Morgunblaðið - 21.05.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
Náttúruparadís
sem á ekki sinn líka
KOSTA
RÍKA
Ferðaskrifstofan hefur nú hannað í
samvinnu við heimamenn sérstaka ferð
sem samanstendur af upplifun af náttúru
landsins og dýralífi þess. Auk þess
munum við kynnast fólkinu sjálfu sem
landið byggir. Ferðin er ætluð brosandi
og lifandi fólki sem vill upplifa ævintýri í
ótrúlegu umhverfi.
5.-19. september 2015
Verð kr. 565.940
á mann í tveggja manna herbergi
Innifalið í verði: Flug, skattar, hotel, allar ferðir,
islenskur fararstjóri og aðgangur þar sem við á
Sími 588 8900
transatlantic.is
Látúnsbarkinn hét viðurkenn-ing, sem eitt sinn var veitt. Nú
mætti ætla að hafin væri barátta
um digurbarkann.
Í ályktunstétt-
arfélagsins
Framsýnar í
vikunni segir að
það sé „með
ólíkindum að
Samtök atvinnulífsins vilji viðhalda
fátækt í landinu“.
Miðstjórn Alþýðusambands Ís-lands gagnrýnir SA sömu-
leiðis fyrir að neita að ræða kröfu-
gerð verkalýðshreyfingarinnar í
þeirri erfiðu kjaradeilu sem nú er
uppi: „Afneitun af þessu tagi ber
vott um takmörkuð veruleikatengsl
og herðir aðeins hnútinn sem að
þarf að leysa.“
Raunin er að málsvarar launa-fólks hafa riðið á vaðið þegar
svo ber við að öll markmið sem sett
voru í samningunum, 2013 hafa
staðist og horfur í efnahagsmálum
eru bjartari en um langt skeið, með
það að markmiði að gera það allt að
engu.
Í raun væri nær að spyrja forustuFramsýnar hvort hennar mark-
mið sé að viðhalda fátækt í landinu.
Kjarabaráttan núna snýst nefnilega
ekki fyrst og fremst um lægstu
launin, en verði gengið að kröfum
stéttarfélaganna munu þeir, sem
lægstu launin hafa, verða verst úti.
Sömuleiðis mætti spyrja hvortmiðstjórn ASÍ hafi misst öll
tengsl við veruleikann með því að
fara fram með þeim hætti, sem gert
er.
Greint verður frá því síðar hverhlýtur digurbarkann í ár.
Baráttan um
digurbarkann
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 10 skýjað
Nuuk -1 snjóél
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 léttskýjað
Stokkhólmur 13 heiðskírt
Helsinki 13 heiðskírt
Lúxemborg 12 léttskýjað
Brussel 13 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 15 léttskýjað
París 13 léttskýjað
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 16 heiðskírt
Vín 12 alskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 skýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 10 skýjað
New York 15 skýjað
Chicago 10 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:54 22:56
ÍSAFJÖRÐUR 3:29 23:31
SIGLUFJÖRÐUR 3:11 23:15
DJÚPIVOGUR 3:17 22:32
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Stóra markaðsmisnotunarmáli
Kaupþings var framhaldið í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Halldór Jónsson, verjandi Birnis
Sæs Björnssonar, eins ákærða í mál-
inu og fyrrverandi starfsmanns eigin
viðskipta bankans, sagði það vera
lykilatriði að tilgreina hvaða við-
skipti væri verið að ákæra fyrir og
ekki hægt að koma fram fyrir dóm-
stóla með pakkalausnir, heldur væru
gerðar ríkari kröfur um hvaða brot
væri verið að ræða um. Þessi grunn-
forsenda stæðist ekki í ákæru sér-
staks saksóknara í stóra Kaupþings-
málinu. Halldór sagði að
Hæstiréttur væri búinn að senda
skýr skilaboð um þetta þegar gögn
málsins væru metin.
Þegar kom að því að leggja málið í
dóm fór hann yfir þann langa tíma
sem málið hefði tekið, eða fimm ár
sem Birnir hefði verið með stöðu
sakbornings. Sagði hann málið hafa
tekið gífurlega á hann og fjölskyldu
hans og hefði verið „gríðarlega
þungur kross að bera“. Hann fór
fram á vægustu refsingu, skilorðs-
bundinn dóm eða frestun refsingar,
myndi dómurinn telja Birni sekan.
Grímur Sigurðsson, verjandi Ing-
ólfs Helgasonar, fv. forstjóra Kaup-
þings á Íslandi, fór fram á frávísun á
hans hlut í stóra markaðsmisnotk-
unarmálinu. Ef slíkt yrði ekki sam-
þykkt fór hann fram á að Ingólfur
yrði sýknaður af öllum ákærum.
Hann sagði m.a. að í ákæru sér-
staks saksóknara væri hvergi til-
greint hvernig hegðun ákærðu hefði
tryggt óeðlilegt verð og þannig brot-
ið í bága við lög. Ekki neins staðar
væri nákvæmlega tilgreint hvernig
hegðun þeirra tengdist beint mark-
aðsmisnotkun.
Grímur sagði að miðað við ákæru
saksóknara væri aðeins hægt að sak-
fella fyrir allsherjarmarkaðsmis-
notkun eða ekkert. Sagði hann að ef
ekki væri hægt að sanna slíkt alls-
herjarbrot þá þyrfti að sýkna.
Frávísun, væg refsing eða sýkna
Verjendur tveggja sakborninga í Kaupþingsmálinu með varnarræður í gær
Morgunblaðið/Golli
Héraðsdómur Markaðsmisnotk-
unarmálið hélt áfram í gær.