Morgunblaðið - 03.06.2015, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Undanþága fékkst frá verkfalli BHM
fyrir sendingu af býflugum, sem gat
því komist í gegnum tollafgreiðslu og
inn í landið fyrir skömmu. Býflug-
urnar eru nauðsynlegar fyrir tómata-
bændur í landinu til að frjóvga plönt-
una.
„Býflugnabúin duga í nokkrar vik-
ur. Við vorum búin að taka vel inn af
býflugnabúum áður en verkfallið
byrjaði og vorum komin á tæpasta
vað þegar nýju flugurnar komu,“ seg-
ir Axel Thorsteinsson hjá garðyrkju-
býlinu Brún, sem er einn stærsti
ræktandi kirsuberjatómata í landinu.
Öll ræktun á búinu er vistvæn, án
eiturefna, en býflugur sjá um frjóvg-
un og vespur sjá um skaðlegar flugur.
Flugurnar eru því nauðsynlegar
búinu.
Ekki lengur eitrað
Mikil aukning hefur orðið meðal
garðyrkju- og blómabænda á notkun
lífrænna varna þar sem ýmsum skað-
völdum nytjaplöntunnar er eytt með
ákveðnum tegundum nytjadýra sem
lifa meira eða minna á skaðvöldunum
og halda þeim þannig í skefjum. Er-
lendis hefur mikil vinna verið lögð í að
finna þær lífverur sem gagnast í
þessari baráttu og að þróa aðferðir
við fjölgun og notkun þeirra. Í þessu
sambandi má nefna nokkrar tegundir
skordýra, maura, baktería, sveppa,
þráðorma og vírusa, en enn er ein-
ungis leyfilegt að flytja hluta þessara
nytjadýra hingað til lands.
Hjónin Sigurdís Edda Jóhannes-
dóttir og Gunnar Þorgeirsson garð-
yrkjufræðingur reka garðyrkjustöð-
ina Ártanga í Grímsnesi. Þar eru
ræktaðar 17 tegundir af krydd-
jurtum, mest af basilíku, kóríander,
grænni myntu, steinselju, rósmarín
og timjan. Edda segir að hún hafi
orðið fyrir barðinu á verkfallinu.
„Húsin mín eru að verða tóm af blóm-
um. Við erum með blandaða ræktun.
Kryddjurtirnar halda þessu gangandi
en sumarblómin eru ekki eins blóm-
leg núna og oft áður.
Við höfum verið að fá upp lús í
kryddjurtinar, því að lífrænar varnir
hafa ekki verið nógu miklar. Það hef-
ur komið hik í sölu á sumum teg-
undum. Ég hef þurft að henda stein-
selju en engu öðru. Við höfum fengið
undanþágu og erum að vonandi að fá
aftur af lífrænum vörnum sem bjarga
mér fyrir horn,“ segir hún.
Býflugurnar flugu inn í landið
Lífræn ræktun hefur rekist á verkfallsvegginn Undanþágur voru veittar fyrir lífrænar varnir
Flugur, skordýr, maurar og bakteríur streyma inn Flugurnar nauðsynlegar tómatabændum
Getty Images/iStockphoto
Býfluga Býflugurnar eru nauðsyn-
legar fyrir tómatabændur í landinu
til að frjóvga plöntuna.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þeir [samninganefnd SA] eru búnir
að búa sér til hjúp um það að for-
sendur kjarasamninganna sem
skrifað var undir
fyrir helgi séu
óhagganlegar.
Þeir fela sig á
bak við hann,“
segir Guðmundur
Ragnarsson, for-
maður VM - Fé-
lags vélstjóra og
málmtækni-
manna. Samn-
inganefndir sam-
flots sex sambanda iðnaðarmanna
og Samtaka atvinnulífsins hittust á
samningafundi hjá Ríkissáttasemj-
ara í gærmorgun. Fundurinn var
stuttur og gjörsamlega árangurs-
laus að mati Guðmundar.
Iðnaðarmannafélögin sætta sig
ekki við að samningarnir sem gerðir
voru fyrir helgi við Flóabandalagið,
verslunarmenn og Starfsgreinasam-
bandið verði fyrirmynd samninga
við iðnaðarmenn nema með miklum
breytingum.
Iðnaðarmenn hafa lagt áherslu á
að ná samningum þar sem taxtar
yrðu færðir nær greiddum launum.
Guðmundur segir að gengið yrði í
þveröfuga átt með samningum á
grundvelli samninga verkalýðsfélag-
anna. „Það er algerlega ómögulegt
fyrir okkar að skrifa undir samning
þar sem taxtar okkar myndu gefa
enn frekar eftir á samningstíman-
um,“ segir Guðmundur.
Samkvæmt útreikningum VM
minnkar verulega launamunur á
milli iðnaðarmanna og almenns
verkafólks, samkvæmt þeim samn-
ingum sem gerðir hafa verið. Það
grundvallast á áherslu samninganna
á hækkun lægstu launa, meðal ann-
ars með tekjutryggingu. Guðmund-
ur segir að grunnlaun manns með
iðnnám að baki og fimm til sjö ára
starfsreynslu séu nú liðlega 40%
hærri en lágmarkslaun ófaglærðs
aðstoðarmanns samkvæmt töxtum
verkalýðsfélaganna. Laun iðnaðar-
mannsins hækki hlutfallslega mun
minna á samningstímanum og
minna í krónutölu en laun aðstoð-
armannsins. Í lokin verði munurinn
um 25%.
Næst fundað á föstudag
Þá sýna útreikningar VM að
kaupmáttur iðnaðarmanna á mark-
aðslaunum, til dæmis vélfræðinga
hjá orkufyrirtækjum með um 700
þúsund króna heildarlaun, myndi
standa í stað á samningstímanum.
Samninganefndirnar hittast næst
á föstudag. Ef ekki semst hefst
vikulangt verkfall iðnaðarmanna-
félaganna 10. júní, á miðvikudaginn í
næstu viku.
Ómögulegt að semja þannig
Morgunblaðið/Ómar
Viðhald Iðnaðarmenn vilja gera við taxtakerfið en telja að samningar á nót-
um stóra samflotsins gangi í þveröfuga átt. Þeir segjast ekki semja þannig.
Guðmundur
Ragnarsson
Árangurslaus samningafundur iðnaðarmanna og SA Iðnaðarmenn vilja færa
taxta að greiddum launum en segja að tilboð SA gangi í þveröfuga átt
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Maður sér á samskiptavefnum hjá
okkur að það er stór hópur sem er að
sækja um starfsleyfi núna, bæði í
Noregi og Sví-
þjóð,“ segir Ólaf-
ur G. Skúlason,
formaður Félags
íslenskra hjúkr-
unarfræðinga, en
aukist hefur að ís-
lenskir hjúkrun-
arfræðingar sæki
um starfsleyfi á
Norðurlöndum.
Ekkert hefur
enn þokast í kjaradeilu hjúkrunar-
fræðinga við ríkið en boðað hefur
verið til fundar í dag. „Við erum enn
að bíða eftir að það komi raunhæft
útspil frá ríkinu. Við vonum að það
komi í dag. Ég er því hóflega bjart-
sýnn.“
Ólafur segir að undanþágubeiðnir
hafi borist jafnt og þétt. Heildar-
beiðnirnar frá upphafi verkfalls séu
nú 261 talsins og þar af 184 frá Land-
spítalanum. 42 beiðnum hefur aftur á
móti verið hafnað en rekja megi það
til formgalla beiðnanna í flestum til-
vikum.
„Munu ekki sætta sig við það“
Aðspurður hvort aukninguna
megi rekja til verkfalls hjúkrunar-
fræðinga, segir Ólafur svo vera. „Í
ljósi umræðunnar nýverið um að
setja lög á verkfallið þá hef ég heyrt
það á fólki að það muni ekki sætta
sig við það. Margir líta á það sem
næsta skref að vinna erlendis.“
Segir hann jafnframt að verið sé
að reyna að stemma stigu við land-
flótta hjúkrunarfræðinga sem ein-
angrast ekki við verkfallið því um
450 hjúkrunarfræðingar hafi sótt um
hjúkrunarleyfi í Noregi frá árinu
2011. „Markmið okkar í þessum
samningum er að gera laun hjúkr-
unarfræðinga samkeppnishæf bæði
við aðrar háskólastéttir hér á Íslandi
og hjúkrunarfræðinga annars staðar
á Norðurlöndum. Það kemur von-
andi í veg fyrir að fólk fari utan til
starfa.“
Erfiðara með
hverjum deginum
„Róðurinn er farinn að þyngjast
allverulega,“ segir Ragna Gústafs-
dóttir, deildarstjóri bráðadeildar
Landspítalans. Aðsóknin reyndist
minni fyrstu dagana eftir að verkfall
hjúkrunarfræðinga hófst, eða um
25%. Tímaspursmál var hins vegar
að margra mati hvenær fólk hætti að
halda að sér höndum og sækti sér að-
stoð. Telur Ragna að sá tími sé kom-
inn enda sé aðsóknin yfirleitt um 80
manns á sólarhring en sé nú komin í
110 manns. Starfað er á grundvelli
undanþága á öllum vöktum. „Þannig
gátum við afstýrt óviðráðanlegu
ástandi,“ segir hún.
„Þetta verður erfiðara með hverj-
um deginum og við höfum þungar
áhyggjur af næstu dögum. Um leið
og það myndast stífla á einum stað
lenda aðrir í vandræðum. Þetta er
keðjuverkun“ segir Ragna að lokum.
Næsta skref að vinna erlendis
Samningafundur hjá FÍH og ríkinu í dag Hjúkrunarfræðingar sækja um
starfsleyfi erlendis vegna umræðu um lög á verkfall þeirra „Róðurinn þyngist“
Morgunblaðið/Golli
Verkfall Aukning er í ásókn hjúkrunarfræðinga í starfsleyfi á Norðurlöndum
vegna verkfallsins sem nú geisar. Fundur er boðaður í deilunni í dag.
Ólafur G. Skúlason
„Það er í rauninni
lítið að frétta. Við
vorum á fundi
með samn-
inganefnd rík-
isins og þeim
fundi var frestað
til klukkan þrjú á
morgun [í dag],“
sagði Þórunn
Sveinbjarnar-
dóttir, formaður
BHM, að loknum samningafundi
BHM og ríkisins í gærkvöldi.
„Það var ákveðið að fresta fundi
og ekkert annað var til umræðu en
ákveðnar hugmyndir sem við höfum
skipst á skoðunum um í dag,“ sagði
hún um efni fundarins. Vildi hún
ekki staðfesta að samnignanefnd
ríkisins hefði lagt fram tilboð á fund-
inum í gær.
Fulltrúar BHM áttu fund með
Bjarna Benediktssyni fjármála-
ráðherra í fyrradag. „Okkur þótti já-
kvætt að fjármála- og efnahags-
ráðherra boðaði okkur til fundar og
við fórum og ræddum stöðuna ít-
arlega við hann. Svo verður að sjá
hverju það skilar.“
Samninga-
fundi BHM
frestað
„Lítið að frétta“
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
„Staðan er erfið,
það fer enginn í
verkfall að gamni
sínu,“ segir Gyða
Hrönn Einars-
dóttir, formaður
Félags lífeinda-
fræðinga.
Þeir félags-
menn sem starfa
hjá ríkinu hafa
verið í verkfalli frá 7. apríl. „Það sem
undrar okkur mest og okkur finnst
mest vanvirðing er að ríkið telji okk-
ur ekki mikilvægari starfsmenn en
svo að þeir geti bara haft okkur í
verkfalli í svona langan tíma,“ segir
Gyða. Töluvert af undanþágubeiðn-
um hafi borist félaginu sem hafi orðið
við þeim flestum.
Félag háskólamenntaðra starfs-
manna Stjórnarráðsins hjá Fjársýslu
ríksins hóf ótímabundið verkfall á
miðnætti í gær og segir Ragnheiður
Bóasdóttir, formaður félagsins, það
geta haft slæmar afleiðingar. Hún
segir engar undanþágubeiðnir hafa
borist enn. laufey@mbl.is
Vanvirðing
fólgin í löngu
verkfalli
Gyða Hrönn
Einarsdóttir
Erfitt hjá aðild-
arfélögum BHM
Samningar á vinnumarkaði