Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
Sími 511 8090 • www.yndisauki.is
Dukkah er frábært með brauði, salatinu,
grillaða grænmetinu, á kjúklinginn og fiskinn
og með nýgrilluðu lambakjöti
Dukkah frá Yndisauka
ómissandi í matargerðina
Dukkah er blanda af möndlum, hnetum, sesamfræjum og
sérvöldu kryddi. Blandan er upprunnin í Egyptalandi og
var upphaflega notuð með brauði sem fyrst er dýft í góða
ólífuolíu og svo í dukkah.
Dukkah fæst íHagkaupum,Melabúðinni, Fjarðarkaupum,
Mosfellsbakaríi, Kjöthöllinni,Nóatúni,Garðheimum,
Þín verslunSeljabraut og Bakaríinu viðBrúnnaAkureyri.
Starfi Rögnunefndarinnar svonefndu
er enn ekki lokið, en nefndin hefur
frest til 1. júní nk. til að skila niður-
stöðum sínum. Hingað til hefur starf
nefndarinnar, sem sett var á lagg-
irnar í október 2013, kostað 34,8 millj-
ónir króna, líkt og kom fram í frétt
hér í Morgunblaðinu í gær.
Í svari Ólafar Nordal, innanríkis-
ráðherra, við fyrirspurn frá Ögmundi
Jónassyni, þingmanni VG,
um störf stýrihóps um framtíð
Reykjavíkurflugvallar á Alþingi,
kemur fram að auk eldri gagna um
flugvallarkosti liggi nú fyrir frum-
matsgögn sem unnin hafi verið að
beiðni stýrihópsins um veðurfar,
landrými, kostnað, umhverfisáhrif,
flugtækni og náttúruvá. Sambærileg
gögn um veðurfar út frá mælingum
veðurstöðva á Hólmsheiði, í Hvassa-
hrauni og í Vatnsmýri liggi nú fyrir.
Formlegar veðurmælingar á Bessa-
staðanesi og Lönguskerjum hafi ekki
verið gerðar.
Orðrétt segir í svari innanríkis-
ráðherra: „Frummat á rými fyrir
flugbrautir og athafnasvæði flugvalla
á Bessastaðanesi, Hólmsheiði,
Hvassahrauni og Lönguskerjum
ásamt mati á stofnkostnaði liggur
fyrir. Breyttar útfærslur flugvallar í
Vatnsmýri hafa verið metnar á sam-
bærilegan hátt. Unnið hefur verið
frummat á tíu umhverfisþáttum á
hverju flugvallarstæðanna fimm og
náttúruvá hefur verið skoðuð sér-
staklega fyrir Hólmsheiði og Hvassa-
hraun. Frummat á hindranaflötum og
möguleikum á nákvæmnisaðflugi að
flugvöllum á Bessastaðanesi, Hólms-
heiði, Hvassahrauni og Lönguskerj-
um liggur fyrir ásamt mati á líkindum
flugkviku í aðflugi og umfjöllun um
skörun loftrýma.“
Þá kemur fram í svari ráðherrans
að samkomulag um framhaldið, að
starfi stýrihópsins loknu, liggi ekki
fyrir. Stýrihópurinn muni koma með
tillögur að því hvernig fara eigi með
niðurstöður verkefnisins í loka-
skýrslu sinni. Vonast sé til að sam-
hliða kynningu á niðurstöðum vinn-
unnar muni aðilar samkomulagsins
kynna hvernig málinu verður fram
haldið. agnes@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rögnunefnd Vinnu við skýrslugerð stýrihóps um framtíð Reykjavík-
urflugvallar, svonefndrar Rögnunefndar, verður brátt lokið.
Framhaldið hefur
ekki verið ákveðið
Rögnunefndin skilar brátt af sér
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mesta vinnan við lagasetningu á Al-
þingi fer fram í nefndum. Þátttaka
þingmanna í nefndastarfinu er mjög
misjöfn eins og hér var fjallað um í
gær. Kom þar m.a. fram að Píratar
skipa neðsta sætið yfir mætingu í
sex af átta nefndum. Helgi Bernód-
usson, skrifstofustjóri Alþingis, seg-
ir að formlega séð séu þingnefnd-
irnar hópur þingmanna sem þingið
biður um að rannsaka mál betur en
gert er með umræðu í þingsal.
„Grundvallarreglan er að mál eru
á vettvangi þingsins. Það vísar þeim
síðan til nefndanna sem hafa það
verkefni að skoða þau betur, við
óformlegri aðstæður. Þetta er form-
ið á þessu. Þingnefndirnar eru hins
vegar í raun hið málefnalega verk-
stæði, eins og stundum er sagt. Þar
eru mál krufin og þar fara fram
miklar umræður og samtöl. Nefnd-
irnar eru líka tenging þingsins út í
samfélagið, þ. á m. við hagsmuna-
aðila og aðra sem mál varðar og
koma á þeirra fund eða senda um-
sagnir,“ segir Helgi og svarar því til
að mesta lagasetningarvinnan fari
tvímælalaust fram í nefndunum.
Skylmingar í þingsalnum
„Það má kannski segja að á síð-
ustu áratugum hafi skerpst á þessu,
þannig að hin málefnalega vinna er
orðin meiri í nefndunum og þingsal-
urinn hins vegar meira notaður fyrir
pólitískar skylmingar … Það eru all-
ir þingmenn í nefndum. Það var
gerð mikilvæg breyting á þing-
nefndunum 2011. Þeim var fækkað
og settar skýrar reglur, þannig að
síðan sitja allir þingmenn, aðrir en
ráðherrar og þingforseti, í nefndum.
Það geta verið frávik, til dæmis að
þingflokksformaður hafi ekki svig-
rúm til að sitja í þingnefnd. En meg-
inreglan er sú að hver þingmaður er
í einni nefnd að minnsta kosti.“
Að sögn Helga er fyrirkomulagið
þannig að hver þingmaður stjórnar-
andstöðunnar er í einni þingnefnd
og þingmenn stjórnarflokkanna í
einni til tveimur þingnefndum.
Fjárlaganefndin hafi sérstöðu.
Hún sé þannig á fundum mánudaga
til fimmtudaga, jafnvel föstudaga, á
haustþinginu. Á vorþinginu falli hún
hins vegar inn í nefndatöfluna.
„Það að vera í fjárlaganefnd og
einhverri annarri nefnd er alveg sér-
stakt verkefni. Þeir sem eru líka í
annarri nefnd þurfa að velja í hvorri
nefndinni þeir ætla að sitja þegar
fundartíminn skarast.“
Mikil binding fyrir þingmann
„Í öðru lagi verður að gera mikinn
mun á því hvort þingmaður er í einni
nefnd eða tveimur. Það er gríðar-
lega mikil binding fyrir þingmann að
vera í A- og B-nefnd og því á fund-
um alla morgna, mánudaga til
fimmtudaga. Kerfið var upphaflega
hugsað þannig að hver þingmaður
væri aðeins í einni nefnd, eins og t.d.
er í norska þinginu. Það gekk ekki
upp út af öðrum sjónarmiðum. Það
er mjög mikið álag á þingmenn sem
eru í tveimur nefndum. Ef þeir eiga
að sinna öðru en nefndarstarfi á
þingtíma verða þeir að velja og
hafna,“ segir Helgi og víkur að Pí-
rötum.
„Píratarnir hafa oft haft orð á því,
bæði á fundum forsætisnefndar og
hjá formönnum þingflokka, að þeir
eru aðeins þrír en nefndirnar átta.
Þeim finnst þetta geysilega snúið.
Þeir eiga áheyrnaraðild að nokkrum
nefndum en hafa þá kannski frekar
hugsað það þannig að þeir komi inn í
þær nefndir þegar þar eru mál sem
þeir vilja sérstaklega hafa afskipti
af. Það að áheyrnarfulltrúi mæti
ekki á nefndarfund er að mínu mati
ekki mikil synd, sérstaklega ekki frá
flokki sem er aðeins með þrjá þing-
menn. Það er geysilega flókið að
sinna þessu öllu. Þeir þingmenn
verða þá helst að hafa þá afstöðu að
þeir sæki aðeins þá fundi sem varða
þeirra hugmyndafræði sérstaklega.
Nefndakerfið var upphaflega þannig
hugsað að ef viðkomandi er aðal-
maður í A-nefnd getur hann verið
varamaður í B-nefnd því að þær
funda ekki á sama tíma. Þá gengur
það alveg upp. Þá er viðkomandi að-
eins á fundum á mánudögum og
miðvikudögum í einhverri A-
nefndanna og svo varamaður í ann-
arri nefnd á þriðjudögum og
fimmtudögum, þ.e. einhverri B-
nefndanna. Þegar þingmaður er að-
almaður í A- og B-nefnd er hann á
fundum alla daga og getur ekki
sinnt varamannshlutverkinu.“
Þurfa stundum að velja
Helgi bendir á að þingmenn eru
margir í erlendu samstarfi, og fari
því oft í stuttar ferðir til útlanda.
Þeir taki þá ekki inn formlega vara-
þingmann en eru sannarlega í störf-
um á vegum þingsins.
„Í öðru lagi er að ýmsu öðru að
huga hjá stjórnmálamanni í tilver-
unni en þinginu einu. Þingmenn
þurfa að fara á aðra fundi eða sinna
kjördæmi sínu o.s.frv. þótt þeir séu í
Reykjavík. Þingmenn þurfa stund-
um að velja á milli. Í þriðja lagi eru
þingmenn stundum úti á landi í kjör-
dæmunum og komast ekkert hjá því
að fara af þingstaðnum, Reykjavík, í
einn eða tvo daga og missa þá af
nefndarfundi,“ segir Helgi.
Þunginn er hjá þingnefndunum
Skrifstofustjóri Alþingis segir að mesta vinnan við lagasetningu fari nú fram í þingnefndum
Pólitískar skylmingar fari hins vegar fram í þingsalnum Píratar kvarta undan starfsálagi
Morgunblaðið/Ómar
Alþingishúsið Þingmenn eru misduglegir að sækja nefndarfundi.
Að sögn Helga voru þingnefndirnar yfir 20 þegar Alþingi
var deildaskipt. „Eftir 1991 voru tólf nefndir og þeim var
fækkað í sjö nefndir 2011 og svo búin til ný nefnd,
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Árið 2011 var jafn-
framt gerð sú mikilvæga breyting að nefndunum var
skipt í tvo hópa. Fyrir vikið er miklu auðveldara að skipu-
leggja fundi þeirra. Við köllum þetta A- og B-hópa,“ seg-
ir Helgi en A-nefndir hittast á mánudögum og mið-
vikudögum og B-nefndir á þriðjudögum og
fimmtudögum. „Það var erfitt að búa til nefndatöflur
þegar mönnum var skipað í tólf nefndir út frá allt öðrum sjónarmiðum.
Nefndataflan var þá afgangsstærð.“
Nefndirnar voru yfir 20
ALÞINGI Á ÁRUM ÁÐUR
Helgi
Bernódusson