Morgunblaðið - 02.05.2015, Síða 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
hef áhuga á straumum og stefnum í
menningu og listum, hvort sem um
er að ræða krúttkynslóð eða hip-
stera.“
Atli hefur skrifað smásögur og
ljóð sem birst hafa á prenti hér-
lendis og í Kanada auk þess sem
hann hefur þýtt á og úr ensku. „En
þekktustu skrif mín eru líklega
lagatextar fyrir Hjaltalín, Gusgus
og Helga Björnsson. Ég lærði á pí-
anó frá níu ára aldri og fyrsti píanó-
kennarinn minn, Guðrún Óskars-
dóttir í Tónlistarskóla Kópavogs,
hvatti mig til að semja lög sem ég
og gerði. Ég byrjaði 11 ára að fikta
í raftónlistarstúdíói Sverris, bróður
míns, og samdi þá fjölmörg lög. Ég
og vinur minn Leó Stefánsson
sömdum aragrúa af raftónlist á
unglingsárunum og í félagi við Kára
Hólmar Ragnarsson rákum við
fönkhljómsveitina Nortón sem hét
áður Frír bjór og komst undir því
nafni í úrslit Músíktilrauna 2000.
Síðustu árin var Högni Egilsson
gítarleikari í þeirri hljómsveit.“
Atli var einnig í hljómsveitinni
SAAB í MH, en árið 2006 gekk
hann til liðs við nokkra gamla SA-
AB-limi í hljómsveitinni Sprengju-
höllinni sem gaf út tvær vinsælar
plötur árin 2007 og 2008. „Ég fikta
enn við raftónlist en fæ nú helst út-
rás sem plötusnúður og spila sem
slíkur tvisvar til þrisvar í mánuði.“
Atli var formaður nemendaráðs
Réttarholtsskóla, sat í stjórn mál-
fundafélagsins, listafélagsins og
Fréttapésa í MH, starfaði með
Röskvu í HÍ og var varaformaður
Stúdentaráðs HÍ veturinn 2006-
2007. Í grunn- og menntaskóla
keppti hann með góðum árangri í
ræðumennsku og hlaut m.a. titilinn
ræðumaður Íslands í úrslitakeppni
MORFÍS vorið 2002.
Að undanförnu hefur Atli leikið í
styttri og lengri kvikmyndum eftir
vin sinn Alexander Carson sem býr
og starfar í Toronto og nú síðast í
stuttum vefþáttum sem nefnast
Cloud of Ash. Hann hefur unnið
með Hörpu að gagnvirkum lista-
verkum á glerhjúp tónlistarhússins
og er mjög hugfanginn af því verk-
efni en þar mætist áhugi hans á
tækni og list.
„Síðasta vetur ferðaðist ég um
Suður-Ameríku í tæpa fimm mánuði
með unnustu minni, Ásrúnu Magn-
úsdóttur. Við fórum allt frá Kar-
íbaströnd Kólumbíu niður í And-
esfjöllin og meðfram Kyrrahafs-
ströndinni og yfir til Buenos Aires.
Áður höfðum við dvalið saman til
skamms tíma í Marseille, Hildes-
heim og Berlín. Við höfum frábæra
reynslu af ferðalögum og við ætlum
að eyða júnímánuði í Marokkó.“
Fjölskylda
Unnusta Atla er Ásrún Magnús-
dóttir, f. 17.11. 1988, danshöfundur.
Foreldrar hennar eru Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, f. 10.3. 1963,
frönskukennari í Reykjavík, og
Magnús Hauksson, f. 25.6. 1959,
rafmagnsverkfræðingur í Reykja-
vík.
Systkini Atla eru Einar Gunnar
Guðmundsson, f. 29.3. 1972, nýsköp-
unarsérfræðingur hjá Arion banka í
Reykjavík; Sverrir Bollason, f. 30.1.
1980, umhverfis- og skipulagsverk-
fræðingur hjá VSÓ í Reykjavík;
Brynhildur Bolladóttir, f. 12.1. 1989,
verkefnastjóri hjá Jónsson & Le-
’macks í Reykjavík.
Foreldrar Atla eru Ásta St. Thor-
oddsen, f. 24.4. 1953, prófessor í
hjúkrunarfræði við HÍ, og Bolli
Héðinsson, f. 5.2. 1954, hagfræð-
ingur í Reykjavík.
Úr frændgarði Atla Bollasonar
Atli Bollason
Lilja Árnadóttir
húsfr. á Bakka og í Rvík
Böðvar Pálsson
oddviti og útgerðarm. á Bakka í Arnarfirði og
kaupfélagsstj. á Bíldudal
Auður Böðvarsdóttir
bókavörður í Rvík
Héðinn Finnbogason
lögfr. og fulltr. hjá Tryggingastofnun í Rvík
Bolli Héðinsson
hagfræðingur í Rvík
Sigríður Teitsdóttir
ljósmóðir og húsfr. í Hítardal
Finnbogi Helgason
b. í Hítardal í Mýrarsýslu
Birgir Thoroddsen
skipstj. í Rvík
Magdalena Thoroddsen
fyrrv. blaðam. og húsfr.
Lilja Héðinsdóttir kennari við Flensborg
Sigriður Héðinsdóttir starfsmannastj. hjá ISS
Böðvar Héðinsson fulltr. í velferðarráðun.
Kristín Finnbogadóttir Boulton
leikkona og rith. í Bretlandi
Vito Rocco
kvikmyndagerðarmaður í Bretlandi
Ólína Þorvarðardóttir sagnfræðingur
og fyrrv. borgarfulltr. og skólameistari
Ólafur Thoroddsen
lögfræðingur í Rvík
Gígja Thoroddsen
myndlistarmaður
Ólína Andrésdóttir Thoroddsen
húsfr. í Vatnsdal
Ólafur Thoroddsen Einarsson
skipstj. og útvegsb. í Vatnsdal í Rauðasandshr.
Einar Thoroddsen
skipstj., bæjarfulltr. og yfirhafnsögum. í Rvík.
Ingveldur B. Thoroddsen
fótaaðgerðafr. í Rvík
Ásta St. Thoroddsen
prófessor í hjúkrunarfræði í Rvík
Guðfinna Guðnadóttir
húsfr. á Patreksfirði
Bjarni Bjarnason
söðlasmiður á Patreksfirði
Gísli Thoroddsen
búsettur í Rvík
Arnar Eggert Thoroddsen
blaðam. og poppfræðingur
Curver Thoroddsen
myndlistar- og tónlistarmaður
Helgi fæddist á Norðfirði 2.5.1899, sonur Páls Mark-ússonar trésmiðs og Kar-
ítasar Bjarnadóttur.
Eiginkona Helga var Sigríður Er-
lendsdóttir frá Sturlu-Reykjum sem
lést 1950, en dóttir þeirra Gerður
Helgadóttir myndhöggvari.
Helgi lærði ungur á fiðlu, stundaði
tónlistarnám í Reykjavík 1916-17,
hjá Sigfúsi Einarssyni og Þórarni
Guðmundssyni fiðluleikara. Löngu
síðar lærði hann við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík, meðfram aðalstarfi,
fyrst kontrapunkt og tónsmíði hjá
dr. Franz Mixa, og síðan hjá dr. Vic-
tor Urbancic, sem kenndi honum
einnig raddsetningu fyrir hljóm-
sveit. Auk þess stundaði hann sjálfs-
nám í tónlist og náði vönduðum
kontrapunktískum stíl.
Helgi útskrifaðist úr Samvinnu-
skólanum 1922, lærði spönsku við
skólann og var eitt ár á Spáni til að
kynnast fiskverzlun, var skrif-
stofustjóri Kaupfélagsins á Norð-
firði 1924-33, en flutti þá til Reykja-
víkur og stundaði skrifstofustörf,
lengst af hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna.
Helgi var sérstætt, hugmyndaríkt
og ljóðrænt tónskáld. Mörg verka
hans hafa verið flutt erlendis og hlot-
ið góða umsögn. Hann samdi einkum
verk fyrir fiðlu og strengjahljóðfæri
og lagði sérstaka rækt við kamm-
ermúsík. Má þar nefna tvo strok-
kvartetta, svítur fyrir hljómsveit,
„Sex íslenzk þjóðlög fyrir fiðlu og pí-
anó, op. 6“ og „Stef með tilbrigðum
fyrir fiðlu og píanó, op. 8“, Vikivaka
fyrir fiðlu og píanó og hljómsveit-
arverkið Canzone og vals. Þá byggði
hann oft verk sín á íslenzkum þjóð-
lögum, sem hann útsetti listilega.
Hann samdi einnig einsöngslög og
kórlög, s.s. „Íslandsminni“, sem
samið var fyrir blandaðan kór og
einsöng með hljómsveitarundirleik
og einsöngslagið Vornótt.
Helgi var einn af stofnendum Tón-
skáldafélags Íslands 1945 og Sam-
bands tónskálda og eigenda flutn-
ingsréttar 1948. Hann var ljúfmenni
í framkomu, hnyttinn í tilsvörum og
skemmtilegur
Helgi lést 7.5. 1964.
Merkir Íslendingar
Helgi
Pálsson
Laugardagur
90 ára
Jónas Bjarnason
Sigurður Kristinsson
85 ára
Bragi Halldórsson
Ingibjörg Pétursdóttir
Jón Pálmason
Rósa Jónsdóttir
Sigurbjörg Guðjónsdóttir
Steinvör Ester
Ingimundardóttir
Vigdís Þórey Þorvaldsdóttir
80 ára
Garðar Arason
Ingibjörg Eggertsdóttir
Jónas Símonarson
Tómas Antonsson
75 ára
Guðrún Þórðardóttir
Lára Bjarnadóttir
Magnea Gunnarsdóttir
Ragnar Leví Jónsson
70 ára
Ása Guðnadóttir
Baldvin Baldvinsson
Björk Björgvinsdóttir
Gunnar V. Guðnason
Hekla Pálsdóttir
Jóhannes Þórðarson
Jón Viðar Arnórsson
Kristrún Bergsveinsdóttir
Pamela Susan Erlendsson
Örlygur Karlsson
60 ára
Dagbjört Ingibjörg
Sveinsdóttir
Gísli Ástráður Sighvatsson
Guðbjörg Sigr
Guðmundsdóttir
Halldóra Ingunn
Jónasdóttir
Helga Rut Guðjónsdóttir
Ingibjörg Ögmundsdóttir
Jón Ingibjörn Ingólfsson
Kristín T. Nielsen
Krzysztof Stanislaw Kalisty
Lilja Hauksdóttir
Ólafur Bragason
50 ára
Carlos Manuel Linhares Da
Cruz
Eric Richard Wolf
Guðjón Gottskálk Bragason
Guðlaugur B.
Aðalsteinsson
Hlédís Sveinsdóttir
Ívar Atlason
Malgorzata Krystyna
Supernak
Svanur Stefánsson
Vilmundur Óskarsson
40 ára
Ásgeir Hrafn
Símonarson
Fjóla Kristjánsdóttir
Guðný Harpa
Sigurðardóttir
Hálfdán Daðason
Heiða Björk Norðfjörð
Julia Frank
Kristján Hilmar
Sigurðsson
Pétur Björn Pétursson
Sigurður Ingi Sigurðsson
Sigurður Magnús
Finnsson
30 ára
Arnar Þórðarson
Guðrún Hildur
Thorstensen
Jakob Ómarsson
Kamila Elzbieta
Tokarczyk
Malgorzata Irena Weziak
Sverrir Daði Þórarinsson
Sunnudagur
90 ára
Óskar Vigfús Markússon
Sofie Marie Markan
Unnur Guðmundsdóttir
85 ára
Elsa Guðbjörg
Þorsteinsdóttir
Jónas E. Guðmundsson
Kristín Sigurrós
Jónasdóttir
Kristjana Brynjólfsdóttir
Rafnar Sverrir
Hallgrímsson
75 ára
Áslaug Halla Vilhjálmsdóttir
Jóhanna Halldórsdóttir
Kamma Hansen
Kristín Kalmansdóttir
Páll V. Sigurðsson
70 ára
Bjarney Guðmundsdóttir
Erlingur Aðalsteinsson
Guðrún Guðbjörnsdóttir
Hjálmar Sigurðsson
Hulda Gunnþórsdóttir
Ingunn Hjaltadóttir
Jóhannes Eggertsson
Jón Rafn Jóhannsson
Jón Sigurjónsson
Margrét Hildur Aronsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
Sigurjón Óskarsson
60 ára
Hólmfríður
Sigurjónsdóttir
Jóhann Björgvin
Marvinsson
Lilja Sveinsdóttir
Ólafur Helgi Helgason
Ronghe Zhao
Sigurlína S.
Alexandersdóttir
Sigvaldi Bjarnason
50 ára
Aðalgerður
Guðlaugsdóttir
Ágúst Ásgrímsson
Dagný Hlín Ólafsdóttir
Guðrún Torfadóttir
Harpa Rós Björgvinsdóttir
Jón Eyþór Steinþórsson
Óskar Tómas
Guðmundsson
Sigríður Jóna
Sigurðardóttir
Sigríður Kristinsdóttir
Sigurður Kristjánsson
Sigurþór Gunnarsson
Þórður Sigurður
Björnsson
40 ára
Bergþór Lund
Hilmar Freyr Hilmarsson
Hugi Jónsson
Kristján Kristjánsson
Linda Björk Magnúsdóttir
Piotr Kupski
Reynir Pálmason
Steinunn María
Sigurðardóttir
Sæþór Helgason
30 ára
Bragi Freyr Kristbjörnsson
Davíð Francis Arnarson
Jonathan Mathieu Ichter
Kristjana Helga
Bárðardóttir
Linda Rós Pálmadóttir
Marge Neissar
Ragnar Freyr
Guðmundsson
Rannveig Björg
Þórarinsdóttir
Rebecca Marie Chambers
Sólveig Pétursdóttir
Þuríður Anna Róbertsdóttir
Til hamingju með daginn
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
Ef fleiri en einn í fjölskyldunni kaupa sér hjól þá
eykst afslátturinn (gildir líka fyrir ný hjól)
Þegar þú verslar fyrir 75.000 eðameira getur þú dreift
greiðslunni vaxtalaust í allt að 6mánuði*
Allir semkaupa hjól í apríl fyrir kr. 60.000 eða
meira fá kaupauka að verðmæti 6.000 kr.
*L
ét
tg
re
ið
sl
ur
.
Þú
gr
ei
ði
re
ng
a
ve
xt
ie
n
3,
5%
lá
nt
ök
ug
ja
ld
er
af
up
ph
æ
ði
nn
io
g
34
0
kr
.g
re
ið
sl
ug
ja
ld
vi
ð
hv
er
n
gj
al
dd
ag
a.
FJÖLSKYLDUDÍLLINN
FLEIRIHJÓL -HÆRRIAFSLÁTTUR
LÉTTARIGREIÐSLUR
-VAXTALAUST ÍALLTAÐ6MÁNUÐI
KAUPAUKINN
- PUMPAOGLÁS
HJÓLA
20-50%AFSLÁTTUR
SPRENGJA!
ÞRJÁR ÁSTÆÐUR AÐ KAUPA HJÓL Í APRÍL
FRÁBÆRTILBOÐÁELDRIGERÐUMAFMONGOOSEOGKROSS