Fréttablaðið - 21.04.2015, Side 10
21. apríl 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
HEILBRIGÐISMÁL „Reykjavíkurborg
er bara búin að framlengja í eitt
ár þrátt fyrir loforð frá velferðar-
ráðuneytinu. Það stendur í lögum
um málefni fatlaðs fólks, bráða-
birgðaákvæði að það eigi að vera
búið að lögfesta NPA sem eina af
meginþjónustunni fyrir fatlað fólk,
staðan í dag er því lögleysa,“ segir
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,
formaður NPA-samtakanna.
„Reykjavík hefur hingað til bara
gert samninga til eins árs í senn.
Ég veit ekki hvort það muni breyt-
ast með lagasetningunni en vafinn
yrði minni, fólk hefur áhyggjur af
því að fá ekki samninginn áfram.“
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
velferðarráðs Reykjavíkur, segir
að borgin stefni að því að fram-
lengja samningana á meðan verk-
efnið er í gangi. „Við viljum að
NPA verði lögfest en gátum ekki
framlengt samningana lengur þar
sem ríkið hefur ekki lagt neinn
pening í þetta fyrir árið 2016.“
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hafa samningar um notenda-
stýrða persónulega aðstoð (NPA)
fyrir fatlað fólk ekki enn verið lög-
festir en NPA er þjónustuform sem
byggist á því að fötluð manneskja
fær fjármagn frá sveitarfélagi
sínu til þess að sjá um og skipu-
leggja sína eigin aðstoð.
Þegar þingsályktunartillaga um
NPA var samþykkt árið 2010 var
gert ráð fyrir að þjónustan yrði
lögbundin fyrir árslok 2014. Í stað
lögbindingar hefur verið boðað
áframhald á tilraunaverkefninu til
2016. Á meðan verða ekki gerðir
nýir NPA-samningar og notendur
aðstoðarinnar og annað fatlað fólk
sem þarf á henni að halda bíða í
algjörri óvissu.
Björt Ólafsdóttir, þingmaður
Bjartrar framtíðar, hefur talað
fyrir því að binda NPA í lög.
„Sveitarfélögin eru hrædd um að
þetta sé mjög dýrt,“ segir hún. „Ég
skil það vel en það sem gleymist
oft er að NPA þarf litla sem enga
yfirbyggingu. Fólk veit að það er
mun ódýrara en stofnanarekstur.
Við höldum því ekki fram að NPA
sé lausn fyrir alla en það ætti að
vera í boði sem einn af möguleik-
unum.“
Á vefsíðu NPA samtakanna segir
að NPA byggist á hugmyndafræði
um sjálfstætt líf. Hugmyndafræð-
in byggist á því að allar manneskj-
ur, óháð eðli og alvarleika skerð-
ingar, geti tekið eigin ákvarðanir,
stjórnað eigin aðstoð og mótað
eigin lífsstíl. Einnig að allar mann-
eskjur hafi rétt á því að búa í sam-
félaginu, stjórna eigin lífi, taka
þátt og hafa áhrif á öllum sviðum
lífsins.
Rúnar segir að allt myndi breyt-
ast í sínu lífi ef samningarnir yrðu
ekki framlengdir. „Ég gæti til
dæmis ekki farið í bað á kvöldin
eða um helgar, ég yrði að fara á
morgnana þegar þjónustunni hent-
ar. Það væri í raun og veru verið að
breyta um lífsstíl hjá fólki. Marg-
ir þyrftu að mæta seinna til vinnu
eða í skóla. Félagslíf yrði líka erf-
iðara ef fólk hefði enga aðstoð með
sér út úr húsi,“ bætir hann við en
áður en Rúnar fékk NPA-samning
var öll þjónusta við hann bundin
við húsið þar sem hann býr.
Rúnar stundaði nám á ylræktar-
braut í Garðyrkjuskólanum í Hvera-
gerði. Hann segir að það hefði ekki
verið möguleiki nema út af NPA.
Hann bendir einnig á að áður en
hann fékk NPA-samning hafi að
minnsta kosti fimm starfsmenn
komið til hans á dag og allt upp í
30-40 á mánuði. „Maður þurfti allt-
af að vera að kenna allt upp á nýtt.
En síðan ég fékk NPA hef ég verið
með fimm starfsmenn síðasta eina
og hálfa árið.“ sandra@frettabladid.is
Segir stöðu mála í
dag vera lögleysu
Notendastýrð persónulega aðstoð (NPA) hefur ekki enn verið fest í lög. Samið
hefur verið um framhald á verkefninu til 2016. Notendur eru óvissir með fram-
haldið. Lífsstíl fólks breytt gegn vilja þess, segir Björn Herrera Þorkelsson.
ÁHYGGJUR Rúnar Björn Herrera Þorkelsson segir fólk hafa áhyggjur af að fá ekki framlengdan samning. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það væri í raun og veru
verið að breyta um lífsstíl
hjá fólki. Margir þyrftu að
mæta seinna til vinnu eða í
skóla. Félagslíf yrði líka
erfiðara ef fólk hefði enga
aðstoð með sér út úr húsi.
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,
formaður NPA-samtakanna.
AÐALFUNDUR
HÚSEIGENDAFÉLAGSINS
Aðalfundur Húseigendafélagsins 2015 verður haldinn
miðvikudaginn 29. apríl n.k. salur Ásatrúarfélagsins, Síðumúla 15,
Reykjavík og hefst hann kl. 16:00
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórnin.
LÚXEMBORG „Það er pólitísk og sið-
ferðisleg skylda okkar að bregð-
ast við flóttamannavand anum í
Miðjarðarhafi,“ sagði Federica
Mogherini, framkvæmdastjóri
utanríkismála Evrópusam-
bandsins, á fundi utanríkisráð-
herra sambandsins í Lúxem-
borg í gær. „Miðjarðar hafið er
haf okkar allra
og við verðum
að vinna saman
sem Evrópu-
búa r,“ sagði
Mogherini enn
fremur. Á sama
tíma og þessi
orð féllu voru
ítalskar og malt-
neskar björg-
unarsveitir að bjarga tveimur
flóttamannabátum úr neyð á Mið-
jarðarhafinu.
Evrópusambandið hefur verið
harðlega gagnrýnt fyrir skort á
aðgerðum í þágu flóttamanna á
Miðjarðarhafinu en sambandið
dró úr aðgerðum á síðasta ári.
Margir leiðtogar og ráðherrar
sambandsins hafa kallað eftir að
sambandið og aðildar ríkin setji
aftur aukið fjármagn í björgunar-
aðgerðir. Ekki eru allir á einu
máli um hvernig eigi að bregð-
ast við vandanum en sumir vilja
fjölga björgunarskipum á Mið-
jarðarhafi en aðrir vilja koma
upp flóttamannabúðum í Norð-
ur-Afríku. Leiðtogar Evrópu-
sambandsríkjanna koma saman
til neyðarfundar næsta fimmtu-
dag til að ræða mögulegar lausn-
ir við vandanum.
Zeid Ra’ad al-Hussein, fram-
kvæmdastjóri mannréttinda-
mála hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagði að Evrópa væri að hætta á
að gera Miðjarðar hafið að graf-
reit. Hann var harðorður í garð
stefnu Evrópusambandsins en
hann sagði að hún ein kenndist
af skammsýni og sein legum
pólitískum viðbrögðum sem
væru einungis til þess fallin að
höfða til fordómafullra stjórn-
málahreyfinga sem eitrað hafa
almannaálitið.
Stjórnvöld í Ítalíu telja að um
20.000 flóttamenn hafi komið til
Ítalíu yfir Miðjarðarhafið og hátt
í 1.000 manns hafi týnt lífi. - srs
FEDERICA
MOGHERINI
ESB sætir gagnrýni fyrir að vera of svifaseint:
Þjóðarleiðtogar funda
vegna flóttamanna
TÝR Á ÍTALÍU Skip Landhelgisgæsl-
unnar hefur sinnt verkefnum þar sem
flóttafólki við strendur Afríku hefur
verið komið til bjargar. MYND/LHG
FINNLAND Juha Sipilä, leiðtogi
Miðflokksins í Finnlandi, ætlar að
ræða við alla leiðtoga stjórnmála-
flokkanna og aðila vinnumarkað-
arins og atvinnulífsins fyrir kom-
andi stjórnarmyndunarviðræður.
Hann hefur ekki útilokað neinn
flokk frá stjórn og segir að úrslit
kosninganna muni ekki skipta
máli í stjórnarmyndunarviðræð-
um heldur muni sameiginlegur
málefnagrundvöllur tilvonandi
stjórnarflokka ráða för.
Sipilä segir að hann muni vanda
sig við stjórnarmyndunina og
segir að ný ríkisstjórn gæti tekið
við völdum innan mánaðar.
- srs
Stjórnarviðræður flóknar:
Útilokar ekki
Sanna Finna
FERÐAÞJÓNUSTA Vestmannaeyja-
bær ætlar að kaupa salerni fyrir
1,9 milljónir króna og koma fyrir
við höfnina.
„Sumarið 2015 eru bókuð 39
skemmtiferðaskip til Vestmanna-
eyja. Hefur þeim fjölgað úr 20 frá
síðastliðnu sumri,“ segir í bókun
framkvæmdaráðs Vestmanna-
eyja.
„Aukning á tekjum vegna komu
fleiri skemmtiferðaskipa kemur
til móts við kostnaðinn sem af
þessu hlýst. Ráðið telur þetta
nauðsynlega aðgerð sem lið í
bættri aðstöðu fyrir ferðamenn í
Vestmannaeyjum,“ segir ráðið.
- gar
Fjölgun skemmtiferðaskipa:
Ný salerni fyrir
ferðamennina
JAFNRÉTTI Ný vefsíða á
vegum Jafnréttisstofu,
fjolbreyttforysta.is,
á að vekja athygli á
mikil vægi jafnrar þátt-
töku kynjanna í forystu
íslensks atvinnulífs.
Vefsíðan er unnin með
styrk frá Progress-
sjóði ESB.
Á vefsíðunni er að
finna fræðsluefni um stjórnarhætti og stjórnunarstörf. Viðtöl við fólk
með reynslu af stjórnarsetu, sérfræðinga og fólk úr atvinnulífinu eru
sett fram í stuttum myndböndum sem eru aðgengileg á síðunni. Mynd-
band með Jóni Gnarr í hlutverki ráðríks forstjóra hefur vakið mikla
athygli á síðunni en fjölmargir aðrir leggja síðunni lið. - kbg
Ný vefsíða á vegum Jafnréttisstofu tekin í gagnið:
Fræða um fjölbreytta forystu
LEGGUR MÁL-
EFNINU LIÐ
Jón Gnarr
bregður sér í
hlutverk freka
karlsins á nýrri
síðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
DÓMSMÁL Karlmenn á þrítugs- og
fertugsaldri eru sakaðir um að
hafa að undirlagi karlmanns á sex-
tugsaldri haft í hótunum við full-
trúa lögreglustjórans á Akureyri
og kveikt í bíl hans með bensín-
sprengju í nóvember síðastliðnum.
Þetta kemur fram í ákæru sem
fréttastofa hefur undir höndum.
Maðurinn á sextugsaldri er
sagður hafa verið ósáttur við
afgreiðslu fulltrúans, Eyþórs Þor-
bergssonar, sem sækir flest mál
fyrir hönd lögreglunnar í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra, í saka-
málum gegn honum. Samkvæmt
heimildum Vísis mun umrædd-
ur maður meðal annars hafa
verið sviptur ökuréttindum fyrir
umferðarlagabrot.
Í ákærunni segir að yngri menn-
irnir tveir hafi að undirlagi þess
eldri farið að heimili Eyþórs á
Akureyri aðfaranótt miðvikudags-
ins 12. nóvember í því skyni að
beita hann ofbeldi. Hafi þeim verið
heitið fjárhæð á bilinu 300 til 500
þúsund krónur fyrir verkið. - ktd
Ákæra gefin út vegna árásar á fulltrúa lögreglustjórans á Akureyri:
Lofaði 300-500 þúsund krónum
Eldri árásarmaðurinn, með hulið
andlit, sló Eyþór Þorbergsson þegar
hann kom til dyra á heimili sínu.
Á sama tíma stóð sá yngri við lög-
reglustöðina á Akureyri, tilbúinn
að láta vita ef lögregla yrði kölluð
út, að því er fram kemur í ákæru.
Þeir eru svo sakaðir um að hafa
nokkrum klukkustundum eftir
árásina lagt eld að bifreið í eigu
Eyþórs sem lagt var fyrir utan
heimili hans.
➜ Fólskuleg árás
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
2
-B
4
4
C
1
7
6
2
-B
3
1
0
1
7
6
2
-B
1
D
4
1
7
6
2
-B
0
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K