Morgunblaðið - 02.05.2015, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
Hilma Kristín Sveinsdóttir klarín-
ettleikari heldur útskriftartónleika
sína frá Listaháskóla Íslands á morg-
un, sunnudag, í Salnum, Kópavogi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og að-
gangur er ókeypis. Á tónleikunum
verður lögð áhersla á nýrri tónlist. Tvö
tónskáld og góðir vinir Hilmu sömdu
verk í tilefni tónleikanna, þau Bára
Gísladóttir og Þorkell Nordal.
Hilma Kristín er fædd í Reykjavík
árið 1992 og hóf að læra á klarínett tíu
ára gömul í Tónlistarskóla Kópavogs.
Haustið 2011 hóf Hilma nám í klarín-
ettleik í LHÍ, fyrst hjá Einari Jóhann-
essyni og seinni ár hjá Ármanni Helga-
syni. Frá 2010 hefur hún sungið í
Hamrahlíðarkórunum undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Útskriftartónleikar Hilmu
á klarínett á sunnudag
Klarínett Hilma er fædd árið 1992.
AF SJÓNARHORNI
Anna Jóa
annajoa@hi.is
Þá hefur hún loks verið opnuð, sýn-
ingin í Safnahúsinu við Hverfisgötu á
sjónrænum menningararfi þjóð-
arinnar sem lengi hefur verið beðið.
Grunnsýningin „Sjónarhorn“ byggist
á samstarfi höfuðsafnanna þriggja og
stofnana er tengjast sögu þessa
merka húss: Þjóðminjasafns Íslands,
Listasafns Íslands og Nátt-
úruminjasafns Íslands, Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum fræð-
um, Landsbókasafns Íslands – Há-
skólabókasafns og Þjóðskjalasafns
Íslands. Umræddar stofnanir búa yf-
ir ríkulegum safnkosti en vitaskuld
ólíkum og virðist sýningarstjórinn,
Markús Þór Andrésson, hafa staðið
frammi fyrir því að leiða samstarf á
vægast sagt „háu flækjustigi“. Í
stuttu máli sagt, þá tekst sýningin
„Sjónarhorn“ í Safnahúsinu vonum
framar – það er engu líkara en hún
hafi verið töfruð fram, svo áreynslu-
laus er framsetningin og umgjörðin
öll.
Ferðalag skoðandans
Aðdráttarafl Safnahússins, reist
í klassískum stíl í byrjun 20. aldar
sem áfangi í menningarlegri upp-
byggingu landsins, veitir skipuleggj-
endum visst forskot enda bæði fal-
legur og virðulegur „safngripur“ út
af fyrir sig. Sú reynsla að nálgast
tignarlegt húsið og stíga inn í það
getur verið upplyftandi reynsla í
sjálfu sér. En friðað hús er líka ögr-
andi umgjörð um svo óvenjulega
samsetta sýningu. Í þessu tilviki
vinnur húsið einfaldlega með sýning-
unni; lagt er upp með sjö sjónarhorn í
sjö meginsýningarrýmum hússins,
auk þess sem ýmsir krókar og kimar
luma á áhugaverðum fróðleik. Sýn-
ingin minnir að þessu leyti á völund-
arhús; hún byggist ekki á línulegri
frásögn heldur er sýningargestinum
frjálst að vafra um og velja sér leið:
hann gengur einfaldlega inn í visst
samhengi sýningargripa þar sem
jafnræði ríkir milli muna, óháð upp-
runa. Þannig má t.d. velja sér sjón-
arhornið „út“ og sjá þar marghátt-
aðar tilraunir til að ná utan um
heiminn með mælingum og skrásetn-
ingum. Í sal I má m.a. skoða Manntal
Árna Magnúsar og Páls Vídalín frá
1703 (á heimsminjaskrá UNESCO),
bókverk Sólveigar Aðalsteinsdóttur
Fjallahringur Reykjavíkur frá vestri
Magnaðir
myndheimar
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjölbreytt Hjá handritum um galdra gefur að líta abstraktverk, m.a. eftir
Svavar Guðnason, Guðmundu Andrésdóttur og Gerði Helgadóttur.
til vesturs (1981) og konsept-
listaverkin Hraðar/hægar I-II (1975)
eftir Kristján Guðmundsson og Sjö
metra (1992) Rúríar. Þá getur að líta
vatnamælingaskúr frá 1963, Veð-
urbók Árna Thorlacius frá 1845-1891,
Ferðakver Jónasar Hallgrímssonar
frá 1841, teikningu af fyrirhugaðri
stjörnuskoðunarstöð Eyjólfs Jóns-
sonar Johnsoniusar frá 1773, dásam-
lega natni Samúels Eggertssonar í
uppdráttunum Ár Íslands og Íslands
fjöll (1913) og tilraun Hreins Frið-
finnsonar til að fanga það sem sífellt
rennur úr greipum – sjálfan regn-
bogann – í verkinu Sólarleikur
(1999).
Myndheimar
Hér eru aðeins nefnd fáein verk
af því fjölbreytta úrvali muna sem til
sýnis eru í þessu samhengi, þó er
ljóst að áherslan er á gæði heildar-
innar og yfirvegun fremur en magn
sem þreytir áhorfandann. Í þessu
vandlega samstillta sjónræna sam-
hengi lýkst jafnframt upp nýr skiln-
ingur án þess að einhver einn gripur
eða einn höfundur tróni yfir öðrum.
Þá er það sérstaklega dregið fram, í
þeim mörgu tilvikum þar sem ekkert
er vitað um höfund verka, að „nafn
listamanns/-konu“ sé „óþekkt“. Sýn-
ingin er raunar til fyrirmyndar hvað
varðar þá áherslu sem lögð er á sýni-
leika kvenna í sjónrænum menning-
ararfi þjóðarinnar.
Sýningin höfðar þannig til allra
og er afar aðgengileg almenningi;
hnitmiðaðir textar gefa tóninn fyrir
sjónarhornin; horft er „út“ og „inn“,
„upp“ og „niður“, „aftur og aftur“,
sjónum beint inn á við („spegill“) og
að lífi „frá vöggu til grafar“. En
merkingarsamhengið sem úr verður
rúmar ótal hugrenningar, allt eftir
Morgunblaðið/Ómar
Landslagsverk Gestir við opnun sýningarinnar nutu þess að skoða ólíka sýn listamanna á Esjuna. Á palli við glugga
opnast sýn á fjallið sjálft. „Safnahúsið er góður staður til að opna skilningarvitin upp á gátt,“ skrifar rýnir.
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 3. maí kl. 14: Fjölskylduleiðsögn
Barnamenningarhátíð í Þjóðminjasafninu:
sýningar á verkum barna Ingunnarskóla og Landakotsskóla
og skemmtilegur sumarratleikur
List án landamæra: málverkasýning Ísaks Óla
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Á veglausu hafi í Bogasal
Hvar, hver, hvað? í Myndasal
Húsin í bænum á Veggnum
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
• Til sjávar og sveita,
Gunnlaugur Scheving
• Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga.
• 15/15 – Konur og myndlist,
úr safneigninni.
24. janúar – 26. apríl
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST
13.2.-10.5.2015
Gönguferð um slóðir íslenskra myndlistarkvenna með Birnu Þórðardóttur,
á sunnudag, lagt af stað frá safninu kl. 14
A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Sunnudagsleiðsögn kl. 15 í fylgd Eyrúnar Óskarsdóttur listfræðings
Opið sunnudaga kl. 14-17.
MENN
Curver Thoroddsen, Finnur Arnar Arnarson,
Hlynur Hallsson, Kristinn G. Harðarson
Listamannsspjall
Sunnudag 3. maí kl. 15
Finnur Arnar Arnarson
Vörður
Jónína Guðnadóttir
Hádegistónleikar
Þriðjudag 5. maí kl. 12
Sigrún Pálmadóttir, sópran og
Antónía Hevesi, píanó
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson tískuhönnuðar
ÁMUNDI:
Grafísk
hönnun
Leiðsögn með Helgu sun. kl. 14
Sýningin Sjónarhorn er ferðalag
um íslenskan myndheim fyrr og nú
Tveir fyrir einn af aðgangseyri
sunnudaginn 3. maí
Fræðslurými og fræðsluefni
fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og veitingastofan Kapers
Sýningin í Safnahúsinu er samstarfsverkefni
Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands,
Náttúruminjasafns Íslands,
Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum,
Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns
og Þjóðskjalasafns Íslands.
Safnahúsið, Hverfisgata 15, s. 530 2210
Opið frá 10-17 alla daga nema mánudaga
www.safnahusid.is. Safnahúsið er
hluti af Þjóðminjasafni Íslands.
Safnahúsið
við Hverfisgötu