Morgunblaðið - 08.06.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Að sögn Guðmundar Inga Ás-
mundssonar, forstjóra Landsnets,
hafa stjórn Landsnets og PCC
Bakki Silicon aflétt öllum fyrir-
vörum vegna samnings aðilanna
um flutning raforku til fyrirhugaðs
kísilvers á Bakka við Húsavík.
Segir hann, í samtali við mbl.is,
mega ætla út frá þessum upplýs-
ingum að verkefnið sé fjármagnað
að fullu.
Um hafi verið að ræða hefð-
bundna fyrirvara, m.a. vegna fjár-
mögnunar. ,,Samningurinn fór fyr-
ir ESA fyrir nokkrum vikum til
staðfestingar og er þetta verkefni
búið að vera lengi í undirbúningi,“
segir Guðmundur. Orkuafhend-
ingin miðast við nóvember 2017 og
því stendur undirbúningur fram-
kvæmda yfir hjá Landsneti.
Guðmundur bendir á að nú
standi hönnunarvinna yfir en í
framhaldinu verði verkefnin boðin
út. „Við þurfum að klára spennu-
línu og vinna tvær nýjar spennu-
stöðvar,“ bætir hann við. Samn-
ingur Landsnets og PCC er sá
fyrsti sem hinn fyrrnefndi gerir
vegna fyrirhugaðrar iðnaðarupp-
byggingar á Bakka. Samningurinn
gerir ráð fyrir að Landsnet tryggi
orkuflutning til kísilvers frá
meginflutningskerfinu og þeim
framleiðslueiningum sem tryggja
kísilverinu raforku.
Guðmundur segir áætlaða þörf
fyrsta áfanga verksmiðjunnar 52
megawött. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdir hefjist á fyrri hluta
næsta árs og að mannaflaþörf
verkefnanna sé á bilinu 150-180
ársverk.
Fyrirvörum vegna kísilvers á Bakka aflétt
Morgunblaðið/Eggert
Húsavík Áætluð þörf fyrir fyrsta
áfanga er 52 megawött.
Verkefnið talið
að fullu fjármagnað
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Samflot iðnaðarmanna í kjaraviðræð-
um hefur rofnað. Samiðn, Grafía og
Félag hársnyrtisveina hafa ákveðið
að stefna að því að ljúka samningum
við Samtök atvinnulífsins (SA) fyrir
12. júní. Frestuðu félögin verkföllum
sem hefjast áttu 10. júní til 22. júní.
Rafiðnaðarsambandið (RSÍ) og
Félag vélstjóra og málmtæknimanna
(VM) ásamt Matvís stefna á verkföll
frá miðvikudegi, semjist ekki áður,
eins og boðað hafði verið. Morgun-
blaðið greindi frá því um helgina að
SA hefði lagt fram drög að tilboði á
föstudeginum til félaganna allra.
Tóku félögin þrjú ekki vel í hug-
myndir SA og slitnaði upp úr viðræð-
unum. Kristján Þórður Snæbjarnar-
son, formaður RSÍ, segir hugmyndir
SA ekki hafa hugnast þeim „alfarið“.
Engir fundir voru hjá iðnaðar-
mannafélögunum í gær hjá Ríkis-
sáttasemjara.
„Veitingahúsin og hótelin
þurfa að vísa gestum frá“
Að óbreyttu munu 5.600 manns
fara í verkfall á miðvikudag; 2.700 í
RSÍ, 1.800 í VM og 1.100 í Matvís.
Verkfall Matvís mun hafa víðtæk
áhrif á veitingarekstur. Í félaginu eru
m.a. bakarar, kökugerðarmenn, kjöt-
iðnaðarmenn, matreiðslu- og fram-
reiðslumenn. Níels S. Olgeirsson,
formaður Matvís, segir verkföllin
ekki ná til sveitarfélaga og ríkis.
Mötuneyti hins opinbera munu því
starfa sem áður.
„Mesti skellurinn verður þegar
stóru veitingahúsin, hótelin og bakar-
íin þurf að vísa gestunum frá. Svo
mun auðvitað verkfall í kjötvinnslum
hafa mikil áhrif, en þar starfa kjötiðn-
aðarmenn,“ segir Níels og bætir við
að nóg verði að gera hjá Bæjarins
bestu.
Grand Hótel ætlar sér að „troða
marvaðann“ í gegnum verkfallið.
„Þetta hefur áhrif á okkur en engu að
síður eru nemar ekki að fara í verk-
fall þannig að við björgum okkur,
geri ég ráð fyrir. Svo erum við nátt-
úrulega með aðstoðarfólk og fólk í
öðrum félögum sem vinnur í eldhúsi
og sal. Við sníðum okkur stakk eftir
vexti og drögum úr þeim umsvifum
sem þurfa þykir,“ segir Ingólfur
Einarsson hótelstjóri og vísar þá t.d.
til þess að úrval rétta gæti minnkað.
Til skýringar segir Ingólfur að á hót-
elinu séu nokkrir faglærðir stjórn-
endur sem geti gengið í störfin. „Svo
eru kokkanemarnir alvanir í því að
elda mat.“
Staðan er þó svartari annars
staðar. Eiríkur Ingi Friðgeirsson,
matreiðslumeistari og eigandi á Gall-
ery Restaurant á Hótel Holti, segir
að erfitt verði að halda uppi þjónustu
þrátt fyrir að hann og aðrir faglærðir
rekstraraðilar geti gengið í störf
starfsmanna. „Ég býst við að við
þurfum að loka eins og aðrir staðir.“
Ferðaþjónustan hefur áhyggjur
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
hefur áhyggjur af mögulegum verk-
fallsaðgerðum. „Við höfum að sjálf-
sögðu áhyggjur af þessu og verkfallið
mun væntanlega, ef til þess kemur,
fyrst og fremst hafa áhrif á stærri
eldhúsin. Hins vegar munu fyrirtæki
reyna að þjónusta ferðamanninn eins
og hægt er. Auðvitað mun þetta hafa
áhrif og væntanlega mun þá þjón-
ustustigið minnka.“
Kokkar og
þjónar leggja
niður störf
Verkföllum Samiðnar, Grafíu og Fé-
lags hársnyrtisveina frestað til 20. júní
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Í Kerlingarfjöllum keppast ferða-
þjónustufyrirtæki nú við að ryðja
Kjalveg svo að hægt verði að opna
fyrir umferð ferðamanna. Meðal
þeirra er fyrirtækið Fannborg, en
framkvæmdastjórinn Páll Gíslason
segir að erfitt sé að geta ekki treyst
á Vegagerðina til að sinna sínu
hlutverki.
„Við höfum þær væntingar til
Vegagerðarinnar að hún hafi fastar
dagsetningar á því hvenær vegir
eru opnaðir. Mörg undanfarin ár
hefur þetta verið einfalt mál þar
sem lítill snjór hefur verið og auð-
velt að moka vegina, sem þýðir að
litlir fjármunir hafa farið í mokst-
ur,“ segir Páll en bætir við að stað-
an sé önnur um þessar mundir.
„Hljóta að eiga eitthvað inni“
„Nú hefur verið snjóþungur vet-
ur og kalt vor. Við höfum því verið
að segja við Vegagerðina að nú
hljóti hún að eiga eitthvað inni til
að taka hraustlega á því. Það hefur
ekki gengið og við höfum þurft að
moka þetta sjálfir ásamt því að taka
þátt í kostnaði Vegagerðarinnar
við að gera vegina færa,“ segir Páll
og bætir við að í raun sé þetta orð-
inn fastur liður á hverju ári.
„Það sem við viljum hins vegar
vekja athygli á er að það þýðir ekk-
ert að vera að laða til landsins
ferðamenn til að skoða náttúruna
en á sama tíma humma það fram af
sér að hafa vegasambandið í lagi.
Það er ekki nóg að opna veginn
heim til þingmanna á vorin og láta
það duga. Það eru fleiri sem skipta
máli og miklir fjármunir í húfi.“
Aðspurður segist Páll búast við
að vegurinn að Kerlingarfjöllum
verði orðinn fær eftir rúma viku.
Jafnan hefur aðeins verið hægt að
hafa opið í Kerlingarfjöllum í þrjá
mánuði hvert sumar. Áformað er
að reisa nýja gistiálmu í sumar með
20 tveggja manna herbergjum við
hálendismiðstöðina í Kerlingar-
fjöllum.
Ljósmynd/Friðrik Halldórsson
Mokstur Fannborg og fleiri fyrirtæki í ferðaþjónustunni hafa ráðist sjálf í að moka veginn að Kerlingarfjöllum.
Vilja að Vegagerðin
sinni hlutverki sínu
Einkaaðilar ryðja hálendisvegi fyrir umferð ferðamanna
Ljósmynd/Friðrik Halldórsson
Á kafi Veturinn hefur verið snjóþungur og vorið kalt. Páll segir að Vega-
gerðin eigi að hafa fastar dagsetningar um hvenær vegir skuli opnaðir.
„Það er hreyfing á húsnæði hér á
Húsavík, það er alveg ljóst. Núver-
andi framkvæmdir á Þeistareykjum
hreyfa við markaðnum og verðið fer
þannig upp. Svo bætast væntingar
um framkvæmdir á Bakka við,“ seg-
ir Aðalsteinn Baldursson, formaður
verkalýðsfélagsins Framsýnar.
Verð á fasteignum á Húsavík hef-
ur hægt og bítandi verið að hækka í
takt við væntingar norðan heiða um
komandi framkvæmdir. Húsvíkingar
horfa björtum augum á framtíðina,
en endanlega verður tilkynnt í vik-
unni um framkvæmdir við Bakka.
Verði af þeim má gera ráð fyrir að
fjölgi í sveitarfélaginu Norðurþingi.
Aðalsteinn segir að brottfluttir
Húsvíkingar og nærsveitungar vilji
flytja heim. „Hér er atvinna og það
vilja allir koma heim. Hér eru bestu
horfur landsins á næstu árum. Það
kom maður til mín fyrir helgi og
sagði að hann og kona sín hefðu
flutt hingað því hér væri eitthvað
að gerast. Það eru miklar vænt-
ingar í loftinu,“ bætir hann við.
benedikt@mbl.is
Hækkandi fasteignaverð
BROTTFLUTTIR HÚSVÍKINGAR VILJA FLYTJA HEIM
Bæði sam-
flot iðnaðar-
manna
funda eftir
hádegi í dag
hjá ríkis-
sátta-
semjara, en
í sitthvoru
lagi. Enginn
fundur hef-
ur verið
boðaður hjá hjúkrunarfræð-
ingum og BHM hjá ríkissátta-
semjara. Bryndís Hlöðvers-
dóttir ríkissáttasemjari segist
vera í sambandi við deiluaðila
og mun taka púlsinn snemma í
dag.
Fundahöld
fram undan
RÍKISSÁTTASEMJARI
Bryndís
Hlöðversdóttir