Morgunblaðið - 02.05.2015, Síða 38

Morgunblaðið - 02.05.2015, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Hjalti Þórðar-son fæddist í Litla-Gerði í Höfðahverfi 3. júlí 1928. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 19. apríl 2015. Foreldrar Hjalta voru Þórð- ur Jónsson frá Hóli í Höfðahverfi, og Nanna Stef- ánsdóttir frá Miðgörðum á Grenivík. Systkini hans voru: 1) Þráinn, f. 1923, látinn, 2) Bald- ur, f. 1924, látinn, 3) Ingvi, f. 1926, látinn, 4) Friðgerður, f. 1930, 5) Stefán f. 1935, 6) Andr- és, f. 1940. Hjalti kvæntist 13. júlí 1950 Ingu Aðalheiði Guðbrands- hún er látin. Barn þeirra eitt og barnabarn eitt. Maki 2: Guðrún Ragna Ragnarsdóttir, þau slitu samvistum, barn þeirra eitt. 5) Sævar, f. 1965, maki María Ólafsdóttir, börn þeirra þrjú, barnabörn fjögur. Hjalti ólst upp í Hléskógum í Höfðahverfi til ársins 1944 en þá flutti fjölskyldan að Hjarð- arholti í Dölum. Hann byrjaði búskap með föður sínum og bróður Baldri 1951 og bjó þar til 1967 en fluttist þá að Hróð- nýjarstöðum og bjuggu þau hjónin þar til 1999 er þau fluttu að Gunnarsbraut 3 í Búðardal. Síðustu tvo mánuðina dvaldi Hjalti á dvalarheimilinu Silf- urtúni í Búðardal og var Inga nýflutt þangað líka er hann lést. Hjalti var bóndi af lífi og sál og starfaði við það alla tíð. Hjalti verður jarðsunginn frá Hjarðarholtskirkju í dag, 2. maí 2015 kl. 15. dóttur frá Lækj- arskógi í Laxárdal, f. 20. júlí 1929. For- eldrar hennar voru Guðbrandur Guð- mundsson og Arn- dís Magnúsdóttir. Börn þeirra eru: 1) Erna Kristín, f. 1950, maki Vé- steinn B. Arn- grímsson. Börn þeirra eru þrjú og barnabörn sex. 2) Bára, f. 1952, maki Magnús O. Arngrímsson. Börn þeirra eru þrjú og barna- börn sex. 3) Nanna, f. 1954, lát- in 2008. Maki Ólafur S. Guð- jónsson. Börn þeirra eru tvö og barnabörn fjögur. 4) Smári, f. 1959, maki 1: Kristborg Krist- insdóttir, þau slitu samvistum, Elskulegur pabbi minn er horfinn af sjónarsviðinu. Sárt er að geta ekki hitt hann meir, hringt í hann, spurt hvaða bók ertu að lesa. Spurt frétta eða heyrt nokkrar vísur. Samtímis er svo margs að minnast af góðri ævi hans. Pabbi var bóndi með stórum stöfum. Bóndi af lífi og sál. Pabbi flytur frá Hlé- skógum í Höfðahverfi 1944 ásamt foreldrum og systkinum í Hjarðarholt þegar hann er 16 ára gamall en hann var fjórði í röðinni af sjö systkinum. Þann 1. júlí 1967 flytur fjöl- skyldan að Hróðnýjarstöðum. Pabbi og mamma höfðu þá keypt jörðina árið áður. Við flutning fjölskyldunnar að Hróð- nýjarstöðum upphófst mikil uppbygging. Nánast enginn vegur var að bænum, lítil rækt- un, ekkert rafmagn og húsa- kostur lélegur. Fjárhúsin á bænum hrundu vorið 1969 og er það ein af mínum fyrstu minn- ingum. Ný hlaða og fjárhús byggð, nýtt íbúðarhús og að lok- um vélageymsla. Sífellt var ver- ið að rækta tún til að afla forða fyrir veturinn. Margur steinninn var tíndur úr flögum og bera sumar grjóthrúgurnar þess merki hvílíkt magn var tínt. Girðingar endurnýjaðar og hús máluð, allt snyrt og fegrað, þar voru pabbi og mamma samheld- in eins og venjulega. Enda fengu þau verðlaun fyrir snyrti- legasta býlið í Dalasýslu 1977. Við ræktun á fjárstofni var hrútaskráin lesin í þaula. Afurð- ir jukust jafnt og þétt í frjósemi, hækkandi meðalvigt o.fl. Pabbi var hinsvegar aldrei í fjárrækt- endafélagi. Hann hafði auga og brjóstvit á því sem hann gerði. Því til staðfestingar þá er mér minnisstætt þegar við feðgar fórum á hrútasýningu í sveit- inni. Pabbi labbaði um í fjárhús- unum og horfði yfir fjárstofninn sinn og tók kollóttan hrút úr hópnum. Sagði við mig að hann ætlaði að taka þennan með til að stríða körlunum í sveitinni. Á hrútasýningunni hélt pabbi í þennan kollótta. Dómarinn segir eftir mikið þukl að kollótti hrút- urinn hans pabba væri besti hrúturinn. Dómarinn spyr pabba „undan hverjum er þessi kollótti“? Pabbi svaraði hátt og snjallt svo að allir heyrðu: „Hann er undan pabba sínum og mömmu“ og uppskar mikinn hlátur allra viðstaddra nema dómarans sem stökk ekki bros því nú var kollótti hrúturinn ættlaus og óskilgetinn, en samt bestur og hlutu pabbi og sá koll- ótti fyrstu verðlaun. Annað var að pabbi var einkar laginn við það að venja undir á vorin þegar einhver lömb voru móðurlaus. Ein kind- in var ansi þrjósk og þegar allt virtist komið í þrot fór pabbi heim í búr til mömmu og náði í kardimommudropa. Dropunum hellti hann síðan yfir haus og dindil lambanna, á nasir kind- arinnar og kannski örlítið í nasir hennar. Þá tók hann smá „kardó“ fyrir sig og rak síðan kindina og lömbin út fyrir og hafði hundana til hjálpar. Nú var allt komið með sömu lykt á haus, dindli og nösum og kindin tók lambið á staðnum. Þannig vann hann þær allar sem þurfti að venja undir. Í dag verður hann borinn til grafar í Hjarðarholti. Hvíldu í friði, elsku pabbi. Þú ert mín fyrirmynd og ég mun segja mín- um barnabörnum sögur af þér um ókomin ár. Sævar Hjaltason. Þú ert það, sem þú öðrum miðlað getur, og allar þínar gjafir lýsa þér og ekkert sýnir innri mann þinn betur en andblær hugans, sem þitt viðmót ber. Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur og lífið daprast, ef hún ekki skín, svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur og undir því er komin gæfa þín. (Árni Grétar Finnsson) Elsku pabbi. Það er komið að kveðjustund og hugurinn reikar aftur í tím- ann. Við áttum margar góðar stundir saman bæði við búskap- inn í gamla daga og eins eftir að þú hættir búskap, og þá í ýmsu sem ég tók mér fyrir hendur. Þú hvattir mig með áhuga þín- um og tókst þátt í því með mér. Betri pabba hefði ég ekki get- að átt. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér og traustið sem þú sýndir mér ung- um til að leysa oft snúin og erfið verkefni. Það var ómetanlegur skóli sem ég bý að allt mitt líf. Minning þín lifir. Smári. Þegar vorið er að reyna að ná völdum eftir langan og illviðra- saman vetur kveður hann pabbi minn 86 ára gamall. Í lífi bónda skiptir veðráttan miklu máli og pabbi kynntist því vel en hann var alla tíð bóndi af líf og sál. Sauðfé og hestar voru hans uppáhald og stundaði hann bú- skap í 50 ár. Það voru því mikil umskipti þegar aldurinn færðist yfir og heilsan fór að gefa sig. Þau mamma brugðu búi, seldu Hróðnýjarstaði og fluttu í Búðardal árið 1999. Ég veit þó að honum líkaði það vel að jörðina keyptu ung og dugmikil hjón sem halda merki hans hátt á lofti og gladd- ist hann innilega yfir því. Það var gaman vorið 2007 þegar nafni hans og dóttursonur var að byrja sinn búskap, þá kom pabbi keyrandi á hverjum morgni úr Búðardal til að hjálpa honum í sauðburði. Hann spurði líka alltaf um búskapinn hjá nafna sínum; sauðburð, hey- skap, smalamennsku og allt sem því tengist. Það hefur alltaf verið gest- kvæmt á heimili foreldra minna og pabbi hafði gaman af að taka á móti gestum, segja sögur og fara með vísur, en hann kunni ógrynni af vísum. Á síðasta ættarmóti norður í Höfðahverfi sagði hann frá því þegar þeir Þórður afi komu með hestana úr Höfðahverfi í Hjarð- arholt í júní 1944 en það ár flutti fjölskyldan hans búferlum í Dalina. Það ríkti dauðaþögn í salnum á meðan hann flutti þessa frásögn og unga kynslóðin sat á gólfinu í kringum hann og hlustaði af athygli. Það var dásamleg stund. Pabbi átti mjög auðvelt með að laða að sér börn og ung- menni og afa- og langafabörnin minnast margra góðra stunda í veiðiferðum og ýmsu öðru. Eftir að þau mamma fluttu í Búðardal hefur líka oft verið gestkvæmt á Gunnarsbrautinni en þar áttu langafa- og lang- ömmubörnin alltaf athvarf ásamt vinum sínum og mamma sá um að enginn færi svangur úr húsi. Í 65 ár hef ég búið við þau forréttindi að eiga báða foreldra mína á lífi og er það mikil gæfa. Elsku pabbi minn, ástarþakk- ir fyrir öll árin okkar saman og allt sem þið mamma hafið gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Guð geymi þig. Þín dóttir, Erna Kristín. Í dag kveðjum við afa okkar, sem hefur skipað svo stórt hlut- verk í lífi okkar systra. Við minnumst hans allar sem ótrú- lega góðs afa sem vildi helst allt fyrir okkur gera. Hann var stór- kostlegur maður, hjartahlýr, fyndinn, dýravinur og vísnagóð- ur. Það eru ófáar minningarnar okkar um hann og eru þær gulls ígildi núna. Þegar Eva var lítil trítlaði hún á eftir honum í fjár- húsunum og vildi hvergi annars staðar vera, það er ótrúlegt hvað hann nennti að hafa hana með í allt. Birgitta var vel dekr- uð í matseld hjá ömmu og afa því hún var matvönd, en aldrei var hún neydd til að borða neitt, heldur var eldað sérstaklega fyrir hana. Afi lagði sig alltaf eftir matinn á hart eldhúsgólfið með kodda undir höfði. Evu fannst einstaklega gott að leggj- ast með honum og hlusta á skemmtilegu hljóðin í honum, en Birgitta skildi ekki hvernig hægt væri að sofa á hörðu gólf- inu. Ófáar voru ferðirnar í Zetorn- um með hundana okkur við fæt- ur, eða í kjöltu hans afa að stýra, það var auðvitað aðal- sportið. Við systurnar fórum líka í ófáa reiðtúrana um sveit- ina með afa og þar var sungið hástöfum eða farið með vísur. Einnig notaði hann okkur óspart til að smala kindunum og sagði alltaf „hlaupiði nú þarna á eftir þeim, þið eruð svo léttar á fæti“. Þegar Eva fékk að fara með í fyrstu heimasmölunina upp á Lárskógafjall, þá bara nokkuð ung að aldri, var það eins og að vinna í lottóinu. Birg- itta var of ung til að fara með en var kippt með við garðinn heima og fékk að koma með restina niðrí rétt. Hann afi var alltaf hress í réttunum, eitt skiptið átti hann að vera með auga á okkur systrum en þegar að líða fór á daginn sáum við afa sitja við dilkinn, svo við fórum að at- huga með hann. Þá segir hann við okkur: „Ég er bara þreyttur í hnjánum.“ Þó við höfum báðar verið ungar vissum við vel hvað það þýddi. Í ófáu skiptin höfum við systur fengið að sofa á milli og allar sammála um það að hvergi höfum við sofið betur með hljóðin hans afa í eyrunum en það er einstaklega róandi. Matarvenjur afa voru ótrú- legar, Eva og afi áttu það sam- eiginlegt að elska hákarl og eitt sinn sátu þau saman með risa- stykki af hákarli þar sem afi skar ofan í þau til skiptis, það var dásamleg stund. Eitt sinn þegar amma þurfti að fara í Búðardal að kvöldi átti afi að gefa okkur kvöldmat, það var ekki hans sterkasta hlið. Amma hafði því keypt dós af fiskbúð- ingi, afi gerði þetta bara á sinn eigin hátt og lét sér nægja að opna dósina og svo borðaði hann bara með skeið beint uppúr dós- inni. Birgittu og Þóru fannst alltaf svo ógeðslegt þegar það voru svið í matinn því afi borð- aði gjörsamlega allt. Afi var svo duglegur að hrósa Þóru sérstaklega fyrir söng- hæfileika hennar því ekki höfum við vott af því hinar tvær. Þóra var líka dugleg að biðja hann um að skutla sér og áttu þau því góðar stundir á rúntinum. Þóra fór einnig oft með honum upp í hesthús og fékk að dúlla sér þar í kringum hann rétt eins og við hinar gerðum á hennar aldri. Hvíl í friði, elsku afi. Eva Dröfn, Birgitta Ýr, Þóra Björg. Margs er að minnast er Hjalti afa á Hróðnýjarstöðum er kvaddur, hann er afi Berglindar og hafa börnin okkar verið svo heppin að fá að njóta nærveru hans og Ingu konu hans, allan sinn uppvöxt. Hjalti hafði góða nærveru og skemmtileg svör við margvísleg- um uppátækjum tilverunar, allt- af átti hann auðvelt til að fá samferðamenn til að brosa. Hann sá að sumir kunnu að láta hestana ganga á tímakaupi ef á þurfti að halda, aðra bað hann um að nota brjóstvitið, því það reynist oft vel góði sagði hann .Hann talaði um margt glæsi- hrossið, vaðandi töltara, liðuga í banakringlunni.Oft lýsti hann því hve ærnar voru sólgnar í brokið og annað góðgæti á vetr- arbeitinni hér áður fyrr. Ást hans á sauðfé og hrossum var ósvikin, Er Hjalti og Inga hættu að búa og fluttu í Búðardal, nutum við þess að fá hann til aðstoðar á sauðburði og við fjárrag á haustin, sá tími var ógleyman- legur og dýrmætur. Þá kom hann oft í heimsókn og kíkti í húsin á góðviðrisdögum á vet- urna, það var dýrmætt fyrir unga bændur í ekki alveg nýjum húsum að heyra hann segja er hann leit yfir féð“ það er svo gott fyrir blessaðar kindurnar að FÁ að liggja á taðinu“ . Það hefur verið ómetanlegt fyrir börnin okkar að geta haft skjól hjá langafa og langömmu á Gunnarsbrautinni. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Við sendum Ingu ömmu og öðrum aðstandendum samúaðar- kveðjur. Berglind, Finnbogi, Vésteinn Örn, Haraldur Ingi og Hafdís Ösp. Nú er komið að leiðarlokum hjá Hjalta frænda sem lést fyrr í þessum mánuði. Verð að segja að fráfall hans kom mér nokkuð á óvart enda seigt í karli eins og hann hafði sýnt áður þegar ein- hver krankleiki hafði gert vart við sig. Hafði ég á því trú að það sama yrði upp á teningnum núna, þ.e. að hann myndi ein- faldlega hrista þetta af sér. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að komast í sveit hjá þeim Ingu og Hjalta á unglingsárum á bújörð- inni Hróðnýjarstöðum í Laxár- dal, sem þau höfðu keypt nokkr- um árum áður. Af nógu var að taka við uppbyggingu býlisins og gilti það jafnt um endur- byggingu húsakostar, girðinga og hverskonar ræktun. Áhugi þeirra hjóna var aðdáunarverð- ur á þessu mjög svo stóra verk- efni. Fór það svo að Hróðnýjar- staðir fengu í þeirra búskapartíð sérstaka viðurkenningu fyrir uppbyggingarstarf og snyrti- mennsku í hvívetna. Ég verð að segja að þrátt fyrir að maður hafi á stundum verið ansi þreyttur á kvöldin þá er ég sannarlega stoltur af því í dag að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessu öllu saman. Í sveitinni var tekist á við fjöl- breytt verkefni sem sum hver voru fremur leiðigjörn en önnur skemmtilegri eins og gerist og gengur. Þetta var þó ekki enda- laus vinna frá morgni til kvölds heldur var oft tekinn tími í að sinna áhugamálum svo sem út- reiðum eða veiðimennsku sem kryddaði tilveruna svo um mun- aði. Hjalti hafði einstakt lag á hrossum og sinnti þeim af alúð hvað alla þætti varðaði. Fyrir mig sem fékk að hafa minn hest í fóstri hjá þeim hjónum var þetta ein allsherjar lærdóms- kúrfa sem ég bjó að allan þann tíma sem ég stundaði hesta- sportið. Reiðtúrarnir á hesta- mannamótin á Nesodda eru greyptir í huga manns enn þann dag í dag en kærust er þó minn- ingin þegar Hjalti bauð okkur púkunum með í reiðtúr norður í Hrútafjörð og þaðan gegnum Haukadalsskarð heim á leið. Þá lék hann á als oddi enda helsta- mennskan hans helsta áhugamál og ekki leiðinlegt að ferðast um á hrossum um langan veg með tilheyrandi innlitum á hina ýmsu bæi á leiðinni. Þetta var manni ómetanlegt og ber að þakka við leiðarlok. Hjalti hafði einnig mikinn áhuga á mannlíf- inu og kveðskap af ýmsu tagi og það að fá að njóta þess að vera með honum vestur í Selárdal hin seinni ár í haustferðum okkar frændanna var hrein og bein upplifun. Þvílíkur fjöldi vísna og gamansagna sem hann gat rutt úr sér án þess að hafa nokkurn skapaðan hlut fyrir því að því er manni fannst. Margt annað væri hægt að rifja upp í þessari stuttu kveðju en þetta verður látið nægja. Kæri frændi, kveð þig með hlýju í hjarta um leið og ég sendi Ingu og allri þinni fjölskyldu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Logi. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar komið er að kveðjustund. Fimm ára gömul var ég svo heppin að fá að fara í sveitina til Ingu frænku og Hjalta. Ég var hjá þeim á Hróðnýjarstöðum næstu tíu sumur. Þetta var frábær tími fyrir mig og ég var ótrúlega heppin að fá að njóta sumranna í sveitinni, ekki bara í hvaða sveit sem er heldur hjá Ingu og Hjalta. Ég fór ófáar ferðirnar með Hjalta að vitja neta í vötnunum í eigu Hróðnýjarstaða, þó nokkrar ferðir voru farnar inn í Hvammssveit með merar eða að sækja kálfa sem voru á leið inn í Laxárdal. Hjalti var ljúfur og góður maður sem kunni margar skemmtilegar sögur og vísur, prenthæfar og óprenthæfar. Frásagnir Hjalta voru auðvitað fagurlega skreyttar og svo fylgdi skemmtilegur hlátur á eftir. Oft hugsa ég til hans þegar ég keyri um landið á sumrin þar sem dreifar eru út um öll tún, því á Hróðnýjarstöðum var aldr- ei tugga eftir á túnunum þegar búið var að heyja þau. Aldrei minnist ég þess að Hjalti hafi verið óþolinmóður við mig þrátt fyrir rólegheit og rolugang í mér, hann hafði líka óhemju mikla þolinmæði fyrir Evu Dröfn og ég held að hann hafi ekki sagt nema einu sinni nei við hana á meðan ég var í sveit- inni. Það voru forréttindi að fá að vera hjá þeim hjónum á sumrin og eftir því sem ég eldist geri ég mér betur grein fyrir því. Elsku Inga frænka og fjöl- skylda, ég samhryggist ykkur innilega. Hrafnhildur Sævarsdóttir. Hjalti Þórðarson HINSTA KVEÐJA Pabbi lést á Sjúkrahús- inu á Akranesi að morgni 19. apríl. Ég var svo lánsöm að geta verið hjá honum síðustu nóttina hans. Minn- ingarnar streymdu fram þegar ég sat við rúmið og horfði á hann sofa. Hann var tilbúinn að fara og kvaddi í morgunsárið áreynslulaust og hljóðlega eins og allt hans líf var. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Elsku pabbi, takk fyrir allt. Bára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.