Morgunblaðið - 03.06.2015, Síða 41
AF MÁLMI
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Fór að fletta vínylplötusafnimínu á dögunum af sömuástæðu og Forrest Gump
reis á fætur og hljóp af stað yfir
Bandaríkin þver og endilöng –
sumsé engri sérstakri. Þar kennir
margra grasa. Sumt af þessu efni
hefur staðist tímans tönn, annað
ekki. Eins og gengur. Svo er þarna
inn á milli efni sem ég man satt
best að segja lítið sem ekkert eftir.
Fyrsta hljóðversplata breska
málmbandsins Samson, Survivors,
heyrir til síðastnefnda flokknum en
sú ágæta sveit er líklega frægust
fyrir að hafa gefið einum mesta
leðurbarka sögunnar sitt fyrsta
tækifæri í hljóðveri, Bruce Dick-
inson, sem síðar gekk í raðir Iron
Maiden. Í þá daga gegndi kappinn
raunar nafninu Bruce Bruce eins
undarlega og það hljómar.
Dickinson kom til liðs við Sam-
son um það leyti sem Survivors var
gefin út, 1979, og átti því ekki aðild
að upptökum á plötunni. Leiðtogi
sveitarinnar, Paul Samson, sá sjálf-
ur um sönginn ásamt gítarleik.
Eigi að síður er mynd af Dickinson
á framhlið albúmsins, ásamt hinum
þremur meðlimum bandsins. Það
er einmitt téð umslag sem er tilefni
þessa pistils, fremur en tónlistin
sem slík. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd er það nefnilega afar
undarlegt. Svo ekki sé fastar að
orði kveðið.
Samsynir standa þar borgin-mannlegir ofan á haugi
manna. Má þar greina Jesú Krist,
Jimi Hendrix, Adolf Hitler, Elvis
Presley og Charlie Chaplin svo ein-
hverjir séu nefndir. Lítil stemning
er í haugnum enda flestir búnir að
færa sig yfir á annað tilverustig. Ef
ekki allir. Samsynir eru, frá vinstri,
bassafanturinn Chris Aylmer,
Bruce Bruce, Paul Samson og
trymbillinn Thunderstick, eða
Stuðkjuði. Flestir stoppa líklega
fyrst við hann enda er Stuðkjuði í
einkennisklæðum sínum með latex-
grímu á höfði. Þannig kom hann
iðulega fram á tónleikum lokaður
inni í málmbúri. Nema hvað? Mað-
ur kemst ekki hjá því að velta fyrir
sér hvort Quentin Tarantino hafi
verið og sé jafnvel ennþá aðdáandi
Samson.
Ekki get ég sagt að Survivors
hafi náð málmsögulegum hæðum
en þar er að finna lög á borð við
Wrong Side of Time, Big Brother
og I Wish I Was the Saddle of a
Schoolgirls Bike. Þeir verða varla
meira hrollvekjandi, lagatitlarnir.
Samsynir voru að vísu ungir að ár-
um á þessum tíma og eigum við
ekki að gefa skáldinu að það hafi
verið um sextán ára aldurinn þegar
ljóðið varð til. Þannig sleppur
þetta! Eða hvað?
Upphaflega stóð til að endur-útgefa Survivors með söng
Dickinsons en það dankaðist og á
endanum var blönduð útgáfa látin
duga, upprunalega útgáfan kom út
óbreytt 1990 að viðbættum fimm
lögum sungnum af leðurbarkanum.
Dickinson söng inn á tvær
breiðskífur með Samson, Head On
(1980) og Shock Tactics (1981).
Raunar var sú síðarnefnda hljóð-
rituð á sama tíma og í sama hljóð-
verinu og Iron Maiden var að taka
upp Killers, sína síðustu plötu með
upprunalega söngvaranum, Paul
Di’Anno.
Iron Maiden-tengingarnar eru
fleiri en Clive heitinn Burr lamdi á
sinni tíð húðir í báðum böndum,
fyrst Samson og síðan Maiden, og
Stuðkjuði var einnig til skamms
tíma í Maiden. Var látinn fara eftir
að hann sofnaði – í miðju giggi.
Samson átti erfitt uppdráttar
eftir brotthvarf Dickinsons og gaf
síðast út plötu árið 1993. Bandið
leystist svo upp níu árum síðar er
Paul Samson lést af völdum
krabbameins. Fjórum árum síðar
varð Aylmer bassaleikari sama
skaðvaldi að bráð. Sjálfur hefur
Dickinson glímt við krabbamein
undanfarin misseri en hefur, sam-
kvæmt nýjustu fréttum, náð sér af
þeim veikindum. Stuðkjuði ku vera
við hestaheilsu.
Morgunblaðið/Þorkell
Svalir Dickinson, Stuðkjuði og félagar í Samson á haugnum á Survivors.
Að juða og puða með Stuðkjuða
» Stuðkjuði var einn-ig til skamms tíma í
Maiden. Var látinn fara
eftir að hann sofnaði – í
miðju giggi.
Leðurbarki Bruce Dick-
inson með Iron Maiden í
Egilshöll fyrir tíu árum.
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2015
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
Leikkonur eru að meðaltali fjór-
um og hálfu ári yngri en karl-
arnir sem leika
á móti þeim í
rómantískum
kvikmyndum,
skv. könnun
kvikmyndafram-
leiðandans
Stephens Foll-
ows sem dag-
blaðið Guardian
segir frá. Er
þar átt við leik-
konur og leikara í aðalhlut-
verkum rómantískra kvikmynda
á árunum 1984 til 2014 sem skil-
uðu yfir milljón dollurum í miða-
sölu, 422 alls. Aldursmunurinn er
ögn minni í þeim myndum sem
konur leikstýrðu, skv. niður-
stöðum Follows.
Follows komst einnig að því að
aldursmunurinn hefur minnkað
með árunum en að ákveðnir leik-
arar hafi leikið á móti sér miklu
yngri leikkonum, m.a. Robert
Redford, Dudley Moore og Rich-
ard Gere. Leikkonurnar voru að
meðaltali 18-20 árum yngri en
þeir samkvæmt könnuninni.
4½ árs aldurs-
munur á kynjum
Robert Redford
Glæpakvendið Pussy Galore, sem
leikið var af Honor Blackman í
James Bond-
myndinni Gold-
finger frá árinu
1964, kemur aft-
ur við sögu í
væntanlegri bók
um njósnara
hennar hátignar,
Trigger Mortis,
eftir rithöfund-
inn Anthony
Horowitz. Horo-
witz hefur greint
frá því að sagan hefjist árið 1957,
tveimur vikum eftir sögulok bókar
Ians Flemings, Goldfinger. Bókin
verður gefin út 8. september nk. Þá
kemur ný kvenpersóna einnig við
sögu, Jeopardy Lane, sem og nýtt
kóreskt illmenni, Jai Seung Sin,
sem Bond þarf að kljást við. Trigg-
er Mortis hefst á hugmynd frá
Fleming heitnum, æsilegum bílaelt-
ingaleik sem hann skrifaði fyrir
sjónvarpsþætti sem voru aldrei
framleiddir. Haft er eftir Horowitz
á vef BBC að hann sé himinlifandi
yfir því að hafa fengið leyfi til að
láta Galore snúa aftur.
Pussy Galore snýr
aftur í Bond-bók
Honor Blackman
sem Pussy Galore.