Morgunblaðið - 21.05.2015, Page 6

Morgunblaðið - 21.05.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Brynja Dögg Guðmundsdóttir brynjadogg@mbl.is Verkfall lögfræðinga hjá ríkinu hefur mun víðtækari áhrif en margir gera sér grein fyrir. Bóas Valdórsson sál- fræðingur og Þórdís Rúnarsdóttir fé- lagsráðgjafi eru sammála um það en þau sjá um sáttamiðlun og sérfræði- aðstoð hjá sýslumanninum á höfuð- borgarsvæðinu. Skjólstæðingar þeirra eru margir að ganga í gegnum skilnað og þurfa að ná sáttum, sérstaklega varðandi umgengni og forsjá barna. Þá er um að ræða foreldra sem eiga í ágreiningi um fyrrnefnda þætti jafnvel nokkrum árum eftir skilnað. Þrátt fyrir að Þór- dís og Bóas séu ekki í verkfalli hafa þau ekki getað byrjað á neinum nýj- um málum frá því verkfall hófst. Ný verkefni hafa staflast upp og hefur biðtími eftir sáttameðferð nú tvöfald- ast. Afgreiðslutími kemur líka til með að lengjast mikið þegar vinna hefst að nýju. Umgengni tálmað Bóas segir tálmun á umgengni við börn og erfið samskipti gjarnan tíðk- ast áður en fólk kemur til þeirra í sáttameðferð. „Það er í raun líklegt að það séu mál af þeim toga sem standa hér óafgreidd, þar sem óskað er úr- skurða um meðlög, umgengni, dag- sektir, fólk í miklum samskiptavanda sem er að reyna að komast að í sátta- meðferð og fólk með áhyggjur af börnunum sínum, að það sé ekki verið að sinna þeim eins vel og skyldi,“ seg- ir Bóas. Hann segir frágang forms- atriða vera nauðsynlegan þátt í skiln- aði en flestir foreldrar reyni að gera sitt besta þó að margir þurfi aðstoð. „Það er alltaf hópur foreldra í vanda og það er sá hópur sem kemur í sér- fræðiráðgjöf og sáttameðferð til að draga úr álaginu á börn og fjölskyld- urnar eftir því sem hægt er. Það er al- mennt mikilvægt að grípa inn í sem fyrst og hjálpa fólki áður en í óefni er komið.“ Þórdís segir skilnað hafa gríðarlega streituvaldandi áhrif. Skilnaður sé einn af stóru áföllunum í lífinu og því sé mikilvægt að ekki dragist að ná samkomulagi og klára ferlið. Áður en unnt sé að veita skiln- aðarleyfi þurfi aðilar meðal annars að semja um fjárskipti, forsjá og meðlag. Þórdís segir að skilnaður hafi áhrif á alla aðila. Því sé brýnt að klára ferlið hratt og vel. Verði börn í streitufullu umhverfi foreldra sinna í langan tíma geti það haft varanlegar afleiðingar. „Það er talað um það í sálfræðinni okkar að börn sem verða fyrir lang- varandi neikvæðum áhrifum af deil- um foreldra sinna geti orðið fyrir nei- kvæðum áhrifum tilfinningalega, námslega og félagslega.“ Bóas bendir á að sáttameðferð hafi ekki verið innleidd í lög að ástæðu- lausu en um mikla réttarbót var að ræða. „Markmiðið er að reyna að lina álagið á fjölskyldur og liðka fyrir og styðja fjölskyldur í átt að betra sam- starfi, svo aðstæður séu uppbyggi- legri fyrir börnin, sérstaklega þegar ágreiningur er kominn og ósætti milli foreldra af ýmsum ástæðum,“ segir Bóas. Biðtími orðinn tvöfaldur Eins og fram hefur komið hefur ekki verið hafin vinna við ný mál síðan verkfall hófst fyrir rúmum sjö vikum. Telur Bóas miðað við núverandi stöðu að fólk komist líklega ekki í sáttaþjón- ustu hjá embættinu fyrr en í haust. Biðtími sem hafi verið 3-4 vikur hafi tvöfaldast auk þess sem sumarfrí og annað muni lengja biðtímann enn frekar. „Þegar verkfall leysist mun af- greiðslutíminn klárlega lengjast, við munum ekki anna þessum málum. Málafjöldinn verður orðinn gríðarleg- ur,“ segir Bóas. Hann segist jafn- framt eiga von á því að fjöldi mála komi inn á borð sýslumanns þegar verkfalli lýkur. Fólki sé meðvitað um verkfallið og að ekkert gerist fyrr en það leysist. Verkfall bitnar á velferð fjölskyldna  Biðtími eftir sáttameðferð hefur lengst um helming  Eykur á streitu Morgunblaðið/RAX Skilnaður Löng bið er eftir aðstoð sérfræðinga hjá sýslumanni. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Forystumenn VR, Eflingar og Bandalags háskólamanna, BHM, segja óvissu um breytt vinnufyrir- komulag stærstu hindrunina í vegi þess að kjarasamningar náist. Verði henni ekki rutt úr vegi séu verulegar líkur á allsherjarverkföllum 6. júní. Eins og sýnt er hér til hliðar er ný verkfallslota framundan og kemur hún til viðbótar við yfirstandandi verkföll hjá BHM. Þrýstingurinn á samingsaðila er því að aukast. Félagsmenn Eflingar samþykktu í gær verkfallsboðun með 94% at- kvæða. Á kjörskrá voru 9.063 og greiddu 2.662 atkvæði eða 29,37%. Höfðu félagsmenn VR þá samþykkt verkfallsboðun, auk þess sem iðn- aðarfélögin undirbúa kosningu um slíkar aðgerðir sem kæmu þá til fram- kvæmda 10.-16. júní, eins og sýnt er á grafinu hér til hliðar. Spurður hvers vegna svo lítið hafi áunnist í kjaraviðræðunum, nú þegar einn og hálfur mánuður er liðinn síðan verkföll hjá BHM hófust þriðjudaginn 7. apríl, fyrsta virka daginn eftir páska, segir Sigurður Bessason, for- maður Eflingar, að áhersla Samtaka atvinnulífsins (SA) á fyrirkomulag vinnutíma hafi gert allar samninga- viðræður erfiðari. Segir alla efast um leið SA „Einfalda svarið við þessu er að Samtök atvinnulífsins hafa staðið frammi fyrir fjölmörgum kröfum af hálfu ólíkra aðila. Þeir velja að fara inn í viðræðurnar með vinnutíma- málin sem lausn í samningum. Allir þeir aðilar sem þeir hafa átt viðtöl við, verslunarmenn, Starfsgreina- sambandið eða iðnaðarmenn, hafa lýst yfir verulegum efasemdum um þessa leið. Henni var hafnað til að byrja með og var hún þá löguð aðeins til af hálfu SA. Það dugði ekki til vegna þess að fólk er mjög ósátt við að þessi leið skuli lögð fram núna. Það geti enda ekki lagt mat á áhrif þess- ara breytinga á kjörin. Við höfum talið að kröfur félaganna ættu að vera til umræðu. Samtök at- vinnulífsins hafa hins vegar ekki feng- ist til þess að taka þá umræðu heldur hafa þau verið með sína framsetn- ingu. Þess vegna erum við komnir upp að vegg í viðræðunum.“ Þarf að núllstilla viðræðuferlið? Þurfa menn að byrja upp á nýtt? „Það er dálítið staðan sem blasir við í dag. Tíminn er stöðugt að þrengjast. Við höfum einfaldlega sagt, og sögðum við SA hjá ríkissáttasemjara á þriðju- dag, að menn skyldu taka vinnutím- ann út fyrir sviga til að létta á málinu – að þessi mál yrðu rædd áfram og svo afgreidd með sérstakri atkvæða- greiðslu – og að við skyldum einbeita okkur að þeim samningi sem nú er undir. Samtök atvinnulífsins sögðu þá strax að þau gætu ekki fallist á það og komu aftur með sömu framsetninguna og kröfur og þar með var fundi slitið.“ Óvissa um áhrifin hjá BHM Spurður um ásteytingarsteininn í samningsgerðinni segir Páll Hall- dórsson, formaður BHM, að óvissa sé um hvaða afleiðingar breytt fyrir- komulag varðandi vinnutíma og laun muni hafa fyrir félaga í BHM. „Ríkið er í raun að bjóða það sama og Samtök atvinnulífsins nema hvað það er ekki með neinar útfærslur varðandi breyt- ingu á yfir- vinnuálagi. Þess- ar tillögur sem Samtök atvinnu- lífsins gerðu gagnvart Starfs- greinasamband- inu snerust um tvennt. Annars vegar um hækkanir á þriggja ára tímabili, beinar taxtahækkanir, og hins vegar snerust þær um að lækka álag á yfirvinnu gegn hækkun á dag- vinnu – og þá líka að rýmka dag- vinnutímabilið, eins og það heitir. Þetta eru megindrættirnir í því til- boði sem þar kom fram. Ríkið hefur boðið okkur svipað tilboð nema hvað það er miklu óljósara hvað menn eiga við um breytinguna á dagvinnu- tímabilinu og yfirvinnuhlutfallinu. Þar er í raun ekkert skýrt tilboð í gangi. Þeir eru fyrst og fremst að bjóða okkur svipaðar taxtabreyt- ingar á næstu þremur árum og SA hafa boðið Starfsgreinasambandinu, og það eru engin rúm 20%.“ Páll segir að óbreyttu „mjög ólík- legt“ að hægt verði að útfæra dag- vinnuhlutann fyrir mánaðamótin. „Ef við segjum nú sem svo að við værum með útlínuhugmyndir, og fengjum tilboð frá ríkinu þar sem all- ar stærðargráðurnar kæmu fram, þá getur frágangsvinna tekið marga daga. Það tekur tíma að herma slíkt tilboð upp á veruleikann.“ Sjö mánaða viðræður við SA Spurð hvers vegna himinn og haf sé milli viðsemjenda svo löngu eftir að viðræður hófust segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, að sam- tökin hafi átt í samtölum við Samtök atvinnulífsins í sjö mánuði. „En þeir hafa hingað til ekki viljað ljá máls á kröfugerð einstakra félaga. Við höf- um lagt kröfugerðina fram á mis- munandi máta og ef við tölum út frá VR var kröfugerðin okkar til eins árs. Þeir hafa allan tímann viljað nálgast samningana út frá heildarvinnu- markaði. Síðan hafa þeir viljað fara í breytingar á fyrirkomulagi vinnu- tíma með þeim hætti að við getum ekki unað. Ástæðan er sú að svo mörgum spurningum er ósvarað og við höfum varið of miklum tíma í þessi mál. Ég held að það sé rétt að hvíla þessar hugmyndir svo við get- um farið að komast eitthvað áfram í öðrum samtölum.“ Ólafía segir aðspurð ólíklegt að samningar náist fyrir 6. júní, þegar allsherjarverkföll nokkurra félaga, þar með talið VR, hafa verið boðuð. „En séu hugmyndir SA um breytta skilgreiningu á vinnutíma og launum teknar af dagskrá er vel hægt að ná samningum að mínu mati“. SA bjóði VR 6% hækkun í ár, 4,5% hækkun 2016 og 3% hækkun 2017. Vegna skorts á gögnum um vinnu- tíma og laun sé ekki hægt að reikna út launin eftir þessar hækkanir, m.t.t. breytts vinnutíma að tillögu SA. Þeg- ar VR geri launakönnun sé ekki skil- greint hversu dagvinnu- eða yfir- vinnustundir eru margar. Kjaraviðræður á krossgötum  Forystumenn VR, BHM og Eflingar segja áherslu SA á vinnutíma torvelda lausn kjaradeilunnar  Verði ekki stefnubreyting hjá SA og ríkinu aukist líkur á verkföllum, þ.m.t. allsherjarverkfalli Verkföll og vinnustöðvanir í vændum VM-Félag vélstjóra ogmálmtæknimanna,Samiðn,MATVÍS,Rafiðnaðarsamband Íslands,Grafía (FBM) - stéttar- félag í prent- ogmiðlunargreinumogFélaghársnyrtisveina (með fyrirvaraumsamþykki í atkvæðagreiðslu) (10 þúsund félagsmenn) Félag íslenskrahjúkrunar- fræðinga (2.150 félagsmenn) Starfsgreinasambandið (yfir 10 þúsund félagsm.) BHM (3 þúsund félagsmenn) VR,LÍVogFlóafélögin; Efling,Hlíf ogVSFK (60 þúsund félagsmenn) Félag (fjöldi félagsmanna sem verkfallsaðgerðir snerta) Tímabundið verkfall 10. til 16 júní Ótímabundið verkfall hefst 27.maí hafi samningar ekki náðst - lág- marksmönnun með öryggislistum Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti 28.maí til miðnættis 30.maí (2 sólarhringar) StéttarfélagVesturlands frá kl. 00:00 2.6. til kl. 24:00 3.6. Ótímabundið allsherjarverkfall hefst klukkan 00:00 6. júní Flugafgreiðsla frá kl.00:00 31.maí til kl. 24:00hinn 1. júní Skipafélög ogmatvöru- verslanir frá kl. 00:002. júní til kl. 24:003. júní Olíufélög frá kl. 00:004. júní til kl. 24:005. júní Ótímabundið allsherjarverkfall hefst klukkan00:006. júní Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) hjá Fjársýslu ríkisins fer í ótímabundið verkfall 2. júní 30. maí 31. maí 1. júní 2. júní 3. júní 4. júní 5. júní 6. júní 7. júní 8. júní 9. júní 10. júní 27 maí 28. maí 29. maí Sigurður Bessason Ólafía B. Rafnsdóttir Páll Halldórsson Annir hjá sáttasemjara » Fulltrúar VR og LÍV funduðu með fulltrúum Félags atvinnu- rekenda (FA) hjá Ríkis- sáttasemjara í gærmorgun. » Blaðamenn funduðu þar með fulltrúum SA eftir hádegið og munu funda á ný eftir viku. » Í dag funda fulltrúar VR og LÍV aftur með fulltrúum FA. » Eftir þann fund, eða klukkan 12, funda fulltrúar Starfs- greinasambandsins og SA. » Á morgun funda verkalýðs- félög í Straumsvík með SA og svo iðnaðarfélögin með SA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.