Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 1
Mun betur fór en á horfðist þegar
mikill eldur kviknaði í lager við verk-
smiðjuna Set á Selfossi í gærkvöldi.
Eldurinn var fljótur að verða mikill
og sagði Sigmundur Sigurgeirsson,
fréttaritari Morgunblaðsins á Sel-
fossi, að fólk hefði fundið fyrir hita í
tuga metra fjarlægð. Vitni sáu ung-
menni hlaupa frá svæðinu í þann
mund sem eldurinn kviknaði og leik-
ur grunur á að um íkveikju hafi verið
að ræða.
Bergsteinn Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sets, segir að tjónið
hlaupi á milljónum. „Þetta var tölu-
verður lager sem var þarna og tjónið
gæti hlaupið á 10 til 15 milljónum,“
sagði Bergsteinn í samtali við mbl.is
í gærkvöldi. Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins sendi mikinn mannafla á
staðinn, en óttast var að sprengi-
hætta gæti orðið á svæðinu og var
fólki gert að halda sig frá því.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Bruni Vegfarendur gátu fundið fyrir hita í tuga metra fjarlægð frá eldinum, að sögn fréttaritara Morgunblaðsins.
Réðu niðurlögum mikils elds
Grunur leikur á um
íkveikju ungmenna
Morgunblaðið/Golli
Frumvarpið kynnt Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, mælir fyrir frumvarpinu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Alþingi samþykkti laust fyrir klukkan
23 í gærkvöldi breytingar á reglum
um gjaldeyrismál sem ætlað er að
loka fyrir sniðgönguleiðir framhjá
reglum um gjaldeyrishöft. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins er þar
meðal annars horft til lánveitinga
milli samstæðna. Mjög óvenjulegt er
að þing sé kallað saman á sunnudegi
og var ástæðan sú að breytingarnar
tækju gildi fyrir opnun markaða í
dag. Þingfundur hófst klukkan 22 og
var frumvarpið samþykkt með 56
samhljóða atkvæðum klukkan 22.47.
Frosti Sigurjónsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar, sagði
nefndarmenn hafa samþykkt frum-
varpið einróma á fundi í gær.
Seðlabankinn skýrði málið
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður VG, á sæti í efnahags- og við-
skiptanefnd. Hann sagði starfsmenn
Seðlabankans hafa komið fyrir nefnd-
ina og upplýst um ástæðu þessarar
óvenjulegu tímasetningar.
„Það þarf að koma hér fram, herra
forseti, að Seðlabankinn tilgreindi
sérstaklega sem ástæðu fyrir nauð-
syn þessarar lagasetningar hér í
kvöld … leka í DV, á föstudags-
morguninn var, þegar þar var slegið
upp að í vændum væri frumvarp um
40% stöðugleikaskatt á eignir fallinna
fjármálafyrirtækja, jafnvel þar sem
skattandlagið væri allar eignir þeirra
búa. Þetta hefur leitt skjálfta yfir
kerfið og menn hafa fundið síðan auk-
inn þrýsting á það að hjáleiðir væru í
undirbúningi eða skoðaðar til þess að
sleppa út með fjármuni áður en til
skattsins kæmi,“ sagði hann.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði aðspurður að
þessi túlkun væri ekki rétt. „Mark-
miðið var alltaf að hafa þetta eins ná-
lægt kynningu hinna málanna og
kostur væri,“ sagði hann.
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði „ámælisvert“ að
stjórnarandstaðan hefði ekki fengið
upplýsingar um tvö boðuð frumvörp
um afnám hafta, sem kynnt verða í
dag. Lögmaður sem rætt var við eftir
að frumvarpið var kynnt sagði að-
gerðirnar beinast fyrst og fremst að
slitabúunum, þá meðal annars samn-
ingsbundnum útgreiðslum.
Loka fyrir hjáleiðir
fyrir afnám haftanna
Forsætisráðherra segir alltaf hafa átt að herða reglur áður en frumvörp kæmu
MStoppað upp í glufur... »4
M Á N U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 132. tölublað 103. árgangur
MARKAÐUR
Á BERNHÖFTS-
TORFUNNI
METUR MEST
VIÐBRÖGÐ
ALMENNINGS
EINSTAKUR
ÁRANGUR Í
STRANDBLAKI
INGUNN LJÓÐSKÁLD 26 ÍÞRÓTTIR 8HUGMYNDASMIÐIR 10
Að öllu
óbreyttu munu
1.100 félags-
menn Matvís
fara í verkfall á
miðvikudaginn.
Munu þá m.a.
kokkar, þjónar,
bakarar og kjöt-
iðnaðarmenn
leggja niður störf, sem getur haft
víðtæk áhrif á veitingarekstur víðs
vegar um land.
Níels S. Olgeirsson, formaður
Matvís, segir að hótel og veitinga-
staðir muni þurfa að vísa gestum
frá. Helga Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir samtökin hafa
verulegar áhyggjur af afleiðingum
sem væntanlegt verkfall kunni að
hafa í för með sér. »2
Hótel gætu þurft
að vísa gestum frá
Framfærslulán námsmanna er-
lendis voru árið 2009 hækkuð um
20% án þess að fram færi greining á
þörf þeirrar hækkunar. Kemur
þetta fram í greiningu Analytica
fyrir stjórn LÍN. Þá voru lánin
hærri en hjá sænska lánasjóðnum
og munaði allt að tugum prósenta.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, sem gegndi emb-
ætti menntamálaráðherra árið
2009, segir í samtali við Morgun-
blaðið að heilbrigð skynsemi hafi
verið látin ráða för. „Ég held að
þetta snúist nú ekki um annað en
ólíka sýn á forgangsmál. Það var
okkar forgangsmál að bæta stöðu
námsmanna,“ segir Katrín. »6
LÍN Deilt er um skerðingu námslána.
Greining sýnir millj-
arða óþarfa hækkun