Fréttablaðið - 21.04.2015, Side 2
21. apríl 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SKIPULAGSMÁL „Það fara í þetta 1,2 kílómetrar af girðingarefni,“ segir
Brynjar Harðarson, framkvæmdastjóri Valsmanna hf. Reykjavíkurborg
stendur að viðamikilli uppbyggingu á Hlíðarendareit í Vatnsmýrinni en
reiturinn allur verður afgirtur. „Það verður auðvitað að hafa öryggið í
fyrirrúmi við svona framkvæmdir. Ég held að þetta séu um 10 milljónir
króna sem fara bara í girðingarefni,“ segir Brynjar.
Jarðvegsframkvæmdir eru byrjaðar á svæðinu en gert er ráð fyrir að
flytja þurfi á brott um 500.000 tonn af mold. Þá munu á svæðinu rísa 600
íbúðir og 75 þúsund fermetra rými undir atvinnuhúsnæði. - srs
Framkvæmdir á Hlíðarendareit komnar á fullan skrið:
Flytja 500.000 tonn af jarðvegi
ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI Byrjað er að girða af framkvæmdavæðið við Hlíðarenda í
Reykjavík. Til verksins er sagt þurfa um 1.200 metra af girðingarefni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEGAGERÐ Vaðlaheiðargöngin
að austanverðu eru orðin full af
vatni og þrýstast nú inn í göng-
in um það bil 500 lítrar af köldu
vatni á sekúndu. Stafn ganganna,
sem er um 1,5 km inni í fjallinu,
liggur um fimmtán metra fyrir
neðan gangamunnann og fylltust
þau á um sólarhring. „Við áætlum
að þarna inni séu um fjörutíu þús-
und tonn af vatni,“ segir Valgeir
Bergmann, framkvæmdastjóri
Vaðlaheiðarganga hf. Jarðganga-
gerðin sjálf hefur því stöðvast um
óákveðinn tíma á meðan fundin er
lausn á vatnsflaumnum.
Síðastliðinn föstudag sáu verka-
menn hvar byrjað var að hrynja
úr miðgengissprungu í lofti gang-
anna. Vatnssöfnunin var einnig
mikil þrátt fyrir kröftugar dælur
sem höfðu ekki undan. „Þegar
verktaki sá að ekki tókst með góðu
móti að koma
vatninu út voru
fengnar fleiri og
öflugri dælur.
Þær dælur höfðu
hins vegar ekki
undan magninu
og því var það
eina í stöðunni
að ná verðmæt-
um út úr göngun-
um og bíða átekta,“ segir Valgeir.
„Það er alveg ljóst að það verð-
ur ekki grafið í nokkurn tíma. Við
vitum ekkert hversu lengi ganga-
gerðin stöðvast,“ segir Valgeir.
„Nú erum við bara að skoða næstu
skref og hvað við getum gert úr
stöðunni. Við vitum að rennslið inn
í göngin mun minnka. Hins vegar
vitum við ekki hversu langan tíma
það mun taka að ná jafnvægi. Nú
vinnum við að því að finna út
hversu öflugar dælur við þurfum
til að dæla út vatninu. Einnig þurf-
um við öflugar lagnir því stafninn
er 1.500 metra inni í fjallinu og við
þurfum að ræsa vatn út alla þessa
leið,“ segir Valgeir.
Gangagerðin í Vaðlaheiði hefur
ekki gengið greiðlega fyrir sig.
Eftir nokkurn gröft Eyjafjarðar-
megin lentu verktakar á mjög
heitu vatni sem hefur stöðvað
gangagerð þeim megin vegna hita.
Nú eru göngin austanmegin orðin
full af vatni og því verður enn
meiri seinkun á verkinu. Valgeir
segir kostnað við verkið þó ekki
vera kominn langt fram úr áætlun
sökum þessara erfiðleika.
„Í upphaflegri áætlun var gert
ráð fyrir einhverjum ófyrir-
séðum kostnaði. Sá liður er ekki
búinn en það stefnir auðvitað í að
hann verði nokkuð hærri en spár
gerðu ráð fyrir. Á móti kemur að
verktakinn er aðeins með eitt bor-
gengi í vinnu en átti að vera með
tvö samkvæmt plani. Þótt verkið
tefjist um einhvern tíma við þetta
þarf það ekki að hafa í för með sér
aukinn kostnað,“ segir Valgeir.
sveinn@frettabladid.is
Óvissa með áfram-
hald gangagerðar
Vaðlaheiðargöngin eru full af vatni að austanverðu og enn kemur heitt vatn Eyja-
fjarðarmegin sem hamlar gangagreftri. Gangagerð mun tefjast um óákveðinn
tíma á meðan verktakar bíða eftir að vatnsrennslið nái jafnvægi austanmegin.
VALGEIR
BERGMANN
FRESTUN Mikið hefur verið lagt í búnað Eyjafjarðarmegin til að lækka hitastig í
göngunum. Nú er svo komið að gangagerðin hefur verið stöðvuð um óákveðinn
tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
40.000
tonn af vatni er áætlað að
séu nú í Vaðlaheiðargöngum.
LÖGREGLUMÁL Ríkissaksóknari er
enn með mál fimm pilta sem kærð-
ir voru fyrir hópnauðgun síðastlið-
ið vor til skoðunar. Mennirnir voru
handteknir í kjölfar þess að sextán
ára stúlka lagði fram kæru á hend-
ur þeim fyrir nauðgun í samkvæmi
í Breiðholti. Þeir voru leiddir fyrir
dómara og úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Þeir hafa allir lýst yfir
sakleysi sínu og sagt stúlkuna hafa
veitt samþykki fyrir því að stunda
með þeim samfarir.
Meðal gagna sem stúlkan lagði
fram er myndband af atvikinu.
Vitað er að myndbandið fór í dreif-
ingu á netinu auk þess sem allir aðil-
ar málsins voru nafngreindir á sam-
félagsmiðlum.
„Málið er enn til meðferðar hjá
Ríkissaksóknara. Ákvörðun um
ákæru eða niðurfellingu liggur ekki
fyrir. Það er ekki hægt að segja til
um hvenær ákvörðun liggur fyrir,“
segir Daði Kristjánsson, saksóknari
hjá Ríkissaksóknara, í samtali við
Fréttablaðið.
Daði segir ástæðu tafanna vera
þunga málastöðu embættisins í
nokkurn tíma.
„Við forgangsröðum eftir skil-
greindum forgangi, erum bundin
yfir kærðum ákvörðunum og lög-
mætum tímafrestum og einnig háð
frestum sem dómstólar veita okkur.
Við afgreiðum mál sem eru fyrir
dómi, greinargerðir fyrir Hæsta-
rétti og annað sem við ráðum ekki
við,“ segir Daði.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lauk rannsókn málsins og vísaði því
til Ríkissaksóknara í júní í fyrra. - fbj
Þung málastaða ríkissaksóknara veldur því að ákvörðun um meinta hópnauðgun í Breiðholti tefst:
Hópnauðgun í tæpt ár hjá ríkissaksóknara
TAFIR Rannsókn á hópnauðgun í Breið-
holti lauk hjá lögreglunni í júní 2014.
Málið er enn til skoðunar hjá ríkissaksókn-
ara en ákvörðun um ákæru eða niðurfell-
ingu liggur ekki fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KJARAMÁL „Það er grafalvarlegt
að ríkið reyni ekki að leita lausna
á meðan verkföll hafa dregist á
langinn og bitna alvarlega á samfé-
laginu,“ segir Páll Halldórsson, for-
maður Bandalags háskólamanna.
Fulltrúar BHM funduðu með
fulltrúum ríkisins hjá Ríkissátta-
semjara í gær án árangurs. Forysta
BHM hefur boðað til félagsfundar
vegna þeirrar stöðu sem komin
er upp. Aðspurður vill Páll ekk-
ert gefa upp um hugsanleg útspil
BHM en hann segir að fundurinn
sé fyrst og fremst hugsaður til að
fara yfir stöðu mála með félags-
mönnum. Þá segir Páll að félagið
hafi ekki útilokað það að ráðast í
frekari aðgerðir.
Sum aðildarfélög BHM hafa
veitt undanþágur frá verkfalls-
aðgerðum vegna neyðarástands á
nokkrum stofnunum. Til að mynda
Formaður BHM segir ríkið áhugalaust um að leita lausna í kjaraviðræðum:
Funda vegna alvarlegrar stöðu
ALVARLEG STAÐA Páll útilokar ekki frekari aðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
mættu geislafræðingar og náttúru-
fræðingar til vinnu á Landspítal-
anum til að létta undir með starfs-
fólki spítalans. Þá hefur nokkrum
starfsmönnum Matvælastofnunar
verið veitt undanþága til að mæta
til starfa. Enn fremur er forstöðu-
maður Húsdýra- og fjölskyldu-
garðsins undanþeginn verkfalls-
aðgerðum. - srs
SVEITARSTJÓRN Meirihluti sveitar-
stjórnar Skaftárhrepps hyggst
ráða Söndru Brá Jóhannsdóttur
sem sveitarstjóra. Sandra er úr
Skaftárhreppi og hefur meðal
annars verið verkefnisstjóri hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Fulltrúar minnihluta Ó-listans
sögðust sitja hjá við ráðninguna
þar sem ekki hefði verið haft
samráð við þá er Eygló Kristjáns-
dóttur, fyrrverandi sveitarstjóra,
var sagt upp og þeir „ekki fengið
viðhlítandi skýringar á þeim
gjörningi“. Þetta hefði þó ekk-
ert að gera með afstöðu þeirra til
verðandi sveitarstjóra, Söndru
Brár Jóhannsdóttur. - gar
Eftirmaður Eyglóar fundinn:
Sandra verði
nýr sveitarstjóri
SKIPULAGSMÁL „Við erum að
ganga frá þessu og þetta fer inn
til byggingarfulltrúa jafnvel í
þessari viku,“ segir Ólafur Þór
Ágústsson, framkvæmdastjóri
Golfklúbbsins Keilis, um bygg-
ingu á svæði félagsins sem skort-
ir leyfi fyrir. Byggingarfulltrúi
boðar dagsektir verði uppdrátt-
um ekki skilað eða mannvirkið
fjarlægt.
Í Fréttablaðinu síðastliðinn
laugardag var ranglega sagt að
um væri að ræða skemmu sem
hýsir púttvöll. Hið rétta er að
byggingin er opið æfingaskýli
sem Keilir á þar við hliðina.
- gar
Farið húsavillt í Hafnarfirði:
Æfingaskýlið
sem er án leyfis
VEÐUR
Stíf suðvestanátt í dag, víða 10-18 m/s.
Skúrir eða él á Suður- og Vesturlandi,
einnig vestan til á Norðurlandi.
Austanlands er hins vegar útlit fyrir þurrt
og bjart veður. Hiti á bilinu 0 til 8 stig,
hlýjast á Austfjörðum.
6°
2°
5°
9°
7°
13
9
10
13
7
SJÁ SÍÐU 22
VITA
léttir þér
lífið
VITA er lífið
Vaxtalaus ferðalán
til allt að 12 mánaða
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
V
IT
74
07
9
4/
20
14
Fjölskyldan kemst í sólina með VITA fyrir aðeins
25.900 kr. á mánuði*Vaxtalaus
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
*M.v. 2 fullorðna og 2 börn til Mallorca eða Calpe á völdum dagsetningum.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
0
-9
0
3
C
1
7
6
0
-8
F
0
0
1
7
6
0
-8
D
C
4
1
7
6
0
-8
C
8
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K