Morgunblaðið - 21.05.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Indónesíu, Malasíu og
Taílandi sögðust í gær hafa fallið frá
fyrirmælum til herskipa um að toga
burt skip þúsunda flóttamanna frá
Búrma og Bangladess. Margir þeirra
þjást af alvarlegri vannæringu eftir
að hafa kúldrast í ofhlöðnum bátum
smyglara sem skildu þá eftir á hafinu
án matar og drykkjarvatns.
Sú ákvörðun stjórnvalda í löndun-
um þremur að leyfa ekki bátunum að
koma að landi hafði sætt harðri gagn-
rýni embættismanna Sameinuðu
þjóðanna og mannréttindasamtaka.
Stefnubreytingin var samþykkt á
fundi utanríkisráðherra landanna í
gær. Stjórnvöld í Indónesíu og Mal-
asíu buðust til að veita flóttafólkinu
leyfi til að dvelja í löndunum í allt að
eitt ár en lögðu áherslu á að tilboðið
gilti aðeins um þá sem væru nú þegar
í bátum við strendur landanna.
Stjórnvöldin óttast að enn fleiri reyni
að komast til landanna veiti þau
flóttafólkinu dvalarleyfi.
Stjórn Taílands bauðst ekki til að
taka við flóttafólki til bráðabirgða en
kvaðst hafa afturkallað fyrirmæli um
að bátum með flóttafólk og ólöglega
innflytjendur yrði vísað frá ströndum
landsins. Áætlað er að um 7.000
manns séu í bátum við strendur land-
anna þriggja.
Embættismenn Flóttamanna-
stofnunar SÞ fögnuðu stefnubreyt-
ingunni og sögðu hana vera „mikil-
vægt fyrsta skref í leitinni að lausn
vandans“.
Flóttafólkið fær
dvalarleyfi í eitt ár
AFP
Bjargað Bátar indónesískra sjómanna toga bát flóttafólks í land. Í bátnum voru 433 manns, þ. á m. 70 börn.
Indónesar og Malasíumenn taka á móti sveltandi flóttafólki
Soltnu fólki bjargað
» Sjómenn björguðu 433
sveltandi flóttamönnum í báti
undan strönd Indónesíu í gær.
» Einn sjómannanna kvaðst
hafa brostið í grát þegar hann
sá fólkið. „Ég var orðlaus. Við
grétum þegar við sáum þau
vegna þess að þau voru svo
hungruð og horuð.“
Minningarvaka um kú sem skyttur lögreglunnar
drápu verður haldin í Wallsend á Englandi á morg-
un. Kýrin Bessie var ein af þremur sem sluppu laus-
ar á sunnudag. Fjöldi lögreglumanna elti kýrnar
áður en Bessie var skotin í þágu „almannaöryggis“,
að sögn lögreglu.
Lögregluþyrla og sex lögreglumenn fylgdu kún-
um og þeim tókst að ná tveimur þeirra aftur. Að
sögn BBC segjast fimm vitni hafa séð fleiri en
fimmtán lögreglubíla á vettvangi auk þyrlunnar og
þrír eða fjórir lögreglumenn hafi verið búnir sem
leyniskyttur. Lögreglan segir að Bessie hafi verið
skotin eftir að hún varð æ órólegri og byrjaði að
valda hættulegum og alvarlegum truflunum á stórri akbraut.
Drápið á kúnni vakti hörð viðbrögð og þúsundir manna hafa líkað við
Facebook-síðu sem sett var upp til minningar um hana.
BRETLAND
Kýrin skotin í þágu almannaöryggis
Bessie var sögð hafa
valdið hættu.
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, ákvað í gær að af-
nema umdeilt bann við því að Pal-
estínumenn ferðuðust með sömu
rútum og gyðingar þegar þeir
sneru aftur til Vesturbakkans eftir
að hafa starfað í Ísrael. Moshe
Yaalon, varnarmálaráðherra Ísr-
aels, samþykkti bannið fyrir þrem-
ur mánuðum en Netanyahu afnam
það nokkrum klukkustundum eftir
að það tók gildi í gær.
Hreyfingar gyðinga á hernumdu
svæðunum beittu sér fyrir banninu
og sögðu það nauðsynlegt til að
tryggja öryggi þeirra. Mannrétt-
indasamtök og stjórnarandstæð-
ingar gagnrýndu hins vegar bann-
ið, lýstu því sem
kynþáttaaðskilnaði og lítillækkun
við Palestínumenn.
FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSRAELS HAFNAR UMDEILDU BANNI
Aðskilnaður í rútusamgöngum afnuminn
AFP
Ný stjórn Benjamin Netanyahu mynd-
aði nýja samsteypustjórn nýlega.