Fréttablaðið - 21.04.2015, Qupperneq 20
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápaV O R B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 52
D
E
E
E
D
Barnabækur
501 Feluhlutur
Geturðu fundið þá alla?
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Taktu þátt í skemmtilegum feluleik
þar sem ýmsir hlutir leynast innan um
krúttlega kettlinga, hvolpa, kanínur og
önnur silkimjúk og sæt dýr í þessari
frábæru leikjabók.
Góð bók fyrir börn frá þriggja til 10
ára.
24 bls.
Setberg
Blátoppur
Ósk Laufdal
Blátoppur, Birna og Bjartur eru litlir ís-
bjarnarhúnar. Blátoppur fær blátt nef
þegar honum er kalt. Nanok kemur og
passar þá. Kötturinn Skúli fylgir Blá-
toppi hvert sem hann fer. Sölvi leyfir
Blátoppi að vera við opinn glugga og
hann á hund sem heitir Jói. Helena
lánar Blátoppi húfu. Matthildur býr í
stóru húsi inni í skógi.
30 bls.
Ósk Laufdal
Brennu-Njáls saga
Fyrri hluti
Endurs.: Brynhildur Þórarinsdóttir
Myndskr.: Halldór Baldursson
Njála er án efa vinsælasta og þekktasta
Íslendingasagan. Í þessum fyrri hluta
sögunnar er Hallgerður langbrók og
Gunnar á Hlíðarenda í aðalhlutverk-
um. Hér koma þjófsaugu, kinnhestur,
slitinn bogstrengur og hárlokkur við
sögu í einum eftirminnilegasta bar-
daga Íslendingasagnanna.
64 bls.
Námsgagnastofnun
Egils saga
Endurs.: Brynhildur Þórarinsdóttir
Myndskr.: Halldór Baldursson
Egill Skallagrímsson er ein magnað-
asta persóna Íslendingasagna. Hann er
fýlugjarn, fégjarn og nískur, skapmikill,
ósvífinn og eigingjarn víkingur sem
vegur mann og annan í útlöndum. En
það er þó máttur orðsins sem bjargar
lífi stríðshetjunnar þegar mest liggur
við.
64 bls.
Námsgagnastofnun
Seiðfólkið
Flóttinn
Jo Salmson
Þýð.: Anna R. Ingólfsdóttir
Myndskr.: Natalia Batista
Hvað ef þú ert einn af óvinunum? Sól
hefur komist að því að hún er ein af
Seiðfólkinu. Hún neyðist til að flýja því
líf hennar liggur við. Getur Arel hjálp-
að vinkonu sinni þrátt fyrir að sú sem
rændi Sól, sé náfrænka hans?
Önnur bókin um Seiðfólkið. Höf-
undarnir hlutu Norrænu barnabóka-
verðlaunin fyrir bókaflokkinn.
Bókabeitan ehf.
G
D
B
D
G
G
Frábærir límmiðar og leikir
– Farartækin
– Sveitin
Fullt af þrautum og leikjum.
Meira en 50 litríkir og stórir límmiðar
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Kynnstu fjölbreyttum og flottum
farartækjum í þessum bráðskemmti-
legu bókum sem eru fullar af litríkum
myndum ásamt margs konar þrautum
og leikjum og fleiri en 50 límmiðum.
Góð afþreying fyrir börn frá þriggja
ára aldri.
24 bls.
Setberg
Væntanlegar í lok apríl
Freyja og Fróði
Freyja og Fróði í sundi
Kristjana Friðbjörnsdóttir
Myndir: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Gullfallegar bækur um fjörug systkini
sem takast á við ævintýri hversdagsins.
Hvað er skemmtilegt að gera í sundi?
Og hvernig er að fara til tannlæknis?
Gagnlegar og skemmtilegar sögur fyrir
börn á aldrinum tveggja til sex ára.
32 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
Kata kanína – Glöð eða döpur
Snúðu myndinni af Kötu til að sjá hvort
hún er glöð eða döpur. Þú ræður!
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Lestu frásagnirnar á hverri síðu fyrir
barnið og leyfðu því svo að ákveða
hvort Kata á að vera glöð og brosandi
eða döpur í bragði.
Kata kanína veitir foreldrum og
börnum kærkomið tækifæri til að
ræða um tilfinningar. Tilvalin bók fyrir
yngstu börnin.
12 bls.
SetbergVæntanleg í lok apríl
Kort
Aleksandra Mizielinscy og
Daniel Mizielinscy
Þýð.: Karl Emil Gunnarsson
Þessi fallega bók geymir ríkulega
myndskreytt kort af fjöldamörgum
löndum í öllum heimsálfum, auk fjöl-
breyttra upplýsinga um náttúru og
mannlíf. Bókin hefur slegið í gegn um
allan heim, enda í senn listrænt afrek
og sannkölluð fróðleiksnáma um jörð-
ina okkar fyrir fólk á öllum aldri.
109 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
Kuggur 3 og 13
Geimferð
Tölvuskrímslið
Sigrún Eldjárn
Tvær skemmtilegar bækur um Kugg og
vini hans, ferð út í geiminn og furðu-
legt skrímsli. Rómuð leiksýning sem
nú er á fjölum Þjóðleikhússins byggist
meðal annars á þessum bókum.
32 bls.
Forlagið – Mál og menning
Mjallhvít – límmyndaleikur
Leikjabók með yfir 100 límmyndum
og myndum til að losa af spjaldi
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Mjallhvít sleppur frá vondu drottning-
unni og hittir dvergana sjö!
Hér er ævintýrið um Mjallhvít end-
ursagt með fallega myndskreyttum
þrautum og leikjum. Skemmtileg af-
þreying fyrir börn frá þriggja ára aldri
sem hafa gaman af ævintýrum.
16 bls.
Setberg
E
E
G
B
E
D
Neðansjávargátan
Jørn Lier Horst
Þýð.: Sigurður Helgason
Þriðja bókin um þrjá krakka sem lenda
í ótrúlegum ævintýrum.
Spennandi bók í stíl bóka Enid Bly-
ton fyrir stálpaða krakka.
153 bls.
Bókaormurinn
Dreifing: Draumsýn
Óvættaför 18
Adam Blade
Þýð.: Árni Árnason
Átjánda bókin í ævintýraflokknum
Óvættaför.
Góðvættum Avantíu er haldið nauð-
ugum í konungsríki vonda galdrakarls-
ins Malvels. Þeirra er gætt af hryllileg-
um nýjum óvættum. Þegar Tom reynir
að frelsa góðvættinn þarf hann að fara
um neðanjarðargöng undir kastala
Malvels þar sem sporðdrekamaðurinn
Stingur liggur í leyni.
115 bls.
IÐNÚ útgáfa
Rauðhetta – límmyndaleikur
Leikjabók með yfir 100 límmyndum
og myndum til að losa af spjaldi
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Rauðhetta er á leiðinni til ömmu sinn-
ar í Töfraskóginum!
Hér er ævintýrið um Rauðhettu
endursagt með fallega myndskreyttum
þrautum og leikjum. Skemmtileg af-
þreying fyrir börn frá þriggja ára aldri
sem hafa gaman af ævintýrum.
16 bls.
Setberg
Reimastelpan
Reimastrákurinn
Bækur með reim til að læra að reima
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Lærðu hvernig þú getur orðið meistari
í að reima skó!
Leiðbeiningarnar leynast í sögunni.
Fylgdu þeim skref fyrir skref og æfðu
þig í að hnýta reimina framan á bók-
inni. Auðveld leið til að læra að reima
skóna þína. Tilvaldar bækur fyrir alla
krakka sem vilja læra að reima.
8 bls.
SetbergVæntanlegar í maí
Skúli skelfir
Skúli skelfir fær lús
Skúli skelfir gabbar tannálfinn
Skúli skelfir og töfratómatsósan
Francesca Simon
Þýð.: Guðni Kolbeinsson
Skúli segir frá heimsmetum, fær lús,
gabbar tannálfinn og eltist við töfra-
tómatsósu. Skemmtilegar sögur af
skelfilegum dreng sem vekja hlátur hjá
fúllyndasta fólki.
109 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
Stína
Lani Yamamoto
Stína stórasæng hlaut Dimmalimm-
verðlaunin og Fjöruverðlaunin sem
besta barnabók ársins 2013 og var
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Nú er þessi verð-
launabók komin út á ensku. Undir-
fögur saga af Stínu sem tekst að vinna
á kuldanum með forvitnina og vinátt-
una að vopni.
22 bls.
Crymogea
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
1
-C
2
5
C
1
7
6
1
-C
1
2
0
1
7
6
1
-B
F
E
4
1
7
6
1
-B
E
A
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K