, heldur mikilvægir hags-
munir samfélagsins er varða þró-
un þess til langs tíma.
Engin umræða hefur samt farið
fram í þessa veru, eins nauðsynleg
og hún er. Þvert á móti er slegið
upp þagnarmúr, öllum vanda af-
neitað, og talað um rasisma ef ein-
hver leyfir sér að hafa uppi efa-
semdir eða áhyggjur af því hvert
stefnir. Ung kona, oddviti Fram-
sóknar, vildi í vor gefa Reykvík-
ingum kost á að láta álit sitt í ljós
um byggingu og staðsetningu fyr-
irhugaðrar mosku. Út af þessu
varð hún fyrir miklu aðkasti, sök-
uð um að virða ekki trúfrelsi og
núverandi borgarstjóri taldi
Framsóknarflokkinn ekki stjórn-
tækan fyrir vikið. Hjá öðrum
dugði ekkert minna markmið en
að útrýma Framsóknarflokknum
sem fyrst. Það fer því lítið fyrir
því umburðarlyndi gagnvart sam-
borgurunum, sem hin „félagslegu
ofurmenni“ telja sig annars búa
yfir. Þó er augljóst að hugmynd
oddvitans var engin aðför að trú-
frelsi. Þvert á móti má finna rök
fyrir því að hún geti allt eins
byggst á virðingu fyrir trúfrelsi,
rétti fólks til þess að iðka trú sína,
en í sátt við nánasta umhverfi sitt
og samfélag.
Það virðist vera tiltölulega
þröngur hópur fólks, einkum þeir
sem kenna sig við félagshyggju,
sem komist hefur upp með að ein-
oka þessa umræðu um innflytj-
endamál og gera hana einsleita og
fordómafulla gagnvart ríkjandi
skoðunum. Og fjölmiðlar hafa
hingað til dansað eftir þeirra pípu.
Þetta er slæm staða og hún er
beinlínis hættuleg. Framtíð-
arhagsmunir samfélags okkar eru
þarna ekki efstir á blaði, heldur
sjálfumgleði þeirra sem í hlut
eiga.
Líkt og í dæmisögunni úr Biblí-
unni, þá er það þörfin fyrir það að
upphefja sjálfan sig á kostnað
annarra, sem þarna ræður fyrst
og fremst. Og verður hálfu verra
þegar það er gert í pólitískum til-
gangi. Mál er að linni svo að mál-
efnaleg og fordæmalaus umræða
um þennan mikilvæga málaflokk
geti farið fram.
„Hinir vammlausu“
Eftir Óskar Þór
Karlsson »Ef íslensk lög og
mannréttindi stang-
ast á við trúar- og sið-
venjur viðkomandi, þá
ætti sá hinn sami að
þurfa að finna sér dval-
arstað annars staðar.
Óskar Þór Karlsson
Höfundur er atvinnurekandi og
breyskur Íslendingur.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Staða kjaramála er vissulega áhyggjuefni. Þótt kjarakröfur verka-
lýðsfélaganna séu að sumu leyti skiljanlegar er hættan sú að það
gæti endað með efnahagslegri kollsteypu ef gengið væri að öllum
þeim kröfum sem settar hafa verið fram. Það er raunar merkilegt
rannsóknarefni að þegar vinstri stjórn er við völd í landinu er allt
með friði og spekt á vinnumarkaði. Það er fyrst þegar hægri stjórn
kemst til valda sem verkalýðsfélagar bíta í skjaldarrendur og vopna-
glamur tekur að heyrast. Hvernig stendur á þyrnirósarsvefni verka-
lýðsleiðtoga þegar vinstri stjórn er við völd? Sjálfsagt leysast þessar
vinnudeilur á endanum eins og aðrar vinnudeilur, en aðaláhyggju-
efnið er að samið verði um meiri kauphækkanir en þjóðhagsleg inni-
stæða er fyrir. Er það ekki áhyggjuefni?
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Kjaramál
Karphúsið Þarna var búið að fresta kennaraverkfalli.
Morgunblaðið/Ómar