Morgunblaðið - 08.06.2015, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu það ekki slá þig út af laginu
þótt skyndilegar efasemdir um eigið ágæti
sæki á þig í dag. Hvatning frá nokkrum vinum
virkar eins og plástur á sárið á sálartetrinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Skrifaðu lista yfir það sem þú átt eftir
ógert svo þér finnist þú betur skipulagður/
skipulögð. Léttu af þér okinu við góðan vin og
þú munt sjá veröldina í nýju og betra ljósi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver vandræði koma upp í
vinnunni og þú þarft að leggja þig alla/n fram
til þess að ná sáttum. Veltu aðstæðum vand-
lega fyrir þér áður en þú afræður nokkuð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að tala þínu máli og veist að
enginn getur gert það fyrir þig. Hið ófyrirséða
er það sem gerir kvöldið í kvöld svo spenn-
andi. Njóttu dagsins, dagurinn í dag kemur
ekki aftur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er heppilegur tími til að skipta um
húsnæði eða starf. Störf þín standa fyrir sínu
og þú þarft ekki að réttlæta þig með leik-
araskap.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Biðji vinur þinn þig um lán skaltu veita
það. Leggðu þig alla/n fram og þá mun fram-
lag þitt verða mikils metið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhver sem þú átt ekki von á lítur
kannski inn á heimili þínu í dag. Hver dagur
ýtir undir keppnisskapið í þér en láttu þig
stundum fljóta með straumnum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu svellkaldur/svellköld og
tjáðu þig óaðfinnanlega eða láttu ekkert uppi
um plön þín. Taktu áhættu í stað þess að fara
öruggu leiðina og þú munt ekki sjá eftir því.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að taka tillit til annarra á
næstu vikum. Einhver reynir að gera þér lífið
leitt svo nú reynir verulega á þolinmæðina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fullt tungl hefur áhrif á andrúms-
loftið á vinnustað og jafnvel heilsuna. Gjaf-
mildi er göfug en getur orðið fáránleg gangi
hún úr hófi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Oft er flagð undir fögru skinni svo
þér er vissast að fara varlega í nýjum kynn-
um. Reyndu að vera góð fyrirmynd fyrir vini
þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert dularfull/ur og spennandi í
augum félaga þinna. Ekki eru allir viðhlæj-
endur vinir. Láttu ímyndunaraflið ráða för, þú
kemur hvort eð er engu í verk í dag.
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir hefur
sent frá sér fjórðu ljóðabókina,
Fjörublóma. Hún er í ljóðahópi
Kópavogs í Gjábakka. Mér varð það
á að fara rangt með nafn hennar
hér í Vísnahorni á dögunum, sem
ég biðst afsökunar á.
Ljóð Ólafar Stefaníu eru
skemmtileg og myndræn. Hún sæk-
ir yrkisefni sín í náttúruna, söguna
og daglega lífið. Efnistökin eru fjöl-
breytileg og hún bregður fyrir sig
stuðlum og höfuðstöfum, ef því er
að skipta. Og svo getur hún verið
smáglettin:
Kú – kú – kú! gaukur gól
hvar tjóðrað múldýr töltir
daglangt í stóískri ró.
Fyrsta ljóðið heitir „Ný dögun“
og þar er tónninn sleginn:
Við sólarupprás
stíga skýstrókar upp
frá Hellisheiði
eins og eldgos.
Teinréttir toppskarfar
teyga morgunsvalann
í vetrarstillu.
Á Skarfaskeri munstrar
haflöðrið sjávarhlaðborð
á hvítan kniplingahring.
Ólöf Stefanía leikur sér gjarna að
austurlenskum ljóðaháttum. Joð-
sótt heitir þessi tanka:
Fjallið tók joðsótt.
Í blámóðunni sveima
grályndir háfar.
Í hnattferð gleypir vaðan
sólargeisla og regnský.
Og hér kemur tankan „Horft af
brúnni“:
Litli drengurinn
horfir af brúnni ofan
í straumþungt fljótið.
– Mamma, ef ég dett niður
þá á ég enga mömmu!
Hér koma að lokum hækur eftir
Ólöfu Stefaníu. Fyrst „Dómadals-
heiði“:
Grá fyrir járnum
ryðjast rymjandi tröllin
yfir hálendið.
„Jarðgöng“:
Á nýrri þúsöld
rætast óskir vegmóðra
við bifröst fjallsins.
Og að lokum „Askur og Embla“:
Mara í kafi
Askur og Embla, kvistar
í flæðarmáli.
Þessi sýnishorn sýna, að Ólöf
Stefanía er þroskað skáld og frum-
legt. Hún hefur gott vald á málinu
og hefur skýra sýn á ljóðmyndir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Athyglisverð ljóðabók
Í klípu
„INNRA BARNINU MÍNU ER ÓGNAÐ AF
BARNINU INNI Í MÉR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„UM LEIÐ OG ÉG ÞREYTIST Í
HANDLEGGJUNUM LENDI ÉG, OG ÞÚ FÆRÐ
AÐ PRÓFA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann eyðir
öllum peningunum
sínum í þig.
VILTU ELTA
MIG?
VILDI EKKI
GERA ÞAÐ
JÆJA! LÁTTU
KÖTTINN GERA
ALLT SAMAN!
NEI?
ÞEGAR MAÐUR
HORFIR Á ÞESSA
STÓRKOSTLEGU
STJÖRNUSÝNINGU
VERÐUR MAÐUR SMÁR Í
SÉR, ER ÞAÐ EKKI?
HVER VAR SPURNINGIN
AFTUR?
Þó að júní sé skammt kominn ertúristamergðin úti á landi orðin
mikil. Víkverji fór hringferð um
landið í síðustu viku og kom víða við.
Bar svo við að hvarvetna var allt
krökkt af fólki. Yfirþyrmandi er orð-
ið sem því lýsir best. Erlendir ferða-
menn sem til landsins koma eru nú
orðnir um ein milljón á ári og upp-
bygging til dæmis á hótelum og því
sem kallað er innviðir gerir ráð fyrir
áframhaldandi fjölgun. Víst skapar
þetta vinnu og skilar miklum tekjum
til samfélagsins. En hvað svo?
x x x
Á síðustu misserum hefur, meðréttu, verið bent á að helstu
ferðamannastaðir landsins beri ekki
meiri umferð og hafa skýr dæmi um
náttúruskemmdir vegna álags á
Þingvöllum, Geysi, Skaftafelli, Mý-
vatni og Dettifossi verið nefnd. Hitt
hefur þó minna verið rætt hvort vax-
andi vegur ferðaþjónustu sé endi-
lega það sem fólkinu í landinu þykir
eftirsóknarvert. Rímar þróunin við
íslenska samfélagsgerð?
x x x
Veraldarvanur Víkverji minnistþess frá Indlandi hvað mann-
fjöldinn við ástarhofið Taj Mahal var
óþægilegur. Þúsundir ferðamanna
voru á svæðinu og óteljandi skran-
salar. Mergðin minnti á ös í Kringl-
unni á Þorláksmessu. Það var því
ekki að ástæðulausu sem indversk
hughrif komu upp í huga Víkverja
þegar hann stóð á Hakinu á Þing-
völlum í fyrra, þar sem allt var
stappað af fólki með framandi svip
og enginn talaði íslensku. Og ballið
er rétt að byrja: að túristar sem til
Íslands koma verði tvær milljónir
eftir svo sem tíu ár er ekki fjarlægt.
x x x
Íslendingum finnst ljúft að getaskroppið í friðsæld úti á landi,
hlustað á þögn, tjaldað við blátæra
læki og tínt ber. En heyrir þetta
sögunni til? Túristavæðingin hefur
öllu breytt og að vissu marki gert Ís-
land að stærsta skemmtistað í heimi,
svo notað sé þekkt slagorð
símafyrirtækis. Í huga Víkverja er
slíkt land óspennandi og geldur
hann varhug við óstöðvandi fjölgun
ferðamanna. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Þú hefur elskað réttlæti
og hatað ranglæti. Því hefur Guð,
þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu
fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.)
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á fi
skinn