Morgunblaðið - 02.05.2015, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert fullur af rausnarskap, hvat-
vísi og hreinskilni þessa dagana, sem gæti
endað í bræðiskasti. Mundu að það er
vegna þess að þú veist um hvað þú ert að
tala.
20. apríl - 20. maí
Naut Leggðu þig fram um að sýna börnum
umburðarlyndi í dag. Allt sem til þarf er trú
á málsnilld þína og málstaðinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er engin minnkun að því að
þiggja hjálp annarra, þegar hún er boðin af
góðum hug. Annars missirðu stjórnina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þetta er afturábakdagur og horfðu
á hann í því ljósi – sjáðu endann í upphafi.
Dragðu þig í hlé ef það er eina lausnin til
að bjarga geðheilsunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo
nú er komið að því að láta hendur standa
fram úr ermum. Brettu því upp ermarnar
og láttu til þín taka.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er mjög auðvelt að troða áhrif-
um sínum upp á fólk með því að trufla, tala
hátt eða reyna að ná yfirráðum yfir að-
stæðum. Ef þú lætur undan er betra að
gera það fyrri hluta dags.
23. sept. - 22. okt.
Vog Tíminn er dýrmætur og því þarftu að
nýta hann sem best þú getur. En mundu að
sá er vinur er til vamms segir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Regla dagsins hljóðar svo: Þú
mátt bara hafa áhyggjur í fimm mínútur. Nú
er rétta tímasetningin til þess að kaupa
eitthvað sem þú ert stoltur af.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er vandratað meðalhófið og
þú verður að hafa þig allan við svo þér
verði ekki fótaskortur. Gættu þess að sýna
rausnarskap og hafðu trú á getu þinni og
stöðu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ferðaáætlanir eða ráðagerðir
tengdar útgáfu vekja með þér tilhlökkun.
Kollurinn er fullur af hugrenningum og
hvötum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Tilgangurinn helgar meðalið og
mun auk þess kenna mörgum nytsama
lexíu. Leyfðu þér að njóta lífsins.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur margt til málanna að
leggja og þeir eru margir sem bíða spenntir
eftir að heyra í þér. Vertu betri við sjálfan
þig og þú laðar að þér athyglina sem þú
leitar.
Síðast freistaðist ég til að hafagáturnar tvær. Hér kemur sú
fyrri eftir Guðmund Arnfinnsson:
Halur gæddur hrekkjaviti.
Hryggjarstykki fiskum á.
Girnilegur, beinlaus biti.
Bændum skaða veldur sá.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Margur svikull reynist refur,
refur stykki fiski á
og biti kjöts er bein ei hefur,
bóndinn refinn vill ei sjá.
Hér svarar Guðmundur sjálfum
sér:
Nefnist refur rekkur kænn.
Refur fisks er hryggjarstykki.
Refur er beinlaus biti vænn.
Bragðvís refur er hann Mikki.
Og lætur limru fylgja:
Fótfimi rómuð hans Refs er,
en raunar mér stórum til efs er,
að framar hann standi
Stuðlakots Brandi,
sem stekkur oft upp á nef sér.
Harpa á Hjarðarfelli sendi „sam-
pakkaðar lausnir“:
Klækjarefur, refjabein,
refur jóla og tófumein.
Garðaband og band í brók,
bandið tóna og svo á bók.
Botninn á við gátu Helga R.
Einarssonar:
Í fjárhúsi það nota má,
í föðurlandsins brókum,
í Hörpu má það hlusta á,
handverk, nátengt bókum.
Helgi svarar sjálfum sér:
Garðabandið gagnlegt er,
gott er bandið hlýja,
Í Hörpu af öðrum bandið ber,
að bókbandinu ýja.
Hér er lausn Guðmundar:
Fjárhúsjata er búin bandi.
Band er í hans föðurlandi.
Á band í Hörpu hlýða megum
og handinnbundnar skræður eigum.
Og eins og Guðmundur segir
streyma gátur hans endalaust:
Getur verið gata slétt.
Gjarnan möguleiki
Erfiði þér oft fær létt.
Upp á háan stall þig sett.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af ref og böndum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVA‘ HELDURÐU, MAMMA, TÍU ÞÚSUND
KALL?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kalla hana aldrei
„þybbna“.
GRETTIR, HVAÐ VILTU Á
SPÆGIPYLSUNA ÞÍNA? STEIK!
ÉG HEF ALLTAF VELT EINU
FYRIR MÉR...
HVAÐAN KEMUR
ÖLL ÞESSI REIÐI?
HVERJU?
Það er alltaf gaman að skella sér áættarmót. Víkverji fór á eitt
slíkt nýverið. Brunað var í sveitina í
einu hendingskasti með þessa fínu
köku sem var að sjálfsögðu keypt í
búð þar sem um pálínuboð var að
ræða. Þegar komið var á áfangastað
var skrafað við ættingja og vini í um
tvo tíma eða svo. Allir fengu sér að
eta og drekka, myndir voru teknar,
haldin var stutt og skelegg ræða og
að lokum var fólkið svo kvatt á nýjan
leik og brunað af stað aftur heim.
x x x
Þetta var einstaklega skemmti-legur selskapur og hæfilega
langur að mati Víkverja. Þetta snýst
oft meira um að sýna sig og sjá aðra
en endilega að halda uppi gáfulegum
samræðum við fólk sem hann hittir
sjaldan og þekkir lítið. Það er samt
alltaf gaman að hitta fólk og leggja
sig fram um að kynnast öðrum því
maður er manns gaman.
x x x
Ættarmót yfir sumartímann erualveg prýðileg en oftar en ekki
þá eru þessi örstuttu sumur á Ís-
landi skipulögð í þaula og þá er gott
að skella í eins og eitt ættarmót með
pálínuboðssniði á öðrum árstíma.
x x x
Annars er Víkverji farinn að skipu-leggja sumarið en hann ætlar að
passa sig á því að skipuleggja það
ekki um of því það þarf jú líka að
vera í fríi og í því felst stundum að
gera akkúrat ekki neitt. Þetta er
nefnilega svolítil prófraun því Vík-
verji er oft æði óskipulagður og
finnst það fínt því þá er hægt að taka
skyndiákvarðanir þegar honum
dettur það í hug. Sá galli er á gjöf
Njarðar að þá minnkar oft tilhlökk-
unin sem er svo mikilvægt að halda í
og er hluti af gleðinni í lífinu.
x x x
Það verður ekki bæði haldið ogsleppt í þessu lífi. Víkverji hefur
nefnilega áttað sig á því að ef hann
skipuleggur hlutina of mikið þá örlar
frekar á vonbrigðum, sérstaklega ef
viðburðir tengdir útiveru eru skipu-
lagðir yfir sumartímann því veðrið
er eins og það er á skerinu góða.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Guð vonarinnar fylli yður öllum fögn-
uði og friði í trúnni svo að þér séuð
auðug að voninni í krafti heilags
anda. (Rómverjabréfið 15:13)