Morgunblaðið - 21.05.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er fyrsta ferð mínhingað til lands en sann-arlega ekki sú síðasta.Fyrir nokkrum árum fékk
ég gríðarlegan áhuga á þessu litla
landi hér í norðri og las mér til um
það. En ég uppgötvaði landið í
gegnum íslenska tónlist. Ég er heill-
aður af nokkrum íslenskum hljóm-
sveitum eins og til dæmis Múm,
Sigur Rós, Sóleyju, Amina og fleir-
um. Ég er hrifinn af tónlist þessa
tónlistarfólks og mig langaði að vita
hvaðan þau fengu innblástur í sinni
tónlistarsköpun, ég vildi vita meira
um landið þar sem þau eru alin upp,
því umhverfið hefur alltaf áhrif á
það sem fólk er að gera. Þess vegna
er ég kominn hingað,“ segir Ismail
El Ghorba Youssef sem er ófeiminn
að viðurkenna að hann sé ekki hrif-
inn af tónlist Bjarkar, þó að flestir
útlendingar sem hann hitti séu það.
Leiddist og langaði til að sjá
meira af heiminum
Ismail lenti á Íslandinu kalda í
lok apríl og hafði aðeins verið í
rúma viku á landinu þegar blaða-
maður mælti sér mót við hann á
kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur.
Hann kemur langt að, er búsettur
um þessar mundir í Vancouver í
Kanada, en er fæddur og uppalinn í
Casablanca í Marokkó í henni Afr-
íku.
„Ég fæddist reyndar í Mont-
real í Kanada, því foreldrar mínir
voru innflytjendur þar og höfðu bú-
ið þar í tíu ár og starfað sem kenn-
arar. Hálfu ári eftir að ég fæddist
fluttu þau aftur til Marokkó og þar
Marokkóbúi mættur
í íslenskan sauðburð
Hann hefur haft mikinn áhuga á Íslandi í nokkur ár og lét loks verða af því að
koma hingað núna í kalda vorinu. Hann ætlar að starfa sem sjálfboðaliði á þrem-
ur ólíkum stöðum, í sauðburði fyrir norðan, á tónlistarhátíð í höfuðborginni og á
hosteli vestur á fjörðum. Þannig kýs hann að kynnast fólki í nýju landi.
Nóg að gera Ismail kann vel við sig í sveitinni á Sölvanesi.
Um næstu helgi verður haldin Vist-
ræktarvinnustofa Laugargarðs í sam-
starfi við frístundaheimilið Dalheima,
Holtavegi 32 í Reykjavík. Markmiðið
er að koma af stað starfsemi fyrir
sumarið, skipuleggja fyrstu skrefin í
ræktuninni og gera framtíðaráætl-
anir. Hugmyndafræði vistræktar
verður kynnt, skoðaðar verða ýmsar
ræktunarlausnir og hugmyndum velt
upp um heildræna hönnun á garði.
Lilja Sigrún Jónsdóttir, stofnandi
fyrstu grenndargarða í Reykjavík,
heldur erindi um hvatningarmátt og
jákvæð áhrif sem gott grenndarsam-
félag hefur á ræktendur. Á námskeið-
inu verða forsáðar plöntur en fólk er
hvatt til að byrja að forsá og koma
með plöntur til að setja niður. Nám-
skeiðið kostar ekkert en frjáls fram-
lög eru vel þegin. Skráning og upp-
lýsingar í s. 6161278.
Netfang: brynja76@gmail.com.
Vefsíðan www.facebook/Laugargarður
Laugargarður Hann er samfélagsrekinn garður í Laugardalnum í borginni.
Sameiginleg ræktun hverfisbúa
Fjarðarkaup
Gildir 21.- 23. maí verð nú áður mælie. verð
Lambainnralæri úr kjötborði ............................. 2.598 3.598 2.598 kr. kg
Lambaprime úr kjötborði.................................. 3.098 3.640 3.098 kr. kg
Fjallalamb grillsagaður frampartur .................... 798 928 798 kr. kg
Iceberg-salat .................................................. 278 368 278 kr. kg
Appelsínur...................................................... 168 218 168 kr. kg
Jónagold-epli.................................................. 178 248 178 kr. kg
Pepis/pepsi max 4 x 2 l ................................... 698 998 175 kr. stk.
Prins póló 28 x 50 g ........................................ 1.998 2.998 71 kr. stk.
Doritos snakk 2 tegundir.................................. 199 218 199 kr. stk.
Maryland-kex 4 tegundir .................................. 99 138 99 kr. kg
Helgartilboðin
Sýningin Hjáverkin – atvinnusköpun
kvenna í heimahúsum 1900 – 1970 í
Árbæjarsafni er óður til kvenna,
framtakssemi þeirra, hugmynda-
auðgi og sjálfsbjargarviðleitni. Sýn-
ingin byggist á safnkosti og rann-
sóknum Borgarsögusafns Reykja-
víkur á vinnu kvenna og er framlag
safnsins til að minnast 100 ára af-
mælis kosningaréttar kvenna.
Meginstefið er hin falda veröld
kvenna; hvernig þeim tókst að afla
tekna í hjáverkum samhliða skyldu-
störfum til að sjá sér og sínum far-
borða. Konur tóku heimilistæki í sína
þjónustu og gerðu að atvinnutækj-
um. Prjónavélar, saumavélar og
þvottavélar nýttust til atvinnusköp-
unar. Þær seldu máltíðir, leigðu út
herbergi, þvoðu, strauuðu, saumuðu,
prjónuðu og gerðu við fatnað. Konur
af öllum stéttum nýttu hugvit sitt,
útsjónarsemi, þekkingu og færni til
að afla sér tekna í hjáverkum.
Sýningin Hjáverkin verður opin í
Árbæjarsafni um hvítasunnuhelgina
kl. 13 - 17 og síðan alla daga vikunnar
frá og með 30. maí kl. 10-17.
Falin veröld kvenna í Árbæjarsafni um hvítasunnuna
Hjáverkin – atvinnusköpun
kvenna í heimahúsum
1925-1935 Þetta er sennilega fjölskylda í Hafnarfirði.
Ljósmynd/Amatörvinnustofa G. Ásgeirssonar
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár